Réttur - 01.01.1982, Blaðsíða 40
GuAsteinn Þengilsson.
barnadauði sé næstum horfinn — ungbarna-
dauði átti verulegan þátt í að halda
meðalaldri niðri — heldur eru elstu aldurs-
flokkarnir miklu fjölmennari að hundraðs-
tölu en þeir hafa verið áður.
Sigur yfir sjúkdómum
Það ber að fagna þeim sigrum sem hafa
unnist í viðureigninni við marga þá sjúk-
dóma, er hafa þjakað mannkynið öldum
saman. Hér á íslandi tölum við með stolti
um sigurinn yfir berklaveikinni, er vannst
með svo miklum glæsibrag. Þótt stöku
tilfelli finnist enn af berklum, þekkir fólk
undir miðjum aldri ekkert til þeirrar skelf-
ingar er greip menn, þegar berklar, ,,hvíti
dauðinn”, var nefndur á nafn. Á árunum
kringum síðustu aldamót var hann mestur
ægivaldur allra sjúkdóma hér á landi. Nú er
sullaveikin gersigruð, tekist hefur að vinna
bug á bólusótt og lömunarveiki, barnaveiki,
sem var etv. helsta orsök ungbarnadauðans
áður fyrr, þekkist ekki lengur og dregið
hefur verulega úr hættunni af flestum smit-
sjúkdómum. Krabbameinið eitt má heita
óheft svo og þeir sjúkdómar sem ntenn
leggja sér til sjálfir vegna óskynsamlegra lifs-
hátta eins og drykkjusýkin og ýmsir næring-
arsjúkdómar. Sigrunum ber að fagna og
menn lifa við góða heilsu til hærri aldurs en
var fyrir einum mannsaldri.
Fjölgun sjúkra, aldraðra
Fjölgun í eldri árgöngum hefur óhjá-
kvæmilega í för með sér að sjúkum, öldruð-
um hefur fjölgað einnig. Fjölgunin hefur
orðið svo ör síðustu 2 áratugina, að af henni
hafa skapast veruleg vandamál. Kannske
höfum við ekki áttað okkur nógu snemma á
því hvernig fara mundi, en vissulega vorum
við óviðbúin þessari fjölgun aldraðra og
sjúkra, en mér er nær að halda að eitthvað
svipað hafi átt sér stað á hinum Norðurlönd-
unum. Áhersla hafði verið lögð á byggingu
vistheimila fyrir aldrað fólk, sem hafði
ferlivist og hefði getað verið lengur á eigin
heimilum eða hjá vandamönnum, en ntinna
séð fyrir því að aldraðir sem ekki gátu með
neinu móti verið heima fengju aðhlynningu.
Þó kom upp sjúkradeild við elliheimilið
Grund og önnur við Hrafnistu, en þau
önnuðu aðeins hluta af þörfinni.
Breyling á þjóðfélagshátlum
Aðra orsök að vandamálum sjúkra og
aldraðra má nefna, en það er sú breyting,
sem hefur orðið á samsetningu fjölskyldn-
anna og ýmsum þjóðfélagsháttum síðustu
áratugina. Stórfjölskyldan eins og við þekkj-
40