Réttur


Réttur - 01.01.1982, Page 6

Réttur - 01.01.1982, Page 6
grundvallast á vilja íbúanna og þær mundu auðvelda borgarstjórn að þekkja þann vilja. Verkefni sveitarféiaganna eru mörg. Sveit- arstjórn ber að sjá um skipulagningu byggð- ar, verklegar framkvæmdir og margvíslega félagslega þjónustu og fræðslustarfsemi. Minnstu sveitarfélögin á íslandi eru það fá- menn að þau geta ekki ein og sér staðið undir nauðsynlegri þjónustustarfsemi. Þar sem svo hagar til þarf að skipuleggja sameiginleg þjónustusvæði, og kjósi íbúar slíkra þjón- ustusvæða ekki að sameina sveitarfélög sín, þarf að ganga frá ákveðnum reglum um það hvernig jafn réttur allra til að hafa áhrif á sameiginlega þjónustu verði tryggður. Þannig má bæta úr annmörkum stórra og smárra sveitarfélaga á íslandi og tryggja hvorutveggja, að þau verði nægjanlega öflug til að rísa undir verkefnum sínum og hver einstaklingur geti látið til sín taka í sínu nán- asta umhverfi. Konur og sveitarstjórnir Sveitarstjórnir eiga að endurspegla vilja og viðhorf allra íbúa sinna. Ennþá er þó málum svo háttað á íslandi að meðal sveitarstjórn- armanna, sem eru liðlega eitt þúsund á land- inu öllu, koma 94 karlmenn á móti hverjum 6 konum. Það er því ekki að undra þótt margar konur líti svo á að viðhorf þeirra, sem mótast af starfsvettvangi þeirra og aðstæð- um komi ekki nægjanlega vel fram í sveitar- stjórnum. í þessum efnum hefur Alþýðu- bandalagið haft nokkra sérstöðu. í kosning- um 1978 fékk Alþýðubandalagið 92 sveitar- stjórnarmenn kosna af hreinum flokkslistum 6

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.