Réttur


Réttur - 01.01.1982, Side 13

Réttur - 01.01.1982, Side 13
Nikkolíntihnykkur, hvar skáldin mællilsl. þótti mér vanta að hafa aldrei séð skáldið, manninn. Svo skeði það einn dag um hásum- ar. Ég var að vinna á Torfunefsbryggjunni við uppskipun á mjölvöru og bjóst svo sem ekki við neinu nema þá ef ske kynni að hann færi að rigna upp úr þurru og hella sér yfir mjölsekkina á leið í land, en það rigndi ekki og undir hádegi skein sólin á Pollinn af svo áberandi innileik eins og hún sjálf hefði verið að fæðast þá um morguninn og lægi þarna á brjóstum lognöldunnar. Svo varð hádegi og þá blés Sigurður í flautuna sina og verkakarl- arnir komu á lestagangi neðan úr botni skipsins upp á dekk. Ég greip fiskkippu sem ég átti frá því um morguninn við bryggju- kant, smeygði fingrum i vírhönkina og hrað- aði mér á stað heim í mat það var röskur 20, minútna gangur upp að Flúðum og allt á fótinn. Ég skálmaði Kaupfélagsgilið í sem fæstum skrefum og var kominn fast að Nikkólínuhnykk sem var næstum essbeygja á veginum, þegar tveir gangandi menn komu ofan gilið, önnur var umferðin þá ekki. Ég stansaði við, þetta hlýtur að vera Halldór Kiljan Laxness flaug mér í hug, það gat ekki verið um að villast, nú yrði ég að nota tæki- færið sem gafst kannski það eina í lífinu og eins og um hreina opinberun væri að ræða. Ég tók ofan derhúfuna og bauð góðan dag- (tamli spilalinn á Aknreyri, (sem (jreinir frá í upphafi )>reinarinnar). 13

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.