Réttur


Réttur - 01.01.1982, Page 38

Réttur - 01.01.1982, Page 38
á aldarafmælinu. Hann er sprottinn upp af sama jarðvegi og hún. Það voru þingeyskir bændur, sem hófu útgáfu hans — og settu í baráttu sinni samvinnustefnuna og sósíal- ismann hlið við hlið ásamt Georgismanum (jarðskattskenningunni). Sjálfur Benedikt frá Auðnum, sá mikli brautryðjandi, er fyrstur í röð ritnefndar Réttar 1916, en þar er og Benedikt Bjarnuson, síðar skólastjóri á Húsavik, er var stofnandi og fyrsti formaður Verkamannafélagsins á Húsavík. Bjartsýni þeirra sem samvinnumanna var slík að Þórólfur frá Baldursheimi, ritstjórinn, kvað það ekki ofverk ungu kynslóðarinnar að sjá svo um að 1955 ,,á 100 ára afmæli verslunar- frelsis íslendinga við allar þjóðir” væri ,,eitt kaupfélag og á öllu landinu”. — Jafnvel hinir róttækustu samvinnumenn myndu líta öðruvísi á þetta í dag. Smákaupmenn eru ei lengur höfuðóvinur. Það eru hinir voldugu heildsalar og auðhringir, sem eflst hafa sem ormur á gulli, er höfuðbaráttan stendur við í dag á viðskiptasviðinu. Um leið og Réttur færir samvinnuhreyf- ingunni hugheilar framtíðaróskir, beinist og hugur vor fullur þakklætis til þeirra sam- vinnumanna, er hófu útgáfu hans með eld hugsjónanna í brjósti og með trú á vaxandi mátt hins vinnandi fólks. Þá hugsjónir fæðast Þá hugsjónir fæðast fer hitamagn um önd, þá hugsjónir rœtast fer þrumurödd um lönd. Því gœt þess vel er göfgast hjá þér finnst og glæddu vel þann neista sem liggur innst. Guðmundur Magnússon 38

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.