Réttur


Réttur - 01.01.1982, Page 41

Réttur - 01.01.1982, Page 41
um hana af sögu ættarsetranna er horfin, og í nútímaborgarafjölskyldu eru allir einstakl- ingar á þönum, ýmist sem þátttakendur í lífs- gæðakapphlaupinu við söfnun auðs eða ann- arra eftirsóttra hluta, eða í skólum og á barnaheimilum. Gamla fólkið situr eitt heima, á daginn, og gengur allt vel, þar til hrörnun og sjúkdómar fara að gera verulega vart við sig. Á almennum sjúkrahúsum eru sjúklingar fyrst og fremst teknir til rann- sókna og síðan til fyrstu meðferðar, en ef gamalt langlegufólk færi að hrannast þar upp, yrðu þessar deildir brátt óvirkar til sinna ætlunarverka. Þess vegna getur stundum verið erfitt að koma gömlu og lasburða fólki inn á sjúkrahús, og þarf oft að liggja fyrir drengskaparyfirlýsing um, að það verði tekið inn á heimili sitt aftur. Til mótvægis hefur heimilishjálp og heimahjúkrun verið efld og ýmsar fleiri fé- lagslegar aðgerðir komið til. En afar oft er heilsan svo mjög þrotin, að slíkar ráðstafanir hrökkva ekki til og heimilin örmagnast á endalausri vakt yfir sjúklingunum. Þau hafa hneppst í ánauð af völdum hins farlama gamalmennis og reyna því að leita allra ráða til að losna úr henni. Eigum við að láta sem við þekkjum ekki fólkið sem skóp velferðar- þjóðfélag? Ég dreg það ekki í efa, að aldraða fólkið finni fyrir því oft á tíðum, að það sé orðið 41

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.