Réttur


Réttur - 01.01.1982, Síða 52

Réttur - 01.01.1982, Síða 52
Engilbert Guðmundsson Sósíalistar voru andvígir frá upphafi Það var á viðreisnartímabilinu miðju, að til starfa tók álver í svissneskri eigu suður í Straumsvík við Hafnarfjörð. Strax þá hófust þær deilur, sem árin 1981—82 náðu hápunkti með „súrálsmálinu”. Þegar álsamningurinn var gerður lögðust stjórnarandstöðunokk- arnir, Alþýðubandalag og Framsókn gegn honum en viðreisnarflokkarnir, Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðuflokkur höfðu hann í gegnum Alþingi. Gagnrýni sósíalista á þeim tima byggðist á tveimur meginstoðum, og segja má að á þeim hafi hún hvílt allar götur síðan. Annars- vegar gagnrýndu þeir að erlendum auðhring skyldu veitt þau itök í íslensku efnahagslífi, að mega reka hér fyrirtæki, algerlega í er- lendri eigu og utan íslenskrar lögsögu, þótt það væri nánast í skotfæri við Alþingi ís- lendinga. Hinsvegar var hinn smánarlegi raf- orkusölusamningur við álverið gagnrýndur mjög harkalega. Strax þá grunaði sósíalista að samningur- inn um álverið í Straumsvík væri aðeins upp- haf að mun umfangsmeiri innreið erlendra auðhringa í efnahagslíf okkar. Enda kom það á daginn þegar fundvísir menn komust yfir hina makalausu „Áætlun Integral”, seni kvað á um nýtingu á meginhlutanum af vatnsorku íslendinga til stóriðju á vegum Alusuisse, og áttu þá ekki aðeins verksmiðj- urnar að vera í erlendri eigu heldur virkjan- irnar líka. Þegar flett var ofan af áætlun Integral sljákkaði um skeið nokkuð í álpost- ulum, en að sjálfsögðu geymdu þeir draum- inn um öll álverin áfrani í hugskotum sínum. Þegar Magnús Kjartansson settist í iðnað- arráðuneytið neytti hann þeirra heimilda er í álsamningnum voru um endurskoðun, og leitaði þá iðnaðarráðuneytið til hins breska endurskoðunarfyrirtækis Coopers & Ly- brand, en þeir koma meir við sögu síðar. I skýrslu sem Cooper & Lybrand skiluðu af sér 1975, en þá var Gunnar Thoroddsen orðinn iðnaðarráðherra, kemur í ljós að Alusuisse er farið að hækka súrálið í hafi. Það er ekki fyrr en með komu Hjörleifs Guttormssonar í iðnaðarráðuneytið, að aftur er tekinn upp þráðurinn með að fylgj- ast með viðskiptum ísal og Alusuisse. Allan þennan tima héldu sósíalistar uppi gagnrýni á starfsemi álversins, og þá einkum á verðlagninguna á raforkunni. En lengst af var hún þannig að álverið fékk nær helming af raforku landsmanna, en greiddi um 10°7o af heildargreiðslum fyrir raforkuna. Þetta 52

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.