Réttur


Réttur - 01.04.1976, Qupperneq 9

Réttur - 01.04.1976, Qupperneq 9
stéttin frekar tapar á svikunum fjárhagslega (eins og öll þjóðin). Hvort munu þá frekar einhver takmörk fyrir því hvað voldugasti og harðsvírasti hluti burgeisastéttarinnar er reiðubúin til að gera, þegar hann stórgræðir á því? Hemámið bejur í aldarfjórðung verið spill- ingarvaldur í íslensku þjóðlífi. Hervöllurinn á heiðinni er eiturkýli á íslenskum þjóðar- líkama. Menn eru að byrja að sjá hvemig eiturlyfin streyma út frá honum, en þora ekki að stinga á graftarkýlinu. Bandarískar lifs- venjur: eitursmygl og morð eru að síjast inn í íslenskt þjóðfélag. Jafnvel sjálfur dóms- málaráðherrann sér nú mafíur að verki í stjórnmálalífinu í kringum sig. Verður næsta þróunin frá þeim „vormönnum íslands'1 sem völdu einkunnarorðin: „Islandi allt", — frá mafíum til melludólga? „Fjallkonan" ambátt- in, aðalatriðið að fá nógu mikið fyrir hana — og til nógu langs tíma, svo ekki verði aftur horfið: Ameríkaninn bað um 99 ár 1. október 1945 — og 1974 báðu 55 þúsund Islendingar hann um að vera áfram. 1945 var það Sósíalistaflokkurinn, sem í krafti þess að vera stórhuga og rismikill for- ustuflokkur sigursæls verkalýðs og eini vaxt- arbroddurinn í íslensku stjómmálalífi afstýrði þeim voða, er gerbreytt hefði Islandi og ís- lenskri sögu alla þessa öld og næstu. Nú verður verkalýðshreyfing Islands að vinna álíka afrek og sameina til þess alla þá krafta, sem þjóðin á til. STRAUMHVÖRF [ VERKLÝÐSHREYFINGUNNI Verkalýður íslands varð að fórna a.m.k. 900 miljónum króna (ef aðeins er reiknað með dagvinnukaupi), en raunverulega meir en miljarði í tíu daga verkfalli í febrúar til þess að ná aftur því, sem þá hafði tapast. Síðan verður hann að horfa upp á mestallt, sem ávannst, tekið af sér á ný. Það var sem yfirstétt Islands vildi láta alþýðu ganga undir einskonar landspróf í stjórnmálafræðum með því að skipuleggja dýrtíðarholskeflu þá, er yfir alþýðu dundi í mars—apríl. Og alþýðan stóðst það próf með prýði. Viðbrögð verkalýðssamtakanna, stjómar Alþýðusambandsins og alveg sérstaklega for- seta þess, Björns Jónssonar, sýndu að héðan af mun íslensk alþýða tvinna saman í stétta- baráttu sinni hina faglegu og hina pólitísku hlið hennar. (Sjá „Neista", sem fara hér á eftir þessari grein. Lesendur „Réttar" þekkja ennfremur viðbrögð verkalýðsforustunnar frá hinu stórmerka hringborðssamtali í síðasta hefti). Alþýða Islands mun héðan af ekki láta sér nægja að verjast með skjöld í vinstri hendi, heldur sækja nú harðar á en fyrr með sóknar- sverð stjórnmálanna í þeirri hægri. Það sýndi hún með yfirlýsingunum 1. maí. Forsenda þessarar stórsóknar, svo hún verði sigursæl, er annarsvegar eining allra samtaka launastéttanna, faglegra og pólitískra, — og hinsvegar traust bandalag við þær stéttir eða stéttahluta aðra, sem rök standa til að væru verkalýðnum sammála um höfuðatlöguna að verslunarauðvaldi og því óhófsbákni brasks- ins, sem á herðum alþýðu hvílir. Er þar um að ræða annarsvegar bændur, en hinsvegar iðnrekendur og útvegsmenn, þ.e. þá hluta borgarastéttarinnar sem hagsmuni hafa af al- eflingu íslenskra framleiðslugreina og sjálf- stæði þeirra, en gerðu sér jafnframt ljóst að sú efling gerist ekki svo vel fari öðruvísi en með heildarstjórn á íslenskum þjóðarbúskap og þar með einnig utanríkisversluninni: þ.e. með raunverulegri nýsköpun þjóðfélagsins á Islandi. Það er verkefni næstu missera að skapa 73
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.