Réttur - 01.04.1976, Blaðsíða 40
Sigur alþýðubyltingar
i Angólu
„Því enginn má vita, hvað orðið er þá
af auðsins og guðanna friði,
er hundraðið fimmta er sigið i sjá
og sól þess er runnin að viði.“
Þorsteinn Erlingsson: Vestmenn.
Svo orti Þorsteinn í mars 1893 þá
hundruðin fjögur voru liðin frá fundi
Ameríku, — lét sig dreyma um að auð-
valdsdrottnun á jörðinni yrði gengin sér til
húðar áður en árið 1993 rinni upp. Það virð-
ist sem spá hans nálgist það æ meir að ræt-
ast, máske á þann máta, sem Isaac Deutscher
giskaði á að Bandaríkin yrðu eina auðvalds-
land heims um árið 2000.1’
I fyrra, vorið 1975, vinnur Vietnam
„vonbjartasta sigur veraldarsögunnar"2’ á
voldugasta herveldi heims, Bandaríkjunum,
og nær frelsi sínu úr nýlendufjötrum eftir
30 ára frelsisstríð. Nú, vorið 1976, vinnur
alþýðan í Angolu sigur í frelsisstríði sínu
undir forustu Þjóðfrelsishreyfingar sinriar,
M.P.L.A. Þar með er það land, sem forðum
var ríkasta nýlenda í Afríku, komið undir
stjórn alþýðunnar í Angolu sjálfrar með sigri
yfir öllum útsendurum erlendu auðhringanna
og harðstjórnarvalds Suður-Afríku.
Angola leggur nú samkvæmt yfirlýsingu
forseta síns og foringja Þjóðfrelsishreyfing-
arinnar, A. Neto, inn á leið þjóðfélagslegra
endurbóta og efnahagslegs lýðræðis. Þjóðin
mun nú, frjáls af nýlenduokinu, stefna að
því að afnema arðrán manns á manni, m. ö.
orðum: fara leið sósíalismans með frjálst
samfélag samhjálpar og sameignar að tak-
marki. Angola-ríki hefur margar efnahags-
legar forsendur til að geta farið þessa leið
auðveldar en mörg önnur afríku-ríki sakir
auðæfa sinna hvað hráefni snertir. Landið
býr í ríkum mæli yfir olíu jafnt sem demönt-
um og getur ræktað og framleitt í stórum
stíl kaffi sem sísal, mais, bómull og sykur
svo eitthvað sé talið, — enda lýsti Neto því
yfir að landið yrði nú iðnvætt á grundvelli
eigin h.ráefna og jafnvel sköpuð stóriðja, en
landbúnaði yrði haldið áfram sem aðalgrund-
velli atvinnulífs, þó stefnt sé fram til iðnaðar.
500 ára nýlendukúgun er nú lokið og hef-
ur kostað ægilegar fórnir, ekki hvað síst síð-
an skipulögð frelsisbarátta hófst fyrir 20 ár-
um undir forustu MPLA. — Heimsvalda-
104