Réttur - 01.04.1976, Page 65
Frá útifundinum á Lækjartorgi 1. mai 1976.
þýðusambandsins hélt á útifundi verklýðs-
samtakanna, B.S.R.B. og Iðnnemasambands-
ins, og úr ávarpi 1. maínefndar þessara sam-
taka eru birtir á bls. 75 í þessu hefti.
KEFLAVÍKURGANGAN
15. maí var efnt til Keflavíkurgöngu gegn
Nató og hersetunni. Þátttakan í göngunni
var sú mesta sem verið hefur, en þetta var
8. Keflavíkurgangan. Um 1000 manns
gengu alla leið frá flugvallarhliðinu og um
10.000 manns tóku þátt í glæsilegum úti-
fundi í Rvík við göngulok. Keflavíkurgangan
einkenndist af sóknarhug og barátfuvilja.
Það var unga fólkið sem setti helst sv'p sinn
á gönguna, en það vakti einnig athvgli að
þar voru engir áberandi fulltrúar úr Al-
þýðuflokknum eða Framsóknarflokknum.
Það voru samtök hernámsandstæðinga sem
beittu sér fyrir göngunni og hafa þau ákveðið
að efla á næstu mánuðum starfsemina til þess
að fylkja enn fleiri íslendingum gegn hernum
og aðild Islands að því hernaðarbandalagi,
sem ber ábyrgð á ofbeldisverkum breta í ís-
lensku fiskveiðilandhelginni.
Á næstu siðu eru tvær myndir: hin neðri frá
Keflavíkurgöngunni nálægt álverinu, hin efri svip-
mynd, er staðar var numið i Kópavogi.
129