Réttur - 01.08.1976, Síða 9
Henry George
Peter Krapotkin
Karl Marx
stefna", er Þórólfur skilgreindi, skal nú sósí-
alistíska verkalýðshreyfingin notuð sem svipa
á borgarastéttina, til að knýja hana til sam-
starfs — og öfugt, ef á þurfti að halda.*1
Það var á þeim tíma róttæk pólitík, er
Jónas boðaði, — einskonar valdataka bænda-
stéttar, er þá (1920) var helmingur þjóðar-
innar. En hún var ekki raunsæ, er til lengd-
ar lét, sökum þess að þjóðfélagsþróunin
minnkaði þá stétt í sífellu. En hún gerbreytti
högum bændastéttarinnar í landinu.
Samtímis þessum breytingum á „Rétti",
gerast svo sögulegir atburðir innanlands og
utan, sem marka tímamót jafnt í Islandssög-
unni sem veraldarsögunni og láta brátt til
sín taka í „Rétti".
A Islandi hefur sósíalistískt Alþýðusam-
band — Alþýðuflokkurinn, — hafið göngu
sína (1916), sameinandi innan sinna vébanda
verkalýðsfélög landsins og brátt vex þessari
ungu hreyfingu ásmegin og rótttækni við
þann stóratburð, er gerist úti í þeim stóra
heimi:
Úti i Rússlandi steypm (1917) verkamenn
og bændur undir forusm hins marxistíska
bolshevikaflokks auðvaldi, jarðeignaaðli og
leifum keisarastjórnar af stóli. Róttækasta
bylting veraldarsögunnar er hafin. I fyrsta
skipti í mannkynssögunni tekst kúgaðri al-
þýðu að ná völdum til frambúðar og 1921
er auðsætt að henni tekst að halda þeim þrátt
fyrir innrásir og árásir 14 ríkja. En hingað
til hafði yfirstéttum veraldar ætíð tekist að
kæfa slíkar uppreisnir í blóði alþýðunnar
sjálfrar.
Það fór bylgja bjartra vona og byltingar-
sinnaðs stórhugs um alþýðu heims við sigur
verkalýðsins í Rússlandi. Loks sáu kúgaðar
undirstéttir hylla undir framkvæmdina á
draumsjón sósíalismans, sem alltaf hafði
staðið fyrir hugskotssjónum alþýðu, er hún
hristi hlekki sína.E)
I „Rétti" gætir nú boðskapar sósíalismans
æ meir með hverjum nýjum árgangi eftir
191B. í árgangana 1919, 1920 og 1922 rit-
ar Steinþór Guðmundsson greinar eða birtir
145