Réttur - 01.08.1976, Qupperneq 19
félagi aðals og auðvalds sem og um hið að-
dáunarverða hugrekki og fórnir kínversku
byldngarmannanna.
Chu-Te var fæddur, líklega 30. nóvember,
1886 í bláfátækri bændafjölskyldu. Foreldr-
ar hans eignuðust 13 börn, en aðeins 6
drengir og tvær stúlkur lifðu, fimm síðustu
börnunum var drekkt eftir fæðingu, því fjöl-
skyldan var of fátæk til að fæða þau. Chu
var fjórða barnið — og það fór svo að fjöl-
skyldan tók síðar að þræla óskaplega til
þess að geta leyft honum að læra að lesa.
Svo fóru leikar að honum tókst að læra að
verða íþróttakennari og síðar, er þjóðfrelsis-
hreyfingin tók að breiðast út, ákvað hann
að læra herstjórn, til þess að geta barist fyrir
frelsi Kína. Hann varð um tíma herforingi
í einum af þeim mörgu herjum, er þá voru
í Kína, lærði líka ýmsa ósiði þeirra svo sem
ópíumreykingar, en sýndi þá fádæma vilja-
festu að yfirvinna þann löst. Er Chu frétti
af stofnun kommúnistaflokks í Kína, vildi
hann gerast félagi þar en var neitað. Mennta-
menn þeir, er flokknum stjórnuðu trúðu ekki
hershöfðingja fyrir því trúnaðarstarfi að vera
félagi í Kommúnistaflokknum.
Það var ekki fyrr en Chu-Te hafði brotist
í því að fara úr landi alla leið til Berlínar
að hann 1922 fékk inngöngu í kommúnista-
flokkinn, vegna þess að Chou-En-lai skildi
hann þegar og mat hæfileika hans réttilega.
Var hann þá í hópi hundrað kínverskra stúd-
enta við háskólann í Berlín. (Agnes Smedley
var þá líka í Berlín, en þau kynntust ekki
þá).
Þegar Chu fór af landi brott 1922, skildi
hann eftir konu sína og barn -—- og sá þau
aldrei aftur, hershöfðingjar afmrhaldsins lém
drepa bæði þrettán árum síðar. Síðar giftist
Chu 25 ára gamalli konu, er var menntuð
og byltingarsinnuð, Wu Jo-lan, — en síðar
náðu hersveitir Sjang-Kai-Sheks henni,
Agnes Smedley 1937
pynmðu hana, hálshjuggu og setm höfuð
hennar á staur í aðalgöm Tschangschaborgar.
Slíkt var persónulegt líf þessara byltingar-
manna. Fjórða konan, er Chu giftist, Kang
Ke-ching, lifir hann hinsvegar. (Konur í
Kína halda nöfnum sínum þótt þær gangi
í hjónaband, — eins og hér á Islandi).
Frásögn Agnes Smedley dregur upp marg-
ar myndir af hetjulegri barátm alþýðuhers-
ins og kænni herstjórn Chu’s og félaga hans,
sem eigi verða raktar hér.
Chu Te, Chou-En-lai og Mao-Tse-tung og
flokkur þeirra, Kommúnistaflokkurinn, reis
á þriðja áramgnum upp gegn því gamla
Kína argasta hungurs alþýðu og versm spill-
155