Réttur - 01.08.1976, Page 21
Obrotgj arn minnisvarði
Lárusargjöf Björnssonar
Lárus Björnsson txésmiður á Akureyri gaf
í fyrra Alþýðubandalaginu á Akureyri hús
sitt, tvílyft steinhús, Eiðsvallagötu 18, til að
vera miðstöð fyrir starfsemi flokksins þar.
Með þessari mikilfenglegu gjöf reisir Lárus
sér og sósíalistum sinnar kynslóðar óbrot-
gjarnan minnisvarða og leggur þeim sósíal-
istum, er við slíkri gjöf taka ljúfar skyldur
á herðar.
Húsið er tvær hæðir, hver um sig 140
fermetrar að stærð, auk þess ris og lítill kjall-
ari. Eru félagarnir á Akureyri smátt og smátt
að útbúa herbergi niðri fyrir flokksstarfsemi,
afgreiðslu blaðsins o. s. frv. og skreyta það
herbergi, sem verður aðallega fundarsalur,
til þess að sem vistlegast verði. Hafa félag-
arnir sjálfir lagt fram alla vinnu við slíkt,
ýmsir gefið muni til fegrunar.
157