Réttur


Réttur - 01.08.1976, Side 31

Réttur - 01.08.1976, Side 31
HUGLEIÐINGAR VIÐ DAUÐA MAO-TSE-TUNG MAO-TSE-TUNG er látinn, andaðist 9. september. Kommúnistaflokkur Kína hefur misst alla þrjá mestu og bestu leiðtoga sína á einu og sama ári: CHOU EN-LAI, CHU TE og nú síðast þjóðar- leiðtogann mikla, Mao formann. I fyrsta sinn við lát eins mesta mikil- mennis sósíalismans bregður svo við að for- ustumenn borgarastéttarinnar víða um heim viðurkenna mikilleik leiðtogans, þó komm- únisti sé, láta ekki hatrið og óttann við kommúnismann blinda sig, — máske hjálpar núverandi utanríkispólitík kínverska ríkisins þeim líka til að sjá og viðurkenna. Einn slíkur leiðtogi, Peyrefitte, fyrrum mennta- málaráðherra Frakka segir: „Sennilega hefur engin persóna mankynssögunnar haft önnur eins áhrif á þjóð sína og hann. Jafnvel Cæsar, Alexander mikli og Napoleon komast þar ekki í samjöfnuð við hann.” En hvernig stendur á því að einmitt okkar tvær aldir, hin 19. og 20„ fæða af sér mestu mikilmenni sögunnar, þegar hlutlægt er skoðað, menn eins og Marx og Engels, Lenín og Mao? Ástæðan er sú að verkefnin, sem nú er mögulegt að vinna og eru unnin með sigrum sósíalismans, valda mestri ger- byltingu í lífi hverrar þjóðar og mann- kynsins alls, skipta mestu sköpum í ver- aldarsögunni allri hingað til — og lengi frameftir. Þessi verkefni kalla á mestu og bestu menn þjóðanna, verða til þess að þeir — vaxa með verkefnunum, er þeir glíma við að finna þá lausn, sem við á í þeirra landi, á þeirra tíma, — móta og þroska það samhuga mannval, hinn marxistíska fjölda-flokk, er megni að taka forustu fyrir alþýðunni, — og beita í hverju landi, á hverjum tíma þeirri stjórnlist og þeirri bardagaaðferð, sem vekur og virkjar hinn vinnandi fjölda til þeirrar baráttu, er að lokum leiðir til sig- urs. Hver er grundvöllurinn að þeim mikilleik Mao formanns, sem jafnvel ofstækisfyllstu andkommúnistar nú viðurkenna? Hvernig gat það kraftaverk gerst að reisa 600 miljóna hungrandi, fátæka og kúgaða bændaþjóð úr niðurlægingu, er gerði hana að fótaþurrku framandi auðvalds, upp í að verða þriðja 167

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.