Réttur


Réttur - 01.08.1976, Page 64

Réttur - 01.08.1976, Page 64
NEISTAR Lögin, sem eru jöfn fyrir alla, banna í hátign sinni jafnt fátæk- um sem ríkum að sofa undir brúm, betla á götunum og stela brauði. Anatoli France. ★ RÆNINGJAR OG RÍKISSTJÓRNIR Ræninginn rændi venjulega hina riku, ríkisstjórnin rænirvenju- lega hina fátæku og verndar þá ríku, sem hjálpa til við ránin. Ræninginn hætti lifi sinu, er hann vann verk sitt, en ríkisstjórnirnar hætta engu, en grundvalla allt starf sitt á lygum og blekkingum. Ræninginn neyddi engan til þess að ganga í flokk sinn, ríkisstjórnir gera menn að hermönnum með valdi. Ræninginn spillti aldrei fólki viljandi en rikisstjórnirnar spilla heilum kynslóðum frá barnæsku til fullorðinsára, með ósönnum trúarbrögðum og þjóðernisæsingi, til þess að ná takmarki sínu. Leo Tolstoy. ★ Frelsistréð þarf öðruhvoru vökvunar með blóði frelsissinna og harðstjóra. Það er eðli þess. Thomas Jefferson forseti Bandaríkjanna. Ef kristnin væri kennd og skilin samkvæmt anda höfundar hennar, þá mundi núverandi þjóðfélags- skipulag ekki standa einum degi lengur. Emil de Lavelaye (belgískur þjóðhagsfræð- ingur' 1822—1892. ★ Það er mikill breyskleiki að að hugsa. Guð forði þér frá því, sonur minn, eins og hann hefur forðað frá því dýrlingum sínum og sálum þeim, sem hann hefur vel- þóknun á og ætlar eilífa sælu. Anatole France. ★ HVAÐ VILL YFIRSTÉTTIN GERA FYRIR VERKALÝÐINN? Aðstaðan, sem við menntuðu og efnuðu stéttirnar höfum, er sama og gamla mannsins, sem sat á herðum hins fátæka, sá er bara munurinn að við erum ólíkir hon- um í því að okkur tekur mjög sárt til fátæka mannsins; og við vildum allt gera til að bæta hag hans. Við viljum ekki aðeins láta hann fá svo mikið fæði, að hann geti staðið á fótunum, við viljum líka kenna honum og fræða hann, sýna honum fegurð náttúrunnar, ræða við hann um fagra tónlist og gefa honum ógrynni ágætra ráð- legginga. Já, við viljum næstum allt fyrir fátæka manninn gera, nema að fara af baki hans. ■ Leo Tolstoy. * Ég veit ekki hvort ég á skilið að lárviðarsveigur verði einhvern- tíma lagður á kistu mína. Skáld- skapurinn hefur, þótt vænt hafi mér þótt um hann, aldrei verið mér annað en guðdómlegt leik- fang. Ég hef aldrei gengist fyrir skáldafrægð og skeyti litið um hvort menn lasta Ijóð mín eða lofa þau. En leggið sverð á kistu mina; því ég hef verið hugrakkur her- maður í frelsisstriði mannkynsins. Heinrich Heine. ★ Þetta er barátta, sem halda mun áfram í landi þessu, einnig eftir að vesælar tungur okkar Dougl- asar dómara eru þagnaðar. Það er hin eilífa barátta milli tveggja afla, réttlætis og ranglætis, al- staðar í heiminum. Það eru þessi tvö mögn, er andstæð hafa stað- ið hvort öðru frá upphafi vega. Annað er hinn almenni réttur mannkynsins, hitt hinn „guðdóm- legi" réttur konunga. Það er sama hvaða mynd það tekur á sig. Það er sami andinn í því, þegar sagt er: ,,Þú erfiðar, vinnur og aflar brauðs — og ég skal éta það.“ Abraham Lincoln. ★ j næstum hverri, ef ekki hverri einustu, meiriháttar stjórnmála- deilu síðustu 50 ára, hvort sem deilt var um kosningaréttinn, verslunina, trúarbrögðin, hið illa og fyrirlitlega þrælahald, eða hvað sem um hefur verið að gera, þá hafa þessar yfirstéttir, þessar menntuðu stéttir, þessar hátt titl- uðu stéttir, sifellt hafa á röngu að standa. Gladstone. ★ (Þetta eru „Neistar" úr „Rétti" 1926). 200

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.