Réttur


Réttur - 01.01.1988, Page 18

Réttur - 01.01.1988, Page 18
nítján ára, gekk hún í hjónaband meö ungum ísfirðingi, Kjartani Ólafssyni kaupmanni þar. Hann rak verslunina Björninn, við þá verslun vann Guðrún ásamt heimilisstörfum hátt í tvo áratugi, að þeim tíma liðnum slitu þau hjón Guð- rún og Kjartan, samvistum. Þá flutti Guðrún til Reykjavíkur. í Reykjavík var þá búsett systir Guð- rúnar, Lúísa Bjarnadóttir og vann við meinatækni á Landsspítalanum. Guðrún dvaldi hjá systur sinni fyrst eftir að suður kom sem varð til þess að hún lagði einnig stund á meinatækni og varð útlærð í þeirri starfsgrein, síðan vann hún við skyld störf sunnan lands og fyrir norðan um skeið. Á þessum árum kyntist Guðrún Stein- grími Sigurðssyni listmálara og rithöf- undi, hann er sonur Sigurðar Guðmunds- sonar fyrrum skólameistara við Mennta- skólann á Akureyri og konu hans Hall- dóru Ólafsdóttur. Á jólum 1956 gengu þau Guðrún og Steingrímur í hjónaband og fluttu þá til Akureyrar, þar var Steingrímur kennari við Menntaskólann. Guðrún starfaði við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, mest við rannsóknarstörf. Þau Guðrún og Steingrímur slitu samvistum eftir sex ára hjúskap, þá flutti hún til Reykjavíkur og þar tók hún fljótlega við starfi Lúísu syst- ur sinnar á Krabbameinsleitarstöð heilsu- gæslu Reykjavíkurborgar og þar var hennar starfsvettvangur til æviloka, alls vann hún við skyld störf í þrjá áratugi. Ég leyfi mér að vitna hér í orð Hrafns Tulin- iusar læknis í minningargrein að Guðrúnu látinni: „Margir munu sakna Guðrúnar. Okkur sem mest unnum með henni síð- ustu árin er efst í huga þakklæti, þakklæti til þessa stórbrotna persónuleika, sem einkenndist af heiðarleika, höfðingskap, sterkum gáfum, réttlæti, tryggð við vini og alúð við störf.“ Bróðurdóttir hennar, Bjarndís Frið- riksdóttir fer hlýjum og hugþekkum orð- um um Guðrúnu Þorbjörgu, einnig í minningargrein; og leyfi ég mér að taka nokkrar tilvitnanir úr þeirri grein. „Gunna var mikil tilfinningakona, hjartahlý og umvafði systkini sín og syst- kinabörn ástúð og hlýju og voru þau sem hennar börn, en hún eignaðist ekki börn sjálf.“ Bjarndís minnist á sambúð Guð- rúnar og Eðvarðs: „Þau höfðu búið sam- an í 12 hamingju- og innihaldsrík ár. Hún fann í honum góðan mann, traustan vin og lífsförunaut. Það var alveg sérstakt samband þeirra í milli og frábært að sjá ástúðina, tillitssemina og virðinguna, sem þau sýndu hvort öðru.“ Guðrúnu Bjarnadóttur kveð ég að lok- um með þökkum fyrir hin góðu kynni á dásamlegum sambúðarárum þeirra Eð- varðs Sigurðssonar, vöku- og baráttu- mannsins fyrir menningarauðugra lífi al- þýðunnar, hans sem lifir svo ljós og hlýr í minningu félaga sinna. Guðrún var hon- um lífsblóm ævistarfsins, ástgjafinn sem aldrei bregst. Megi minning þeirra lifa með íslenskri alþýðu um aldur og ævi sem ljós á vegum þjóðar vorrar. Tryggvi Emilsson. 18

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.