Réttur


Réttur - 01.01.1988, Side 41

Réttur - 01.01.1988, Side 41
að einstöku litu á hana sem yfirstéttar- kynveru, því hún hafði sagst vera oddvita- dóttir úr sveit. Hún hafði ekki látið uppi neinar flokkspólitískar skoðanir, aðeins spurt og spjallað í forvitnistón með samúð. Var það ef til vill grunsamlegt að skrifa hjá sér? Þeir höfðu verið fljótir í fyrrinótt að læra textann við rauða han- ann en slæmt að hún skyldi brjóta á sér nöglina við að kenna þeim lagið. Hún vildi og yrði að reyna til þrautar. Ritgerð- in byggðist einmitt á sjálfstæðum athug- unum, auk þess var verkfall sérlegur skóli alþýðu. Brot II. Járni var meðalmaður á hæð, en saman rekinn og herðabreiður. Fylginn sér með afbrigðum. Rökfastur svo jaðraði við þráhyggju, að ýmsum fannst, sem þó báru einstaka virðingu fyrir jafnaðargeði hans og þolinmæði. Lygnstreymi orð- ræðunnar hamlaði því einatt hvatvísleg- um aðgerðum. Þótti bíta í sundur og stikla bárugarða. Tafsa um lágfreyðandi málefni sem vörður um seinfarna slóð. Engi var hann málskrafsmaður heldur stirðfær og þolinn í hvívetna. Hann var málkunnugur öllum stjórnunarmönnum félagsins, fundarrækinn og eftirtektar- samur, stéttvís og einhleypur. Hernámið var honum nöturleg stað- reynd, sem berjast yrði á mót, en notfæra sér er innlendir burgeisar brygðust og at- vinnuleysi herjaði. Hafði lengi setið í samninganefnd og var öllum hnútum kunnugur í þesslags málavafstri. Hreifst innilega af vel talandi ræðumönnum, sem fóru frjálslega aö í ræðustól og töluðu blaðalaust, settlega og skýrt. Slíkt væri augnayndi og eftirsóknarvert, eiginlega hátoppur lýðræðis í karlaþjóðfélagi. Uppburðarleysi hans og langanir höfðu lengi vegið salt, étið hvort annað upp en þrautseigja og langlundargeð dugað sem yfirbreiðsla á falinn eld lengi vel. Atvinnu- leysishrellingar og fundahöld ’69 höfðu þó veitt næði sem færi á yfirsýn og ollu þar mest um stúdentaupphlaup ungra Frakka 1968. Þar að auki óðu nú unglingspiltar uppi á fundum félagsins, bálreiðir og uppæstir en ófélagsvanir svo furðu gegndi. Undar- legar uppástungur þeirra og undirskrifta- safnanir um tillögugerð vöktu kátínu og örvuðu félagsanda sem fundarsókn. Gamlingjar félagsins er verið höfðu fjölmennastir á fundum félagsins um ára- bil, yljuðu sér nú við barnabrek angur- gapanna og minntust eigin langana. Studdu jafnvel einstöku nýlundu með sig- grónum lófa, uppréttum. Upphlaups- menn þessir vildu ólmir endurtaka stú- dentauppreisn Frakka í félaginu og köll- uðu forystuna æviráðna atvinnumenn, er þættust heyja stéttabaráttu fyrir verka- menn, en smöluðu að sér jámönnum og metorðastriturum, þar sem engin gagn- rýni þrifist. Enda væru þeir allir upp til hópa í Samábyrgðarfélagi forystumanna og mundi enginn þeirra taka kaup eftir taxta er félagið semdi um. Hinir þaulvönu ræðumenn og liðsoddar fóru létt með að tala viðvaningana upp úr skónum enda sumir þeirra varla í félaginu löglega, þó svo þeir fengju málfrelsi og tillögurétt. Væri það náð ein. Fylgisleysi tillagna þeirra væri og besta sönnunin um haldleysi raka þeirra og málflutnings. Ungæðisleg upphlaup reiðu ungu mannanna, grófu þó um sig og spurðust út um vinnustaði þar sem þeir reyndust bæði góðir félagar og vekjandi, þó kjaft- forir væru með afbrigðum, válega sund- urgerðasamir í skóbótum sínum á gamla 41

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.