Réttur


Réttur - 01.01.1988, Side 43

Réttur - 01.01.1988, Side 43
Jón Engilberts: Verkamannsfjölskylda. fallsmenn voru vel meðvitaðir um mikil- vægi umbúðageymslunnar og unnu þar sumir þeirra, enda skiptu þeir vöktum þar á tveggja tíma fresti nótt og dag. Óbreyttir nefndarmenn bræddu nú með sér að línudans Vinnumálasambands samvinnufélaganna skyldi á enda renna og engar undanþágur þeim veittar meðan þeir væru fastráðnir hjá V.S.Í. Nú skyldu þeir sambandsfélagamenn verða að sýna sitt rétta andlit. Annað hvort segja skilið við V.S.f. og semja við verkfallsmenn eða opinbera samstöðu sína með V.S.Í. öllum landslýð. Vinnumálasamband sam- vinnufélaga eða Sís hafði lengi steininn klappað og leikið tveim skjöldum, verið skipulagslega tengt V.S.Í. og þannig veitt þeim siðferðilegan og pólitískan styrk sem forystusveit og andskoti allra laun- þega í landinu. Jafnframt borgað stórfé fyrir taglhnýtinginn úr sjóðum almenn- ings er áttu samvinnufélögin. bótti nú ýmsum gott í efni ef tækist að þjarma að taglhnýtingum og rýra fylgi V.S.Í. og styrk. Nefndarmenn tóku nú að Ieita kosinnar forystu sinnar, vildu láta hana hafa hitann í haldinu meðan málið væri nýtt og vel margir sama sinnis í hús- inu. Aldrei væri að ætla á eftirleikinn, þegar flokksbönd og sérhagsmundir græfu í einstaklingum. Lengi vel fundust þó fáir einir af foringjum í húsinu, en er á leið rismál, skéði það nokkuð jafnsnemma að forystan birtist stundarkát í Kringlu með spaugsyrði á vör og einn Dagsbrún- armaður úr samninganefnd valt út úr hægindi hljóðandi á gólf niður og lá sem dauður væri. Seinni hlutinn birtist í nœsta hefti. 43

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.