Réttur - 01.01.1993, Síða 23
Deilan um aðferðir við að tryggja gott
þjóðlíf stendur enn. Orðin sem ég ætlaði
að gera að aðal-umræðuefni, standa enn í
fullu gildi. Merking þeirra orða er enn
óbreytt. Sósíalismi eða jafnaðarstefna
stendur fyrir ákveðna hugsjón, ákveðna
stefnu. Enn eru til staðar grundvallar-
sjónarmið tveggja ólíkra þjóðfélgas skoð-
una, sósíalisma og kapítalisma. Baráttu-
uðferðir sósíalista geta breytzt og hafa
hreytzt. Grundvallar kenningar sósíal-
ismans, jafnaðarstefnunnar hafa ekki
breytzt. Grundvallar kenningar kapítal-
ismans hafa heldur ekki breytzt. En hvað
um orðin sósíalismi = jafnaðarstefna, og
sósíalisti = jafnaðarmaður? Hefir merk-
ing þeirra breytzt? Eða er túlkun þeirra
°g notkun önnur en sú sem fram kom í
byrjun aldarinnar hjá Porsteini skáldi
Erlingssyni og öðrum frumherjum stefn-
unnar?
Alþýðuflokkurinn sem grundvallaði
stefnu sína á kenningu sósíalismans og
var flokkur verkalýðsstéttarinnar, hann
hefir nýlega bætt við nafn sitt, þannig að
nú heitir flokkurinn: Alþýðuflokkurinn -
Jafnaðarmannaflokkur íslands. Eessi
úminning í nafninu er góð og líklega þörf.
En eiga forystumenn Alþýðuflokksins við
hað, að flokkurinn sé flokkur íslenzkra
sósíalista, eða hafa þeir gleymt því að
orðið jafnaðarmaður var samheiti, eða
samstöðuorð orðsins sósíalisti?
Nöfn á flokkum segja ekki mikið. Til
eru hægri flokkar sem kenna sig við
vinstri stefnu. Til eru einnig flokkar sem
kenna sig við lýðræði, þó að þeir séu
olýðræðislegir í öllum vinnubrögðum.
Flokkar sósíalista heita líka ýmsum nöfn-
um og getur verið erfitt að átta sig á raun-
verulegri stefnu þeirra. Jafnaðarmanna-
flokkur sem um leið er sósíalistaflokkur,
getur ekki verið einkavæðingarflokkur.
Hann getur ekki stutt einkavæðingu
skóla, sjúkrahúsa, vatnsveitna, raforku-
vera eða almenningsbanka og lánasjóða.
Það skiptir miklu máli að vera sósíalisti í
reynd, ekki aðeins í orði.
Nú um stund hefir nafnið sósíalisti þok-
að nokkuð fyrir samheiti þess orðs, orð-
inu jafnaðarmaður. Það er eins og ýmsum
þyki það orð þægilegra, kannski vegna at-
burða úti í heimi. Slíkt er auðvitað mesti
misskilningur og sýnir ranga túlkun á
upphaflegri merkingu orðsins. Slys sósíal-
ista úti í heimi eða misgjörðir og pólitísk
hentistefna ýmissa jafnaðarmannaflokka
erlendis eða hérlendis, breyta ekki neinu
um grundvallarstefnumið þeirrar þjóðfé-
lagsstefnu, sem boðar jafnrétti og félags-
legt öryggi til handa öllu vinnandi fólki,
það hefir engin áhrif á réttmæti þeirrar
stefnu sem tekur hagsmuni allra þjóðfé-
lagsþegna fram yfir gróðamöguleika ör-
fárra útvaldra.
Sósíalismi-jafnaðarstefna og sósíalisti-
jafnaðarmaður; þessi orð vísa til hugsjón-
ar, til þjóðfélagsgreiningar, til jafnréttis
og félagslegrar samábyrgðar. Þess orð eru
andstæður óréttlætis, valdníðslu og sér-
hagsmuna. Peim sannindum getur enginn
breytt. Þeir sem eru sannir jafnaðarmenn
eru jafnframt sannir sósíalistar. Þeir sem
ekki vilja vera sósíalistar, eru þá heldur
ekki jafnaðarmenn, í réttri og sannri
merkingu þess orðs.
23