Réttur - 01.01.1993, Page 43
'öngum var kallað jafnvægi stéttanna.
^etta jafnvægi skildu forráðamenn flokk-
anna og lýðræðið — þingræðið — sem hér
er verið að lýsa nær að þrífast vegna þessa
jafnvægis stéttanna sem þá og síðan var
staðreynd í íslenskum stjórnmálum allt til
ársins 1991.
Og svo eru það mennirnir. En fyrst
kannski flokkarnir. Greinilegt er að Al-
Þýðuflokkurinn er tregastur allan tímann
og hann gerir meira að segja kröfu til
Þess að 17. júní sé felldur út úr bráða-
birgðaákvæði stjómarskrárinnar sem gildis-
tökudagur! Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur fallast á það en lýsa því jafn-
*ramt yfir að þeir séu staðráðnir í að hafa
Þessa skoðun Alþýðuflokksins að engu.
Framsóknarflokkurinn virðist kannski
tregur framan af. Það helgaðist af því að
hann var andvígur kjördæmabreyting-
Ur>ni og var í raun eini stjórnarandstöðu-
iiokkurinn þann tíma sem minnihluta-
stjórn Ólafs Thors sat í skjóli Sósíalista-
^iokksins og Alþýðuflokksins. En Fram-
soknarflokkurinn kom með í vinnuna af
*nllum myndugleik að lokum og var Ey-
steinn Jónsson formaður samvinnunefnd-
arinnar um stjórnarskrármálið og hefur
Vafalaust sem slíkur haft bein áhrif á
margar þeirra tillagna sem komu frá ríkis-
stjórninni inn í starf nefndarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur mjög hart
Iram í málinu; það kemur til dæmis fram
1 því er þeir geysast fram á rit- og ræðu-
völlinn Bjarni Benediktsson og Ólafur
^hors sumarið 1943. Þótti öðrum flokk-
Uni einkum Alþýðuflokknum og Fram-
soknarflokknum nóg um fyrirganginn.
Sósíalistaflokkurinn hafði 3 þingmenn í
uPphafi þessa máls sem hér er rakið.
Hann vann tvennar kosningar á árinu
ly42, fór fyrst í 6 svo í 10 þingntenn.
^ann var ekki með í fyrstu nefndunum,
en gengur að lokum fram sem gildur aðili
og á beina aðild að forystu málsins á al-
þingi: Með því að Einar er ritari sam-
vinnunefndarinnar og stjórnarskrár-
nefndarinnar í neðri deild, og með því að
Brynjólfur er formaður stjórnarskrár-
nefndarinnar í efri deild. Sósíalistaflokk-
urinn á því einn flokka aðild að nefnda-
forystunni í báðunt þingdeildunum. Og
það er óneitanlega ofboðlítið spaugilegt
að Bjarni Benediktsson er ritari hjá
Brynjólfi í nefndinni í efri deild og verður
ekki séð annað en að vel hafi farið á með
þeim félögum. Fullvíst má telja að þetta
samstarf þeirra Einars og Brynjólfs við
Ólaf og Bjarna í lýðveldismálinu hafi lagt
grunninn að nýsköpunarstjórninni sem
svo var mynduð síðar á árinu 1944.
Af fundargerðunum verður það hins
vegar lesið að það eru þrír einstaklingar
auk ríkisstjórnarinnar sem hafa haft mest
áhrif á málið og einstök atriði þess en það
eru þeir Bjarni Benediktsson, Eysteinn
Jónsson og Einar Olgeirsson. Stefán Jó-
hann Stefánsson var í nefndunum fyrir
Alþýðuflokkinn. Það var ekki öfundsvert
hlutskipti frá sögulegu sjónarmiði séð, en
hann virðist þrátt fyrir andstöðu Alþýðu-
flokksins, hafa verið allvirkur í nefndar-
starfinu og á aðild að mörgum þeirra til-
lagna sent samþykktar voru að lokum.
Semsagt lýðræði. Og það er svo bara til
marks um gráglettni sögunnar að síðan
eyddu sumir þeirra manna sem unnu mest
með Einari Olgeirssyni við að stofna lýð-
veldi á íslandi allri ævi sinni og nteira til í
það að sýna fram á að hann hefði alla sína
ævi gengið erinda óþjóðlegra annarlegra
útlendra afla. En það kom ekki fram í
störfum stjórnarskrárnefndanna. Og til-
lögur hans voru ekki síður mikils metnar
en annarra að ekki sé fastara að orði
kveðið. Svona er sagan líka skemmtileg.
43