Réttur - 01.01.1993, Side 67
var í ánauð, og fulltrúi stéttar, sem er í
ánauð, hefur markað alla pólitíska bar-
áttu hans þeirri reisn og víðfeðmi, sem er
aðall skapgerðar hans. Engum núlifandi
stjórnmálamanni íslendinga hefur sem
honum tekizt að gera málstað verkalýðs-
ins að málstað íslands. Hann hefur gert
kyndil íslenzkrar þjóðernisbaráttu að eld-
ingu íslenzkrar verkalýðshreyfingar. Og
hverju sinni, er hann sér íslenzku þjóð-
frelsi hættu búna, sker hann upp herör
meðal verkamanna og kveður þá til varna
í fremstu virki.“
„Kommúnistaflokkur íslands þoldi all-
ar þjáningar íslenzks verkafólks á árum
kreppunnar. Hann svalt með honum.
Hann þoldi með honum kylfuhöggin, sem
honum voru greidd af velöldum lögreglu-
mönnum. — Hann fylgdi verkamönnum
hin í tugthúsið og tók út refsingarnar,
sem þeir voru dæmdir í. Hvar sem ís-
lenzkir verkamenn áttu í baráttu fyrir
brauði sínu og lífi, hvar sem þeir vörðu
kjör sín og lífsréttindi — þar var einnig
Kommúnistaflokkur íslands. Og þar var
Einar Olgeirsson."
„Lífsstarf Einars Olgeirssonar hefur
verið með þeim hætti, að hann hefur orð-
ið að skera við nögl sér það, sem kallað er
einkalíf. Skyldustörfin, önn líðandi stundar
Þjóðviljinn 14. ágúst 1952. - Aukablað.
hafa jafnan hrópað á hann og alltaf hefur
hann sinnt kallinu. Hann hefur leyst af
hendi öll flokksstörf, sem honum hafa að
höndum borið, hvort sem þau voru há
eða lág, og hann hefur unnið þau með
sama dugnaðinum og verkhyggninni.
Vinnufúsari mann hef ég aldrei þekkt.
Hann er eins og íslenzki hesturinn, viljinn
og skapið hið sama, og linar ekki á sprett-
inum fyrr en hann springur af mæði.“
67