Réttur - 01.01.1993, Page 81
Og þeim, sem völdin hafa í þessu þjóð-
fjelagi er auðvitað illa við Socialistana og
þeir munu varla veita þeim mörg em-
bætti. En hvað gerir það til? Bestu menn
þjóðarinnar eru þeir sem tekið hafa mál-
stað hinna undirokuðu og kúgurunum er
aldrei vel við þá. Hvernig var Dönum við
Jón Sigurðsson? Aldrei fjekk hann em-
bætti. Og þetta er nú það minsta. Oft
hafa kúgararnir látið drepa þá, t.d. Húss,
Sócrates, Krist o.fl. Nú í stríðinu voru 3
jafnaðarmannaforingjar myrtir af yfir-
völdunum, Jaures, Liebknecht og Rosa
Luxemburg. En það kemur varla fyrir
hjer.
Socialisminn er ekki af sama heimi eins
og venjuleg pólitík, því hún snýst um bit-
linga, embætti, völd, auð, sjerrjettindi
o.s.frv., en Socialisminn kemur hverjum
einstökum manni við. Socialisminn hugs-
ar um að bæta öll lífskjör einstaklingsins,
en hvenær hefur pólitíkin hugsað um
það? Það má því enginn daufheyrast við
honum, það er stefnan, sem breiðst hefur
meira út um heiminn en dæmi eru til fyr;
það er stefnan, sem á framtíðina, ef auð-
mennirnir eyðileggja ekki framtíðina og
láta menningunni fara að hnigna, eins og
þeim er vel trúandi til, því alls ills má
vænta af þeim mönnum, sem á 20. öldinni
hleyptu af stað ægilegustu styrjöldinni,
sem háð hefur verið og gera nú ekkert
annað en búa sig út í aðra til.
I*að getur vel skeð að jeg studeri en
lífsstarfíð veröur að iíkinduni helgað Soc-
ialismanum. Við tölum um það í sumar.
Olgeir Júlíusson.
Það gengur alt eins í Kaupangi, en
hræddur er jeg um að peningarnir fari að
verða litlir. Júlli er að læra að verða loft-
skeytamaður. Ekki veit jeg enn þá hvort
Stína kemur með norður, það er efasamt
hvort þau mega missa hana frá heimilinu.
Jeg bið ákaflega vel að heilsa mömmu,
Gógó og Hildigunni og Maju, þegar þið
skrifið næst.
Vertu svo blessaður og sæll og líði ykk-
ur ætíð sem best,
þinn elskandi sonur
Einar.
81