Réttur - 01.01.1993, Page 87
Af verklegri framsókn varð undrið í landsins æðum,
aflið sem fyrrum var hugsýn í skáldanna kvæðum
varð tækninnar afrek, hið stórvirka á hafi og storð,
hin stritandi þekking við orkunnar nægtaborð.
Með starfandi höndum og alhæfing anda og máls
býr afl þeirra hluta sem gera oss sterk og frjáls.
Vor straumþungu vötn flytja boðskap um birtu og varma,
og bylgjunnar hafknúnu rétta fram hvíta arma,
og gróðurlönd breiða oss til veizlunnar græna voð,
og gangan er hafin að þiggja hin miklu boð.
F>ví strengjum vér heit vor að stilla kröfunum hátt,
þá stækkar vor þjóð og eykur kraft sinn og mátt.
í list og í starfi því stærsta og hæsta skal voga,
og stefnan skal mörkuð af hugsjóna eldi og loga,
hvert átak skal miðað við fjöldans þekkingar feng,
og fegurstu vonirnar ofnar í hljómtaksins streng.
Svo baráttan öll verði birtunni og lífinu studd,
og Brautin hans Porsteins að lokum til enda rudd.
87