Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍRANAR HARÐORÐIR Íranar brugðust í gær hart við þeim yfirlýsingum evrópskra ráða- manna að vísa beri kjarnorkumálum þeirra til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Hótuðu þeir að hætta allri samvinnu við Evrópumenn en þeir hafa haft umsjón með viðræðum við Írana sem miðað hafa að því að leysa deilur um kjarnorkuáætlanir þeirra. George W. Bush Bandaríkjaforseti vill að fundin verði friðsamleg lausn á deilunni en hann sagði hins vegar í gær ljóst að heiminum stæði mikil ógn af því ef Íran kæmi sér upp kjarnorkusprengju. Sagði hann að „rökrétt“ væri að mál þeirra færu nú fyrir öryggisráð SÞ. Heildstæður lagarammi Í frumvarpi til nýrrar ramma- löggjafar fyrir háskóla er ætlunin að til verði heildstæður lagarammi um starfsemi háskóla sem taki mið af örri þróun á háskólastiginu hér- lendis og erlendis undanfarin ár og á hann að ná til allra háskóla landsins óháð rekstrarformi þeirra. Frumvarpið var kynnt á rík- isstjórnarfundi í gær. Banaslys á Sæbraut Vagnstjóri hjá Strætó bs, lét lífið í árekstri stætisvagns og flutningabíls í gærmorgun. Slysið átti sér stað á Sæbraut. Maðurinn sem lést var með tóman vagn þegar slysið varð. Tveir aðrir bílar lentu í árekstrinum en ekki urðu teljandi meiðsl á nein- um í þeim. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Bréf 40/41 Úr verinu 11 Minningar 42/47 Viðskipti 14 Kirkjustarf 48/49 Erlent 16/20 Skák 53 Minn staður 22 Myndasögur 54 Landið 23 Dagbók 54/57 Akureyri 26 Víkverji 54 Árborg 27 Staður og stund 56 Suðurnes 27 Velvakandi 55 Daglegt líf 28/29 Af listum 62 Ferðalög 30/31 Bíó 62/65 Menning32/33, 58/65 Ljósvakamiðlar 66 Forystugrein 34 Staksteinar 67 Umræðan 36/41 Veður 67 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir kynningarbæklingur frá Heims- ferðum. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %            &         '() * +,,,                              KRAKKARNIR í skólanum á Grundarfirði tóku fagn- andi á móti snjónum sem kyngt hefur niður síðustu tvo daga. Það var að minnsta kosti mikið fjör á skólalóðinni þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um bæinn. Mikil uppbygging hefur verið í bæjarfélaginu að und- anförnu og börn og fullorðnir bjartsýn á framtíðina. Sérstaklega eru íbúar á Snæfellsnesi ánægðir með framhaldsskólann sem er nú á sínu öðru starfsári. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gleði við skólann í Grundarfirði ÞEIR sem hafa hug á því að gerast dagforeldrar í Reykjavík geta feng- ið bráðabirgðaleyfi, er þeir skrá sig á námskeið fyrir dagforeldra, að uppfylltum öllum öðrum skilyrðum. Þetta segir Regína Ásvaldsdóttir sviðsstjóri þjónustu- og rekstrar- sviðs Reykjavíkurborgar. Þessi und- anþága er veitt, segir hún, til að bregðast við skorti á dagforeldrum á höfuðborgarsvæðinu. Nú starfa alls 149 dagforeldrar í Reykjavík en til samanburðar voru þeir 164 árið 2004. Regína segir að hingað til hafi dagforeldrar þurft að sækja sjötíu klukkutíma námskeið á vegum borgarinnar til að fá leyfi til að starfa. Auk þess þurfi þeir að uppfylla ýmis önnur skilyrði, s.s. hreint sakavottorð, vottorð frá barnaverndaryfirvöldum, ákveðnar kröfur um húsnæði og fleira. Menntasvið borgarinnar gefur út leyfin. Foreldrar hafi samband við næstu þjónustumiðstöð „Nú höfum við hins vegar ákveðið að gefa út bráðabirgðaleyfi, þ.e. það er nóg að viðkomandi byrji á nám- skeiði dagforeldra; hann þarf ekki að vera búinn að ljúka því.“ Hún segir að í reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum sé heimilt að veita bráðabirgðaleyfi í allt að sex mánuði, þar til dagforeldrar hafi lokið námskeiði. „Þeir þurfa að upp- fylla öll hin skilyrðin.“ Að sögn Reg- ínu hefst næsta námskeið 6. febrúar nk. Allt að tíu manns hafa skráð sig á námskeiðið, en Regína vonast til þess að fleiri bætist í hópinn. Að sögn Regínu skortir yfirlit yfir þann fjölda foreldra sem bíður eftir plássi fyrir börn sín hjá dagforeldr- um. Dagforeldrar séu sjálfstætt starfandi og hlutverk borgarinnar hafi verið að miðla upplýsingum til foreldra um nöfn dagforeldra með tilskilin leyfi. Hún kveðst hins vegar vilja ná yfir þann fjölda sem bíður eftir plássi í borginni. Það ætlar hún að gera með því að hvetja foreldra til þess að skrá sig hjá næstu þjón- ustumiðstöð borgarinnar. „Þannig viljum við finna út hve vandinn er stór.“ Mikill skortur á dagforeldrum í Reykjavík Borgin ætlar að veita bráðabirgðaleyfi Foreldrar hvattir til að láta vita um börn á biðlista Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær var lagt fram lagafrumvarp til breytinga á lögum um Kjaradóm og kjaranefnd. Með því er ætlunin að hækkun launa æðstu embættis- manna samkvæmt ákvörðun Kjaradóms frá 19. desember verði afnumin frá og með 1. febrúar og að hún verði 2,5%. Samþykkt var á ríkisstjórnar- fundinum að leggja frumvarpið fyrir þingflokka stjórnarflokkanna og samþykkti þingflokkur sjálf- stæðismanna það fyrir sitt leyti í gær. Hjálmar Árnason, þing- flokksformaður framsóknarmanna, gerir ráð fyrir því að frumvarpið verði samþykkt í sínum þingflokki eftir helgi. Frumvarpið er lagt fram í fram- haldi af þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar fyrir áramót að tek- in verði aftur ákvörðun Kjaradóms frá 19. desember. Gerir frumvarp- ið ráð fyrir að laun embættis- manna og þjóðkjörinna fulltrúa, sem heyra undir Kjaradóm, hækki um 2,5% frá og með 1. febrúar nk. Jafnframt því verði úrskurði Kjaradóms frá 19. desember sl. hnekkt. Gert er ráð fyrir að frum- varpið verði lagt fram þegar Al- þingi kemur saman þriðjudaginn 17. janúar. Frumvarp um kjaradóm sam- þykkt í ríkisstjórn KAUPÞING banki seldi í gær 6,03% hlutafjár í í Mosaic Fashions, alls 175 milljónir hluta. Flest bendir til þess að sölugengi hafi verið 18 krónur/hlut sem gerir að heildar- andvirði viðskiptanna var tæplega 3,2 milljarðar króna. Hluturinn var keyptur við skrán- ingu Mosaic í Kauphöll Íslands í sumar og miðað við skráning- argengið 14,4 krónur/hlut var inn- leystur hagnaður 630 milljónir. Eftir viðskiptin á Kaupþing banki 3,83% hlutafjár í félaginu. Í gær voru einnig tilkynnt við- skipti starfsmannasjóðs Mosaic með bréf í félaginu en þar var um sölu á tæplega 4 milljónum hluta að ræða. Andvirði viðskiptana er um 72 milljónir króna og í tilkynningu segir að þau séu gerð til þess að fjármagna skuldbindingar við starfsmenn Mosaic Fashions. Innleystur hagn- aður 630 milljónir LÖGREGLAN í Keflavík rannsakar nú stórt fíkniefnamál sem kom upp á fimmtudagskvöld þegar karlmaður var handtekinn á heimili sínu í Sand- gerði vegna gruns um fíkniefnamis- ferli. Við húsleit hjá honum fundust rúmlega 800 grömm af hassi, sem maðurinn viðurkenndi að væri ætlað til sölu. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu en málið verður rann- sakað áfram og síðan sent ákæru- valdi til frekari meðferðar. Lög- reglan á Keflavíkurflugvelli aðstoðaði við aðgerðina. Tekinn með 800 g af hassi ENGAN sakaði þegar bíll í eigu norrænna friðargæsluliða á Srí Lanka var sprengdur í loft upp í austurhluta bæjarins Batticaloa í gær. Fimm Íslendingar eru á Srí Lanka á vegum Íslensku frið- argæslunnar og býr einn þeirra í Batticaloa. Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir að hann sé óhultur. Hann hef- ur aðsetur ekki langt frá þeim stað sem sprengingin varð á. „Það er búið að tala við hann og hann hefur staðfest að hann sé óhultur,“ segir hún. „Við fylgjumst vel með okkar fólki þarna, eins og annars staðar,“ segir hún og bætir því við að ekki sé talin ástæða til að kalla fólk heim. Sprengjunni var komið fyrir í bíl sem tilheyrði friðargæsluliðum samnorræna verkefnisins SLMM. Bíllinn var á athafnasvæði þeirra þegar sprengingin varð, að því er fram kemur í frétt AFP. Þar kemur fram að verið sé að rannsaka málið. Íslendingar óhultir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.