Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR www.icelandair.is/london London ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 30 92 7 0 1/ 20 06 Innifali›: Flug báðar leiðir með flugvallarsköttum. Verð frá 25.690 kr. Þetta flug gefur 3.000 Vildarpunkta ANNAR nýrra ritstjóra DV tók í gær á móti lista með nöfnum 32.044 manna sem skrifað hafa undir áskorun til blaðamanna og ritstjóra DV um að endurskoða ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun um menn og viðkvæm málefni. Borgar Þór Einarsson, einn þeirra sem stóðu að undirskriftasöfnuninni, sagði í samtali við Morgunblaðið að skilaboðin gætu vart verið skýrari og það hlyti að bíða nýrra ritstjóra DV að bregðast við þess- ari áskorun svo stórs hluta þjóð- arinnar. Að undirskriftasöfnuninni stóðu deiglan.com, Samband ungra sjálf- stæðismanna, Ungir jafnaðar- menn, Stúdentaráð HÍ, múrinn.is, Samband ungra framsókn- armanna, tíkin.is, Ung frjálslynd, Heimdallur, Ung vinstri græn, Vaka, Röskva og H-listinn. Vefrit- ið deiglan.com annaðist fram- kvæmdina. Hún hófst kl. 11 að morgni miðvikudagsins 11. janúar og stóð í 48 tíma. Borgar Þór Einarsson sagði að áskorunin um að ritstjórnarstefnu DV verði breytt ætti ekki síður við nú þegar ritstjóraskipti hefðu orð- ið á blaðinu. Blaðið gæti ekki skotist undan ábyrgð með því að ritstjórarnir tveir sem stýrt hefðu blaðinu undanfarið hættu störfum, hinir nýju ritstjórar hlytu að taka mark á þeim skilaboðum sem fæl- ust í undirskriftasöfnuninni. Morgunblaðið/Þorkell Borgar Þór Einarsson (t.v.) afhenti öðrum hinna nýju ritstjóra DV, Páli Baldvin Baldvinssyni, undirskriftalistann í gær. 32.044 skrifuðu undir áskorunina um að breyta ritstjórnarstefnu DV, en söfnunin stóð í 48 klukkutíma. Afhentu ritstjóra DV 32.044 undirskriftir PÁLL Baldvin Baldvinsson, annar tveggja nýrra ritstjóra DV, segir það tilfinningum blandið að taka við ritstjórastarfi við þær aðstæður sem ríkt hafa undanfarna daga á blaðinu. „Síðasta vika var frekar erfið fyrir stuðningsmenn DV víða í samfélaginu, lesendur þess, svo ekki sé talað um starfsfólkið hér. Páll Baldvin segist hafa haft lítinn tíma til að hugsa sig um þegar hon- um barst tilboð um að taka við starfinu. „En alveg nógu mikinn tíma til þess að sjá að mér fannst þetta spennandi verkefni og ég ákvað að taka þessu atvinnuboði.“ Aðspurður um nýja ritstjórnar- stefnu DV segist Páll Baldvin lítið geta sagt að svo stöddu. „Við erum náttúrlega búin að sæta mjög harkalegri umfjöllun og vera undir mikilli smásjárrýni á það hvað hér hefur verið gert. Fráfarandi rit- stjórar taka ábyrgð á þeirri rit- stjórnarstefnu, sem hér hefur verið rekin um nokkurra missera skeið, með því að víkja úr starfi. Ráðnir eru nýir ritstjórar og það er ljóst að með nýjum mönnum koma að ein- hverju leyti nýir siðir. Við Björgvin höfum satt best að segja ekki haft mikið ráðrúm til þess að velta því fyrir okkur hvernig við komum til með að höndla þá stefnu sem hér hefur verið og í hverju hún breytist. En á starfsmannafundi í morgun var gerð grein fyrir því að gerðar yrðu einhverjar breytingar á rit- stjórnarstefnunni.“ Páll Baldvin vill ekkert fullyrða um það hvort ný ritstjórnarstefna á DV verði ólík fyrri stefnu. „Það er ákaflega óráðlegt að vera með full- yrðingar um það. Við erum hálfn- aðir í gegnum fyrsta vinnudaginn okkar sem hefur að stórum hluta farið í fundahöld og samtöl við fréttamenn annarra fjölmiðla þann- ig að við höfum varla ráðrúm til að koma út blaði á morgun og und- irbúa blað fyrir mánudag. En við komum til með að vanda okkur og reyna að gefa út gott blað.“ Varðandi nafna- og myndbirting- ar í sakamálum í DV segir Páll Baldvin það vera til skoðunar hvað gert verði í þeim efnum. Skjálfti farið um allt samfélagið Páll Baldvin var áður menning- arritstjóri DV og sagði í leiðara sín- um á fimmtudag um umfjöllun DV um meint kynferðisbrot karlmanns og sjálfsvíg hans eftir hina mjög svo umdeildu frétt DV af málinu: „Þjóð- félagsleg mein verða ekki læknuð með þögn. Afskiptaleysi bætir ekki dulsmál.“ (DV 12.1.) Aðspurður hvort hér sé um að ræða vörn fyrir þá ritstjórnarstefnu sem rekin hef- ur verið á DV að undanförnu segir Páll Baldvin að frekar sé um að ræða vörn fyrir þá stefnu sem rekin sé víða um heim í rekstri blaða og fréttastofa. „Virtir lögfræðingar hafa gengið fram og óskað eftir því, og einn þeirra lagt fram frumvarp á þingi um, að hert verði verulega ákvæði um einkalíf. Um allt sam- félagið hefur farið einhver skjálfti sem kallar á lokun frekar en opnun. Mér finnst það miður en skil samt sem áður mjög vel hvers vegna þessar tilfinningar eru á reiki í þjóðarsálinni. Ég er alveg sann- færður um það að með smá tíma komi fólk til með að líta á öll þessi mál af meiri sanngirni en áður var gert, og meiri skynsemi en gert var í síðustu viku.“ Hann segir það verða nokkuð verk að endurreisa trú fólks á DV, sem gengið hafi í gegnum margt í 95 ára sögu sinni. „DV hefur oft gengið í gegnum ansi miklar hremmingar og lent á milli fylkinga í samfélaginu alla sína sögu. Þetta er náttúrlega harðasta snerra milli almennings og blaðs sem hér hefur sést í langan tíma. Að því leyti er gleðilegt að almenningur geti á ör- skömmum tíma sameinast um eitt- hvað ákveðið markmið og komið því á framfæri.“ Páll Baldvin Baldvinsson tekur við ritstjórastarfi á DV „Með nýjum mönnum koma að einhverju leyti nýir siðir“ BJÖRGVIN Guðmundsson sem ráð- inn var ritstjóri DV í gær ásamt Páli Baldvin Baldvinssyni boðar nýja rit- stjórnarstefnu DV sem rúmast innan siðareglna Blaðamanna- félags Íslands (BÍ). „Nýjum mönnum fylgja nýir siðir og við munum móta rit- stjórnarstefnu eftir okkar áherslum,“ segir Björgvin. „Ég tel að sú ritstjórnarstefna muni rúmast innan siðareglna Blaðamannafélags Íslands. Áherslurnar verða fjöl- breyttari, við munum leggja meiri áherslu með minni tilkomu á málefni sem tengjast stjórnmálum og við- skiptum auk þess að halda áfram að fjalla um dóms- og lögreglumál.“ DV mun ganga lengra Björgvin segir ritstjórana hafa rætt um nafna- og myndbirtingar í sakamálafréttum með starfsmönn- um DV í gærmorgun. „Við höfum ekki klárað þá umræðu en það er ljóst að DV mun ganga lengra en Fréttablaðið og Morgunblaðið í þeim efnum, en að sjálfsögðu taka tillit til þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á undanförnum dögum.“ Aðspurður hvort erfitt verði að endurvekja tiltrú fólks á DV segist Björgvin það vera eitt af meginverk- efnum nýrra ritstjóra að endurvekja traust lesenda blaðsins. „Forsenda þess að halda úti dagblaði er að les- endur treysti því sem þar er sagt og séu sáttir við þá umfjöllun sem í blaðinu birtist.“ Björgvin segir erfitt að taka við ritstjórastarfi undir þeim kringum- stæðum sem nú ríkja enda hafi blað- ið sætt mikilli gagnrýni. „Það verður ærið verkefni að gera blaðið þannig að fjallað verði um málefni líðandi stundar af vissri auðmýkt en þó með festu þannig að sá broddur sem verið hefur í fréttaflutningi DV tapist ekki.“ Hann fékk vitneskju um það á fimmtudagskvöldi að ritstjórar DV hygðust segja upp störfum og fékk nokkra klukkutíma til að íhuga hvort hann vildi taka verkefnið að sér. „Eftir vandlega íhugun ákvað ég að þetta væri spennandi en erfitt verk- efni og gæti ekki annað en tekist á við það,“ segir Björgvin. Björgvin Guðmundsson, ritstjóri DV Boðar ritstjórnar- stefnu sem rúmast innan siðareglna BÍ Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRAR DV, Jónas Krist- jánsson og Mikael Torfason, segja í fréttatilkynningu að þeir hafi ákveðið að segja upp störf- um til að skapa frið um blaðið. „DV hefur lent í ófriði í um- ræðum í þjóðfélaginu undan- farna daga. Nauðsynlegt er að skapa að nýju ró um blaðið og koma á vinnufriði hjá öllu því dugandi starfsfólki, sem unnið hefur á ýmsum sviðum þess. Til þess að svo megi verða höfum við sagt af okkur sem ritstjórar blaðsins frá og með deginum í dag,“ segir í fréttatilkynningu sem ritstjórarnir sendu frá sér í gærmorgun. Ekki náðist í Jónas eða Mika- el í gær. Vildu skapa frið um DV

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.