Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
edda.is
Kilja á góðu verði
1.799 kr.
Trúarátök og múgsefjun
Mögnuð saga um öflugar hreyfingar í
trú og verkalýðsbaráttu, og hvernig
sterkir leiðtogar geta heillað fólk og
stýrt lífi þess.
Áhrifamikil bók byggð á sannsögulegum
atburðum og raunverulegum persónum
eftir einn fremsta rithöfund Norður-
landa, Per Olov Enquist, höfund
Líflæknisins.
GUNNAR Smári Egilsson forstjóri
Dagsbrúnar hf. segir stjórn félagsins
ekki leggja mat á ákvörðun fráfarandi
ritstjóra DV um að segja upp vegna
þess ófriðar sem geisað hefur um rit-
stjórnarstefnu blaðsins að undan-
förnu. „Við virðum ákvörðun þeirra
sem ég tel að sé öllum skiljanleg,“
segir Gunnar Smári. „Við könnumst
við sambærileg dæmi þess að þegar
mikill ófriður skapast um tiltekna
starfsemi, þá meta forystumenn
hennar það svo að erfitt sé að skapa
aftur frið öðruvísi en að þeir víki í von
um að góðar hliðar starfseminnar fái
að dafna.“
Varðandi að-
komu Dagsbrún-
ar að DV málinu
með tilliti til þeirr-
ar stefnu sem rit-
stjórar hafa rekið,
andstætt siða-
reglum Blaða-
mannafélags Ís-
lands, segist
Gunnar Smári
ekki telja það rétt
af hálfu Dagsbrúnar að gera reglur
BÍ sem fagfélags að grundvelli í
rekstri 365 prentmiðla. „Í þessu felst
ekki nein skoðun á siðareglunum,
heldur vek ég athygli á því að þær eru
siðareglur fagfélags blaðamanna og
þar með ritstjóranna. Um þær er
stundum deilt og ég sé ekki ástæðu til
að Dagsbrún gangi fram fyrir skjöldu
í þeim efnum. Afstaða Dagsbrúnar
snýst fyrst og fremst um þann laga-
ramma sem gildir, þ.e. að ábyrgðin er
ritstjóranna samkvæmt prentlögum
og sambærilegum ákvæðum laga um
ljósvakamiðla. Þetta er í samræmi við
vestræna hefð, þ.e. að ritstjórar móta
stefnu sinna blaða og framfylgja
henni. Stjórnir félaga sem eiga miðl-
ana geta ekki axlað þá ábyrgð að vera
yfirritstjórn yfir hinum ólíku miðlum.
Ég held að engum þyki það eftirsókn-
arvert.“
Gunnar Smári neitar því að stjórn
Dagsbrúnar hafi haft nokkur áhrif á
ákvörðun ritstjóra DV. „Það braut á
ritstjórn DV og ritstjórarnir töldu
eðlilegt að víkja,“ segir hann.
Um nýja ritstjóra DV, þá Björgvin
Guðmundsson og Pál Baldvin Bald-
vinsson, segir Gunnar Smári að þar
fari tveir kröftugir fjölmiðlamenn.
„Þeir eru ólíkir um sumt en eiga það
sameiginlegt að vera eldheitir fjöl-
miðlamenn með lifandi áhuga á fjöl-
miðlum. Þeir eru líka vel gerðir og
með afbrigðum greindir.“
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar móðurfélags 365 prentmiðla
Ákvörðun ritstjóra skiljanleg
Gunnar Smári
Egilsson
„Ætlunin er að eiga friðsæla,
bæna- og íhugunarstund þar sem
þessi mál eru borin upp í Guðs
helgidómi í trú von og kærleika,“
segir ennfremur.
Fram kemur einnig að lands-
þekktir tónlistarmenn muni flytja
tónlist við messuna. Þar á meðal
megi nefna þær Sigrúnu Hjálmtýs-
dóttur söngkonu og Móniku Abend-
roth hörpuleikara og hjónin Guð-
rúnu Gunnarsdóttur söngkonu og
Valgeir Skagfjörð leikara og tónlist-
armann. Önnur tónlist verði í hönd-
um Önnu Sigríðar Helgadóttur og
Carls Möllers, auk Fríkirkjukórs-
ins.
Þá munu Fríkirkjuprestarnir
Hjörtur Magni Jóhannsson og Ása
Björk Ólafsdóttir þjóna fyrir altari.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti
að lokinni messu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík verður
með messu helgaða réttindabaráttu
samkynhneigðra á morgun, sunnu-
daginn 15. janúar. Fulltrúar sam-
kynhneigðra stíga í predikunarstól
og landsþekktir tónlistarmenn
munu flytja tónlist.
Í frétt frá Fríkirkjunni kemur
fram að undanfarið hafi farið fram
töluverð umræða í samfélaginu um
réttarstöðu samkynhneigðra. Fyrir
Alþingi liggi lagafrumvarp sem miði
að því að bæta réttarstöðu þeirra
með breytingu ýmissa laga. Einnig
hafi ummæli Biskups Íslands bæði í
nýárspredikun hans sem og við fjöl-
miðla kallað á viðbrögð fólks.
Fram kemur að fulltrúar samkyn-
hneigðra, þau Ragnhildur Sverris-
dóttir og Sigursteinn Másson, muni
stíga í predikunarstól og flytja pre-
dikunarorð ásamt safnaðarprestum.
Messa helguð réttinda-
baráttu samkynhneigðra
STJÓRN Dagsbrúnar, sem á meðal
annars DV, ræddi í gær málefni
blaðsins og þá umræðu sem orðið hef-
ur um ábyrgð eigenda DV í kjölfar
láts manns á Ísafirði fyrr í vikunni. Í
yfirlýsingu, sem Þórdís J. Sigurðar-
dóttir formaður sendi fjölmiðlum í
gær, segir að aðkoma stjórnarinnar
að fjölmiðlunum felist í almennri
stefnumótun.
„Stjórnin virðir þá ákvörðun rit-
stjóra DV að láta af störfum.
Vegna umræðu undanfarinna daga
um ábyrgð eigenda og stjórnar á efni
fjölmiðla á vegum dótturfélagsins 365
tekur stjórnin fram að hún starfar
eftir starfsreglum þar sem m.a. er
kveðið á um að stjórnarmönnum sé
óheimilt að hlutast til um einstök um-
fjöllunarefni fjölmiðla í eigu félagsins.
Aðkoma stjórnarinnar að fjölmiðlun-
um felst í almennri stefnumótun.
Stjórnin ítrekar að Dagsbrún
stendur vörð um tjáningarfrelsi,
prentfrelsi, upplýsingafrelsi og gildi
lýðræðis og mannréttinda. Félagið
virðir grundvallarreglur frjálsrar
blaðamennsku og leggur áherslu á
sjálfstæði ritstjórna, m.a. gagnvart
eigendum, auglýsendum, hagsmuna-
hópum og opinberum aðilum. Félagið
þjónar almenningi í landinu og vill
eiga traust hans og vera jákvætt afl til
umbóta, meðal annars með því að
hlúa að gagnrýninni, sjálfstæðri og
óháðri umræðu, innan ramma gild-
andi laga,“ segir í yfirlýsingu stjórnar
Dagsbrúnar.
Leggur
áherslu á
sjálfstæði
ritstjórna
SNORRI Snorrason, verktaki á
snjómoksturbíl, segir að hann hafi
fylgt reglum þegar hann var við störf
á Öxnadalsheiði á mánudag, en ung
kona velti bíl sínum á heiðinni. Hún
undraðist í Morgunblaðinu í gær, að
vegfarendur skyldu ekki stansa til að
veita aðstoð og beindi orðum sínum
m.a. að ökumanni snjómokstursbíls-
ins.
Snorri segir að hann hafi ekið
fram Öxnadal þegar hann mætti bíl,
um 5–10 km frá slysstaðnum. Bíllinn
hefði blikkað á sig ljósum. Hann hafi
ekið áfram enda ekkert sem benti til
að bíllinn eða farþegar í honum væru
í vandræðum. Í Bakkaselsbrekkunni
hafi hann ekið fram á bíl utan vegar.
Hann sagðist hafa stansað og kannað
hvort einhver væri í bílnum, en það
bæri starfsmönnum við snjómokstur
að gera samkvæmt starfsreglum
Vegagerðarinnar. Hann sagðist jafn-
framt hafa tilkynnt strax að bíll væri
utan vega á þessum stað.
Snorri segir að fleiri tugir bíla
blikki sig þegar hann sé við störf og
útilokað sé að stansa og ræða við bíl-
stjóra í hvert sinn sem það gerist.
Hann segir að í þessu tiltekna máli
hafi ekki verið um það að ræða að
manneskja í nauð hafi veifað til sín.
Vann í
samræmi
við reglur
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir að
sér hafi ekki borist neitt formlega
frá Reykjavíkurborg varðandi við-
skipti með Landsvirkjun og hún
muni því að svo stöddu ekki tjá sig
mikið um þá ákvörðun borgarinnar
að selja ekki eignarhlut sinn í fyr-
irtækinu.
„Það var borgin sem átti upphafið
að þessu ferli og ef Reykjavíkurborg
hefur skipt um skoðun þá reikna ég
með að verða upplýst um það form-
lega,“ sagði Valgerður.
Hún sagðist bíða með frekari við-
brögð þar til henni hefði verið til-
kynnt um þessar lyktir mála með
formlegum hætti.
Borgin átti frumkvæðið
að viðræðum
Morgunblaðið/RAX
margt verði um manninn í brekk-
um í Breiðholti og víðar um
helgina.
Margir úti að leika
KRAKKARNIR í Hólabrekkuskóla
í Breiðholti eru duglegir að leika
sér úti þessa dagana enda er engin
ástæða til að sitja inni yfir tölvum
eða sjónvarpi þegar snjórinn bíður
eftir manni. Búast má við að
♦♦♦
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði í
nógu að snúast í gær, vegna mikillar
ófærðar. Segir lögreglan að hún hafi
sinnt um þrjátíu árekstrum víða um
borg vegna hálku og ófærðar. Lík-
legt er að fleiri hafi lent í árekstri, en
ekki kallað til lögreglunnar. Ásgeir
Þór Ásgeirsson, aðalvarðstjóri lög-
reglunnar í Reykjavík, segir að
margir bílar hafi verið illa búnir fyrir
slíka ófærð.
Yfir þrjátíu
árekstrar