Morgunblaðið - 14.01.2006, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
EFTIR um það bil 4,8 milljarða kíló-
metra ferðalag á sjö árum stefnir nú
bandaríska geimfarið Stardust til
jarðar með dýrmætan farm: sýni af
rykögnum sem taldar eru vera elstu
efnin í sólkerfinu.
Eftir að Geimrannsóknastofnun
Bandaríkjanna, NASA, skaut Star-
dust á loft árið 1999 fór geimfarið
þrjár hringferðir umhverfis sólina og
meðalhraðinn var um 78.000 km/klst.
Geimfarið flaug í gegnum gas- og ryk-
hjúp halastjörnunnar Wild 2 sem
nefnd er eftir svissneska stjörnufræð-
ingnum Paul Wild. Geimfarið var að-
eins um 236 kílómetra frá kjarna
halastjörnunnar sem mun þá hafa
verið í um 389 milljón km fjarlægð frá
jörðu.
Á Stardust eru hlífðarskildir sem
vörðu geimfarið þegar rykagnir og
smásteinar frá halastjörnunni skullu
á því á sexföldum hraða byssukúlu.
„Sannkallaður fjársjóður“
Í geimfarinu er einnig sýnasafnari,
sem er eins og tennisspaði í laginu og
var notaður til að safna rykögnum úr
hjúpi halastjörnunnar. Á leiðinni að
stjörnunni safnaði geimfarið einnig
miðgeimsryki, örsmáum ögnum sem
talið er að séu leifar ævafornra
stjarna sem sprungu.
Uppruni halastjarna er rakinn til
svæða í útjaðri sólkerfisins. Þær eru
taldar leifar af því efni sem ekki náði
að safnast saman í stærri hnetti,
reikistjörnur og tungl, þegar sólkerf-
ið myndaðist fyrir um það bil 4,6 millj-
örðum ára. Geimvísindamenn vona
því að sýnin varpi ljósi á upprunaleg-
an efnivið sólkerfisins og gefi vísbend-
ingar um hvernig það myndaðist.
„Þetta er sannkallaður fjársjóður,“
sagði geimvísindamaðurinn Don
Brownlee um sýnin í geimfarinu.
„Þetta er frábært tækifæri til að
safna frumstæðasta efninu í sólkerf-
inu,“ hafði The New York Times eftir
Brownlee sem stjórnar rannsóknum
á geimrykinu. „Við búumst fastlega
við því að sumar agnirnar úr hala-
stjörnunni séu eldri en sólin.“
Talið er að flestar agnirnar séu að-
eins tæpur míkrómetri að stærð, eða
milljónasti úr metra og einn hundr-
aðasti af breidd mannshárs. Þær
verða rannsakaðar með öflugum smá-
sjám næstu árin og jafnvel áratugina.
Hraðamet í lofthjúpnum
Sýnin eru í hylki sem á að losna af
geimfarinu í um 111.000 km fjarlægð
frá jörðu og lenda á æfingasvæði
Bandaríkjahers í eyðimörk í Utah á
sunnudag. Gert er ráð fyrir því að
hraði hylkisins verði um 12,8 km á
sekúndu og að það fari hraðar í gegn-
um lofthjúp jarðar en nokkur annar
manngerður hlutur hefur gert til
þessa.
Eftir að sýnahylkið losnar af Star-
dust fer geimfarið á braut um sólina
og á að hringsóla um hana til eilífð-
arnóns.
Bandarískt geimfar flytur dýrmætan farm til jarðar eftir 4,8 milljarða kílómetra ferðalag
/
!"#$!
./$0(/'!102("0 /!!/
'$('!/$$!3(',+
,&!"'$/'&!3$2$ BF$+-
%#)
" $=+ %+ '
" #)*$+ 1 #A-
-*
#
$%)
$*#/+$+$
12,3($(/' &!,+ F 6#
/ P"
"+ 7$$ '"
/ 1 $/6-
G$ +
%F
#-
"+ A$$/6#H
4(0 ,3(/$'/
(',5$
'
67
,!&+ (',5$
$0 ,$,3(
#$!,!
&+&
(',5$
#$!,!
&! 2,3(
43($"$/0
(
'
$
/$2,3(
80
.3((
.3((
9
1-
:
%# &'
!',"
, 80
$ 3('
!/
/ %+" 1 # %
,#
)1
)&"++
/ ;'
A/&
$
" 6
+"++ #
< ;0/
A/&
$
" 6
+"++ :
#
:
=">3
/$& $5(,3($
(CB!5!
1.(/73
0!;,N(F!
Q@!:
Kemur með
geimryk
sem er eldra
en sólin
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is ’Geimvísindamennvona að sýnin varpi ljósi
á upprunalegan efnivið
sólkerfisins og gefi
vísbendingar um hvern-
ig það myndaðist.‘
Meira á mbl.is/ítarefni
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
komið í veg fyrir að Spánverjar selji
12 herflutningavélar til Venesúela.
Tvö spænsk dagblöð, El País og
ABC, greindu frá þessu í gær. Sagði
þar að Eduardo Aguirre, sendiherra
Bandaríkjanna á Spáni, hefði greint
Miguel Angel Moratinos, utanríkis-
ráðherra Spánar, frá því að samning-
inn gætu ráðamenn vestra ekki sam-
þykkt.
Síðar í gær staðfesti talsmaður
spænska utanríkisráðuneytisins
fréttir þessar. Maria Teresa Fernan-
dez de la Vega, fyrsti aðstoðarfor-
sætisráðherra Spánar, sagði á fundi
með blaðamönnum að spænska rík-
isstjórnin gæti ekki skilið afstöðu
Bandaríkjamanna í máli þessu.
„Samningur var undirritaður við
stjórnvöld í öðru ríki, Venesúela, og
hann verður að virða,“ sagði hún.
Bætir ekki samskiptin
við Bandaríkjastjórn
Málið sýnist því fallið til að spilla
samskiptum sósíalistastjórnarinnar
á Spáni og stjórnar George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Þau hafa verið
með stirðara móti frá því að sósíal-
istar komust til valda á Spáni í mars-
mánuði 2004. Fyrsta verk Jose Zapa-
tero, forsætisráðherra Spánar, var
að kalla heim hermenn frá Írak.
Í samningnum við Venesúela ræð-
ir um 12 flugvélar, sem smíðaðar eru
á Spáni en nýta bandarískan há-
tæknibúnað. Af þeim sökum þarf
samþykki bandarískra yfirvalda að
liggja fyrir.
Í nóvember í fyrra gerði sósíalista-
stjórnin á Spáni samning við Vene-
súela um sölu á hergögnum. Kvað
hann á um sölu á flugvélunum 12 auk
átta varðbáta og er talinn hljóða upp
á tvo milljarða Bandaríkjadala eða
um 120 milljarða króna.
Bandaríkjamenn lýstu þá yfir
áhyggjum af hergagnasölunni og
gáfu til kynna að þeir myndu leggjast
gegn henni. Í Venesúela ræður ríkj-
um Hugo Chavez forseti, sem er ein-
dreginn andstæðingur Bandaríkja-
stjórnar. Í yfirlýsingu frá sendiráði
Bandaríkjanna í Madríd, sem barst
síðdegis í gær, var þess sérstaklega
getið að Chavez hefði grafið undan
lýðræðislegum stofnunum í heima-
landi sínu, beitt frjálsa fjölmiðla og
stjórnarandstöðu þrýstingi og sýnt
einræðistilburði í vaxandi mæli.
„Í heimshluta, sem þarf á pólitísk-
um stöðugleika að halda, hafa stjórn-
völd í Venesúela stuðlað að upplausn
og ókyrrð með gerðum sínum og yf-
irlýsingum,“ sagði meðal annars í yf-
irlýsingu bandaríska sendiráðsins.
Chavez hélt því fram í vikunni að
Bandaríkjamenn hefðu einnig spillt
samningi, sem hann hafði gert við
Brasilíumenn um kaup á herþotum
þaðan.
Evrópskur tækjabúnaður?
Fullvíst má heita að Spánverjar
bjóði nú Venesúelamönnum að kaupa
vélar þessar með evrópskum tækja-
búnaði í stað þess bandaríska.
Spænska dagblaðið El País hafði eft-
ir sérfróðum í gærkvöldi að slíkan
búnað mætti nálægast í einum þrem-
ur Evrópuríkjum. Á hinn bóginn
væri hann mjög dýr. Spánverjar
myndu því hafa lítinn hag af sölunni.
Stöðva flugvélasölu
til Venesúela
Spenna eykst í
samskiptum
Bandaríkjamanna
og Spánverja
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
AP
Miguel Angel Moratinos, utanrík-
isráðherra Spánar.
Washington. AFP. | Erfðafræðileg
rannsókn þykir hafa tekið af öll
tvímæli um að Bandaríkjamaður,
sem tekinn var af lífi árið 1992,
hafi verið sekur um þann glæp,
er honum var refsað
fyrir.
Maðurinn, Roger
Coleman, var fund-
inn sekur um að hafa
nauðgað 19 ára gam-
alli mágkonu sinni
og síðar myrt hana á
heimili hennar í bæn-
um Grundy í Virg-
iníuríki árið 1981.
Ári síðar var hann
dæmdur til dauða.
Hann var síðan tek-
inn af lífi níu árum
síðar.
Hélt alltaf fram
sakleysi sínu
Coleman hélt alltaf fram sak-
leysi sínu. Ítrekaði hann þá yf-
irlýsingu sína í síðasta skiptið er
hann var leiddur inn í aftöku-
klefann.
„Saklaus maður verður myrt-
ur í kvöld,“ voru síðustu orð hans
áður en straumnum var hleypt á
rafmagnsstólinn.
Vestra hafa líka margir verið
þeirrar hyggju að saklaus maður
hafi verið líflátinn. Fjölmiðlar
þar sýndu máli Colemans mikinn
áhuga og viðtöl birtust ítrekað
við hann.
Mark Warner, ríkisstjóri Virg-
iníu, ákvað að nýta bæri þær
framfarir á sviði erfðavísinda,
sem orðið hafa frá því að Cole-
man var tekinn af lífi. Var því
sæðissýni, sem fannst á líkinu,
sent til rannsóknar í Kanada.
Niðurstaðan er sú að líkindin
fyrir því að sæðið
hafi ekki komið úr
líkama Colemans
eru talin 1 á móti 19
milljónum.
Niðurstaðan
mörgum áfall
Andstæðingar
dauðarefsinga í
Bandaríkjunum
bundu miklar vonir
við mál þetta og
töldu sýnt að það
gæti orðið til að
styrkja mjög mál-
stað þeirra kæmi í
ljós að Coleman
hefði verið saklaus
og því í raun verið myrtur af rík-
isvaldinu.
James McCloskey, einn helsti
stuðningsmaður Colemans, sem
leitast hafði við að sanna sakleysi
hans allt frá árinu 1988, sagði
niðurstöðuna áfall.
„Ég veit nú að ég hafði rangt
fyrir mér. Það er erfitt að horf-
ast í augu við það,“ sagði McClo-
skey, sem snæddi síðustu máltíð-
ina með Coleman nokkrum
klukkustundum áður en hann
var líflátinn.
Nýleg Gallup-könnun vestra
sýnir, að 64% Bandaríkjamanna
eru hlynnt dauðarefsingu en
voru 80% fyrir nokkrum árum.
Dauðafanginn
framdi glæpinn
Roger Coleman