Morgunblaðið - 14.01.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 41
UMRÆÐAN
MANNSKEPNAN er ógurlegt
villidýr. Við höldum að við séum
siðmenntuð en undirniðri erum við
villimenn. Almenningsálitið er vin-
sælt nútíma fyrirbæri, sérstaklega í
fjölmiðlum. Það er eins með al-
menningsálitið og sinuna að ef eld-
ur verður laus verður fjandinn laus.
Þá breytist almenningsálitið í múg-
æsingu. Þetta þekkjum við úr ver-
aldarsögunni. Og á þessu sviði er-
um við Íslendingar engir eftirbátar
annarra „miðað við fólksfjölda“. Við
reynum allavega okkar besta til að
halda í við aðra. Og svo kom að því
að landsmenn risu upp á afturfæt-
urna til að krossfesta Jónas Krist-
jánsson, einn allra snjallasta rit-
stjóra dagblaðs á Íslandi fyrr og
síðar.
Til að koma af stað múgæsingu
reis upp einn þingmaður og hróp-
aði út yfir landsbyggðina að Jónas
Kristjánsson hefði framið morð.
Svo komu hinir á eftir í halarófu,
flestir talandi út og suður eins og
hér væri einn sökudólgur sem
þyrfti að negla, eins og hér væri
um eitthvað óskaplega einfalt mál.
En kynferðislegt ofbeldi er ekkert
einfalt mál eða rannsóknir á slíkum
málum, og tvískinnungurinn í þess-
um málaflokki hrópar að okkur úr
öllum áttum. Þetta má sjá í dálk-
sentimetrum og talmínútum fjöl-
miðla síðustu þrjá daga. Ef menn
átta sig ekki á því núna þá munu
þeir gera það síðar, þegar um hæg-
ist.
Við getum rætt um ritstjórn-
arstefnu Jónasar Kristjánssonar og
DV og við getum gagnrýnt hana
málefnalega. Sjálfur er ég þeirrar
skoðunar að oft megi satt kyrrt
liggja, ekki síst í litlu samfélagi
eins og okkar. En það er ekki
sanngjarnt að gera Jónas Krist-
jánsson ábyrgan fyrir því að tiltek-
inn maður svipti sig lífi. Ef hann
hefði ekki svipt sig lífi; hvað þá?
Hver hefði staðan þá verið: umræð-
an um kynferðislegt ofbeldi, um-
ræðan um sifjaspell og umræðan
um barnaklám? Ég læt þetta duga.
Með þökk fyrir birtinguna.
BRAGI JÓSEPSSON,
Garðaflöt 2, Stykkishólmi.
Krossfesting.is
Frá Braga Jósepssyni:
PRÓFKJÖR Samfylkingarinnar í
Kópavogi verður haldið 4. febrúar
næstkomandi. Þegar framboðs-
frestur rann út höfðu 22 Kópa-
vogsbúar gefið kost á sér til starfa
fyrir Samfylkinguna og Kópavog.
Þessi mikli fjöldi frambjóðenda
kemur okkur sem störfum að bæj-
armálum í Kópavogi ekkert á óvart.
Óánægja bæjarbúa með meirihluta
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
fer vaxandi hvort sem er með þau
vinnubrögð sem sá meirihluti hefur
tileinkað sér eða forgangsröð verk-
efna. Bæjarbúar gera sér einnig
grein fyrir því að eina leiðin til að
breyta í Kópavogi er að skipta um
meirihluta í bæjarstjórn og þar er
Samfylkingin lykilaðili.
Félagsmönnum í Samfylkingunni
í Kópavogi hefur fjölgað mjög á síð-
ustu mánuðum og góður málflutn-
ingur okkar í bæjarmálum skilar
fleiri félögum og stuðningsmönnum.
Samfylkingin í Kópavogi hefur sett
sér það markmið að komast í meiri-
hluta í bæjarstjórn og sífellt fleiri
vilja leggja hönd á plóg til að svo
megi verða, ekki síst sú glæsilega
sveit karla og kvenna sem nú hefur
gefið kost á sér í prófkjörinu. Hver
svo sem útkoman úr prófkjörinu
kann að verða er ljóst að Samfylk-
ingin mun stilla upp sterkum og sig-
urstranglegum lista í komandi bæj-
arstjórnarkosningu,
Kosningaréttur í prófkjörinu mið-
ast við félaga í Samfylkingunni í
Kópavogi og tengdum félögum og í
félagi Ungra jafnaðarmanna í Kópa-
vogi sem náð hafa 16 ára aldri á
kjördag, með lögheimili í Kópavogi.
Frambjóðendur munu fram að próf-
kjörinu kynna sig fyrir flokksfélög-
unum og öðrum bæjarbúum með
hófstilltum hætti og leggja verk sín
og stefnumál í dóm flokksmanna,
gamalla sem nýrra.
GUNNAR MAGNÚSSON,
formaður Samfylkingarinnar í
Kópavogi, Ekrusmára 16.
Skiptum um meirihluta
Frá Gunnari Magnússyni:
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg
-40%
-40%
-20%
Romantique hnotulína
Borðstofuborð 190x85
Verð áður:
45.000
-40%
Verð nú:
27.0 0
Stóll
Verð áður:
12.500
-20%
Verð nú:
10.0 0
Skenkur 180cm
Verð áður:
79.000
-40%
Verð nú:
47.4 0
Romantique borð,
6 stólar og skenkur
ALLT SETTIÐ SAMAN NÚ:
134.400
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
201 KÓPAVOGUR
Opið um helgina: lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
Útsalan í fullum gangi afsláttur10-50%
Mikið vöruúrval
-30%
Borðstofuborð 190x90 og 6 stólar
Verð áður:
128.000
-30%
Verð nú:
89.600
-20%
Tungusófi
microfiber áklæði með óhreinindavörn
Verð áður:
139.000.-
Verð nú:
111.200.-
-30%
RIO LEÐUR TUNGUSÓFI
Verð áður:
212.000
-30%
Verð nú:
148.400