Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Reykjavíkurvegur - Hf.
Byggingaréttur
Nýkomin í sölu heil húseign,
ca 450 fm, rúmgóð sérlóð,
möguleiki á byggingarrétti
m.a. íbúðir o.fl. Frábær stað-
setning. Verðtilboð.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Hamravík 18 - Sérinngangur
Mjög glæsileg og vel skipulögð3ja herbergja 105,5 fm íbúð á 2. hæð með
sérinngangi í fallegu fjölbýlishúsi. Flísalögð forstofu með skáp. Tvö stór
svefnherbergi með skápum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með bað-
kari, glugga og innréttingu. Geymsla með hillum sem er nýtt í dag sem
vinnuherbergi. Björt stofa og stórt og glæsilegt eldhús með fallegum inn-
réttingum, fallegum stjórum hornglugga og útgangi út á rúmgóðar suðvest-
ur svalir. Stór innrétting er í eldhúsi og pláss fyrir borðstofuborð. Inn af
eldhúsi er stórt þvottahús með glugga sem hægt er að nýta líka sem
geymslu. Í eigninni eru stórir gluggar sem gefa góða birtu. Parket á gólfum.
Verð 23,9 millj.
Hlíðasmári 15 • 201 Kópavogur • Sími: 585 0100
Guðmundur St. Ragnarsson - Löggildur fasteignasali
Strandvegur 26 - 210 Garðabæ
OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, KL.16-17
Stórglæsileg 2ja-3ja herb. íbúð ásamt stæði í bílageymslu í Bryggjuhverfinu í
Garðabæ. Allar innréttingar, tæki og gólfefni eru fyrsta flokks. Möguleiki er á að
bæta við öðru svefnherbergi í íbúðinni.
Þetta er eign fyrir vandláta.
Allar nánari upplýsingar gefur Marel Baldvinsson s: 846-8409
eða á skrifstofu Húseignar í síma 585-0100. Verð 23,9 millj.
Bjalla 0201
19. - 27. maí
Þetta er vorferð að Bodenvatni, sem er fegursta vatn Þýskalands og
að Luganovatni í Sviss. Gistum m.a. við Bodenvatn í 4 nætur og
förum í skoðunarferðir til Lindau, Konstanz og ekki má gleyma
blómaeyjunni Mainau. Seinni hluti ferðarinnar er við vatnið Lugano í
Sviss, þaðan sem farið verður í skoðunarferðir að Maggiorevatni,
Ascona, Locarno og fleiri litlir bæir sóttir heim.
Fararstjóri: Marianne Eiriksson
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Verð: 108.600 kr. á mann í tvíbýli. Mikið innifalið.
Vor 4
Bodensee - Lugano
„ÖFUGT við sprengingar samtím-
ans, sem ætlaðar eru til eyðilegg-
ingar, þá eru sprengingar mínar ætl-
aðar til að gæða hlutina lífi og aukinni
merkingu,“ segir listamaðurinn og
arkitektinn Guðjón Bjarnason en í
dag verður opnuð sýning á verkum
hans í Listasafni Reykjavíkur sem
ber yfirskriftina „AFsprengi HUgs-
unar – Sprengiverk Guðjóns Bjarna-
sonar“. Það mætti segja að pensill
Guðjóns væri einna helst dínamítið en
sprengiverk hans, þar sem hann
sprengir í sundur stálrör og stillir síð-
an bútunum upp, hafa vakið mikla at-
hygli hér heima og erlendis. Að sögn
listamannsins eru verk hans hugsuð
sem persónuleg yfirlýsing um merk-
ingu og hlutverk listarinnar í sjálfri
sér innan samtímans. Verkin eru í
senn óendanleg og afmörkuð.
Að örva skynjunina
Í porti Hafnarhússins er ákaflega
stórt verk sem fyllir vel út í portið.
Það ber heitið „MurMur Woogie De-
sert“ og er um að ræða ótal brot úr
málmstrendingum sem sprengdir
voru upp í grjótnámu í Geldinganesi.
Brotunum hefur síðan verið stillt upp
í portinu af mikilli nákvæmni. „Þetta
verk er endurgerð atburðarins í
Geldinganesi,“ segir Guðjón. „Að
vissu leyti er verið að endursviðsetja
atburðinn til þess að skilja raunveru-
lega hvað gerðist.“ Guðjón leggur
mikið upp úr þessu líkingahlutverki
myndlistarinnar, að myndlistin eigi
að örva og efla skynjun okkar svo við
áttum okkur á því sem er að gerast í
samtímanum hverju sinni.
Brotunum raðað
Í fjölnotasalnum verður sýnt kvik-
myndaverk sem Guðjón gerði í sam-
vinnu við Helga Sverrisson kvik-
myndagerðarmann. Það er fimm
mínútna verk sem sýnir hægfara um-
myndun skúlptúrsins í portinu. „Þar
er sýnt það sem raunverulega gerðist
við myndun skúlptúrsins og það fært
yfir í ljóðrænt form. Enn og aftur er
hér verið að benda á eyðilegginguna
sem möguleika á að verða skapandi
og jákvæður kraftur en ekki öfugt.
Það má segja að verk mín fjalli um að
búa til óafturkræft og eyðilagt ástand
þar sem manneskjan getur end-
urraðað brotunum í huganum og
reynt að skapa úr þeim heillegt
ástand.“
Akkilesarhæll
Á annarri hæð safnsins eru um
tuttugu skúlptúrar sem hefur verið
komið fyrir á víð og dreif um salinn.
Að þessum skúlptúrum hefur hann
unnið meira og minna síðastliðinn
áratug í grjótnámum við jaðar borg-
arinnar. „Hugmyndin er að gæða
dautt byggingarefni lífi með því að
gæða það nýjum merkingarfræði-
legum möguleikum við sprenginguna.
Við það að sprengja verkin opnast ný-
ir merkingarmöguleikar.“
Guðjón lítur svo á að listamaðurinn
sjálfur sé akkilesarhæll sköpunar þar
sem inni í hverjum listamanni séu
alltaf takmörk fyrir ímyndunaraflinu.
Með sérstökum aðferðum sé aftur á
móti hægt að losa um allar slíkar
hömlur. „Með því að notast við sjálf-
ræna miðla eins og dínamít er lista-
verkið skapað fyrir mann. Þannig
nær maður að fara fram úr hugs-
uninni og búa til eitthvað sem er list-
þrungnara,“ segir Guðjón.
Listaverkabók kynnt
Í fjölnotasalnum verður sýnt upp-
kast að bók sem kemur út í tengslum
við sýninguna. Þar má lesa texta eftir
tuttugu og átta erlenda fræðimenn.
Þetta eru ýmist arkitektar, skáld,
listamenn, listgagnrýnendur eða
sagnfræðingar og skrifa um verk
Guðjóns frá sínum sjónarhóli. Meg-
intextann skrifar dr. Richard Vine,
ritstjóri Art in America, en hann
verður viðstaddur á sunnudaginn þar
sem fjallað verður um verk Guðjóns.
Auk þess mun hann flytja sjálfstæðan
fyrirlestur á miðvikudaginn um meg-
inþætti alþjóðlegrar listsköpunar.
Myndlist | Guðjón Bjarnason sýnir í Listasafni Reykjavíkur
Skapandi eyðilegging
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Verk Guðjóns eru hugsuð sem persónuleg yfirlýsing um merkingu og hlut-
verk listarinnar í sjálfri sér innan samtímans.
PÍANÓKONSERT nr. 2 eftir
Shostakovich verður meðal efnis á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
áhugamanna í Seltjarnarneskirkju
í dag. Stjórnandi er Óliver Kentish
og einleikari Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir.
Á tónleikunum verður einnig
fluttur forleikur að óperu Rossinis,
Rakaranum í Sevilla, og verkið Vo-
calise eftir Rachmaninov leikið.
Í tilkynningu segir að með flutn-
ingi píanókonsertsins taki hljóm-
sveitin þátt í þeirri endurvakningu
á verkum Shostakovich sem átt hef-
ur sér stað á síðustu árum hér á
landi.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
var stofnuð 1990 og eru meðlimir
hennar flestir með langt tónlist-
arnám að baki en hafa atvinnu af
öðru en hljóðfæraleik.
Tónleikarnir í Seltjarnar-
neskirkju hefjast kl. 17 og fá nem-
endur og eldri borgarar helmings-
afslátt af miðaverði.
Shostakovich í Seltjarnarneskirkju
Morgunblaðið/Ásdís
Ástríður Alda Sigurðardóttir er
einleikari á tónleikum Sinfón-
íuhljósmveitar áhugamanna.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn