Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 31
okkur þrjár nælur frá Skíðasambandi Íslands. Við Enrico höfðum ekki fundið miða á keppnina á netinu en við höfðum heyrt að það yrði örugg- lega hægt að fá miða í Sestriere. En svo var ekki. Það var mikið sett út á að miðar fengjust ekki á hinar ýmsu greinarr en þegar keppni hófst var fullt af lausum sætum. Ástæðan var sú að þau fyrirtæki sem auglýstu á Ól- ympíuleikunum höfðu keypt fullt af miðum til að gefa áhrifafólki en það fólk hafði ekki mætt til að fylgjast með. Miklar væntingar voru bundnar við ítalska skíðamanninn Giorgio Rocca og var hann fyrstur til að keppa. En hann féll fljótt úr keppni, Ítölum til mikilla vonbrigða. Ítölunum gekk mjög illa í þessari svigkeppni en ekki var hægt að segja það um einn af ís- lensku keppendunum, Björgvin Björgvinsson. Hann varð 22. í keppn- inni. Allir íslensku karlkeppendurnir kepptu í þessari svigkeppni, það er Björgvin Björgvinsson, Sindri Páls- son, Kristján Uni Óskarsson og Krist- inn Ingi Valsson. Sestriere er einn af skíðastöðum fræga fólksins. Fyrstu heimildir um Sestriere er að Napóleon lét leggja veg frá Ítalíu til Frakklands árið 1814 og var þessi vegur gjöf til Piemonte héraðsins. Fyrstu heimildir um byggð í Sestriere eru frá árinu 1864 þegar hornsteinn var lagður að fyrsta hót- elinu. Á 4. áratug síðustu aldar stóð Agnelli fjölskyldan fyrir uppbygg- ingu Sestriere sem skíðasvæðis fyrir íbúa Tórínó. Sagt er að þegar Giov- anni Agnelli, Lögfræðingurinn, þurfti aðeins að slappa af frá vinnunni sem forstjóri Fiat verksmiðjanna lét hann þyrlu fara með sig frá Tórínó til Sest- riere og fór á skíði í 2 klukkustundir og sneri hann síðan aftur til starfa sinna í Tórínó og þá endurnærður. Íslensku ólympíufararnir gistu í ól- ympíuþorpinu í Sestriere. Bestum ár- angri íslensku þátttakendanna náði Dagný Linda Kristjánsdóttir frá Ak- ureyri en hún varð í 23. sæti í bruni og risasvigi og í 28. sæti í alpatvíkeppni. Það var ótrúlegt að sjá það að Ítal- irnir biðu ekki eftir seinni umferðinni í sviginu af því að Giorgio Rocca var úr keppni og heyrði ég eina ítalska konu segja: „Verður nokkuð haldin seinni umferðin?“ Eins og að þetta væri einkakeppni Giorgio Rocca en ekki Ólympíuleikar með þátttakend- um frá öllum heimsálfunum! 50 kílómetra skíðaganga karla í Pragelato Þrátt fyrir að hafa ekki fengið miða á svigkeppnina í Sestriere höfðum við keypt á netinu miða á 50 kílómetra skíðagöngu karla. Ítalir áttu góða möguleika á að komast á verðlauna- pall. Veðurspáin var líka góð. En um nóttina kom babb í bátinn. Við Enrico höfðum bæði fengið í magann, hvort sem það var einhverjum mat að kenna eða vírus sem hefur verið að ganga hérna á Ítalíu í allan vetur. Skynsemin varð því að ráða. Við þurftum að vera í Flórens daginn eftir svo að við pökkuðum niður í von um að komast heim án þess að fá aftur í magann en það er 5 klukkustunda akstur frá Tórínó til Flórens. Veðrið var himneskt en við urðum að sætta okkur við að geta ekki séð keppnina. Það mikilvægasta var að Giorgio Di Centa vann til gullverðlauna og fannst mér frábært að sjá í sjónvarp- inu á lokahátíðinni systur hans, Ma- nuelu Di Centa, skíðagöngukonu af- henda honum gullverðlaunin. Almenningsálit á skipulagningu Ólympíuleikanna Í heimi hryðjuverka má segja að ör- yggisgæsla í sambandi við Ólympíu- leikana hafi verið til fyrirmyndar. Opn- unar- og lokahátíðin voru undir berum himni á Ólympíuleikvanginum í Tór- ínó. Sjálfboðaliðar jafnt sem starfs- menn Ólympíuleikanna voru allir eins klæddir sem var mjög jákvætt. Sam- göngur á milli Tórínó og keppnisstað- anna voru til fyrirmyndar og ekkert umferðaröngþveiti myndaðist. Bæði laugardagskvöldin, sem Ól- ympíuleikarnir stóðu yfir, voru haldn- ar svokallaðar „hvítar nætur“ en þá voru söfn og verslanir opnar fram á nótt í Tórínó og á keppnisstöðunum með ýmsum uppákomum. Sjálfir Tór- ínóbúar voru mjög hrifnir af þessari nýjung. Að þeirra eigin áliti er lítið um næturlíf í Tórínó. Opnunar- og lokaathöfnin voru mjög íburðamiklar. Vaxandi áhugi á krullu og skautaíþróttinni á Ítalíu Margir karlmenn á Ítalíu vilja byrja að æfa Curling eða krullu. Eig- inkonunum finnst að þeir gætu alveg eins sópað gólfin heima þeim að kostnaðarlausu heldur en að borga fyrir að æfa krullu. Einnig virðist áhugi almennings á Ítalíu hafa aukist á skautaíþróttinni. Vancouver árið 2010 Næstu Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir í Vancouver í Kanada árið 2010. Hver veit nema við hjónin förum yfir í aðra heimsálfu til að fylgj- ast með Ólympíuleikunum. Tórínó Höfundur er fréttaritari Morgunblaðsins á Ítalíu. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 31 E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 8 2 2 Aðalfundur Símans hf. verður haldinn miðvikudaginn 22. mars 2006 kl. 17.00 á Nordica hotel sal H og I. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi þurfa að berast stjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins liggja frammi á skrifstofu Símans, Ármúla 25, hluthöfum til sýnis viku fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Símans Dagskrá: 1. Tillaga um breytingu á gr. 19.1. í samþykktum þess efnis að stjórnarmenn verði allt að sjö talsins. 2. Tillaga um að gr. 26.2. í samþykktum félagsins falli niður. 3. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa hluti í félaginu samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. 4. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 5. Önnur mál löglega fram borin. Aðalfundur 2006 Rammaskipulagssvæðið afmarkast af Sæbraut, Kleppsmýrarvegi, strönd og fyrirhuguðum landfyllingum, Gullinbrú og Vesturlandsvegi. Auk formanns skipulagsráðs Dags B. Eggertssonar, og embættismanna munu skipulagsráðgjafar mæta á fundinn og kynna verkefnið. Hagsmunaðilar á svæðinu eru hvattir til að mæta og kynna sér verkefnið og ræða það. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur þriðjudaginn 21.mars kl 17:00. Elliðaárvogur og nágrenni Rammaskipulag - fundarboð Skipulagsráð og Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur boða til almenns fundar þar sem kynnt verður staða vinnunnar og leiðarljós í áframhaldandi vinnu. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur • Borgartún 3 • 105 Reykjavík • Sími 411 3000 0 HVENÆR ER LÁN LÁN? Hádegisfundur í Háskólanum í Reykjavík Laga- og viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík standa fyrir hádegisfundi mánudaginn 20. mars 2006 kl. 11:50 - 13:00 í stofu 101 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, undir yfirskriftinni: Hvenær er lán lán? Tilefni: Nýfallinn dómur héraðsdóms Reykjavíkur í „Baugsmálinu“. Áslaug Björgvinsdóttir dósent við lagadeild HR og Stefán Svavarsson dósent og forstöðumaður MSc náms við við- skiptadeild HR fjalla um hugtakið lán í skilningi ársreikn- ingslaga vegna nýfallins héraðsdóms í „Baugsmálinu“. Umræður að lokinni framsögu. Fundurinn er opinn öllum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.