Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MARGIR telja það mistök að ekki var unnið með þeim hætti við nýtt tónlistarhús allra landsmanna, að allur helsti óperuflutningur færi þar fram. Ég er því sammála og veit að með þriggja sala byggingu hefði fengist farsæl lausn enda margir aðrir er nýtt geta sal, svið og hljóm- sveitarhluta sem óperur og söng- leikir útheimta. En „gert er gert og búið það sem búið er eins“, og segir í leikritinu. Um lausina sem liggur í loftinu, þ.e. óperuhús á safna- og menningarreitnum í Kópavogi, ætla ég ekki að fjalla að þessu sinni, nema að einu leyti. Ef dæma má af grein í Morgunblaðinu velta einhvejir Kópavogsbúar fyrir sér hvort bygg- ingin eigi heima þar sem gert er ráð fyrir henni og, það sem mér þykir svaravert í bili, hve margir hafi áhuga á svona tónlist og hvort „borgi sig“ nokkuð að byggja óperuhús eða reka starfhæfa óperuheild í landinu. Fullt af aurum Engar kannanir eru til um áhuga Íslendinga á óperum eða íslenskum óperuflutningi, ekki frekar en menn hafa kannað áhuga á tónlist sem Sin- fóníuhljómsveit Íslands og ein- hverjir tugir annarra hljómsveita (stórra og smárra) flytja árlega. Hitt veit ég að ársvelta tónlistargeirans er að lágmarki 7 millj- arðar króna. Svo segir Ágúst Einarsson pró- fessor eftir töluverðar hagrænar rannn- sóknir. Gleymum því ekki að íslensk ópera og söngnám hefur get- ið af sér tugi söngvara sem vinna í útlöndum. Ekki amaleg útrás. Góð aðsókn Svo skoða megi áhuga landsmanna á fyrirbærinu ópera má taka fyrsta skref með því að líta á aðsókn að óperusýningum og flutningi óperu- tónlistar á alls konar tónleikum hljómsveita og söngvara/einleikara. Hún er afar góð og í stórum dráttum er uppselt á allar helstu óperu- sýningar. Íslenska óperan „af- greiðir“ 3.500-4.500 manns með hverri óperuuppfærslu en sýningar mega helst ekki vera nema 10 per óperu því ella verður tapið (ávallt fyrirséð vegna of fárra sæta sem hægt er að fylla) of mikið. Óperumiði er hlutfallslega ódýr á Íslandi. Svo er unnt að líta til Evrópu. Nánast alls staðar er aðsókn á uppleið. Af hverju? Af því þetta sérstæða sam- bland tónlistar, leiklistar og söngs hrífur í nútímanum og nýir söngleikir og óp- erur vitna um að grein- in er ekki stöðnuð. Vissulega fá óperuperl- urnar að njóta sín líka, rétt eins og menn verða ekki leiðir á mál- verkum da Vincis, grískum arkitektúr eða bókinni um Ahab og Moby Dick. Aðsókn hér mun einnig aukast enn og aftur og æ fleiri erlendir gestir fá áhuga á að sjá óp- eruuppfærslur á Ís- landi. Með mörgum þúsundum óperugesta á ári gengur dæmið upp. En auðvitað þarf að hyggja að því að Óperan, leikhús og hljómsveitir loki ekki fyrir alla starfsemi á sumrin. Þar tapast gestir og ekki vanþörf á að skoða málið. Öskubuska er fín Nýafstaðnar sýningar á hinni gömlu Öskubusku Rossinis í Ís- lensku óperunni sönnuðu að fyr- irtækið er á góðri siglingu. Aftur staðfesti fólkið þar að við getum haldið úti þessu listformi, í þetta skipti með því að gæða stykki frá 1816 þrótti og lífi með sætum flutn- ingi sem hefði sómt sér í mörgu er- lendu óperuhúsinu. Sumar sýning- anna sem ég hef séð náðu enn lengra, t.d. Macbeth eftir Verdi og la Bohemé eftir Puccini. Svo er orðið ljóst að svokölluð Óperudeigla fæðir af sér nýjabrum sem óskað var eftir þegar gagnrýnin umræða hófst um verkefnaval Óperunnar. Hið opinbera mun áfram styðja við þessa menningu. Það er tilhlýðilegt við svo margt, sem skiptir marga en ekki endilega alla máli, en telst samt mikilvægt fyrir sjálfsmynd þjóðar, menntun eða aðhlynningu í siðuðu samfélagi. Og fínir íslenskir söngvarar munu koma að utan til að syngja með, eins og Einar Guðmundsson gerði í Öskubusku, erlendir söngvarar sömuleiðis, eins og stundum áður. Kurt Kopecky, tónlistarstjóri Óper- unnar, sá snjalli músíker, hefur framlengt samning sinn. Þegar allt kemur til alls get ég fullvissað Kópa- vogsbúa sem og aðra að Óperan er alveg á garð setjandi, hún er engin venjuleg Öskubuska. Óperan lifir Ari Trausti Guðmundsson fjallar um tónlist ’...Óperan er alveg ágarð setjandi...‘ Ari Trausti Guðmundsson Höfundur er jarðeðlisfræðingur og áhugamaður um tónlist. Rofabær - Reykjavík Nýkomin í einkasölu sérlega falleg björt ca 60 fm íbúð á 3. hæð (efstu) í litlu fjölbýli. Sér- inngangur, s-svalir, parket. Góð staðsetning. Verð 14,9 millj. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Hraunbrún - Hf. Þvottahús/efnalaug. Höfum fengið í einkasölu rótgróna efnalaug/þvottahús ásamt fasteigninni Hraunbrún 40 þ.e. ca 250 fm einb/tvíb. sem skiptist þannig: Jarðhæð og bílskúr (hluti af efnalaug) þar sem efnalaug er til húsa, efri hæð og ris. Aðalhæð sérinn- gangur, stofa, borðstofa, eld- hús, svefnherb., sjónvarpshol o.fl. Ris 4 svefnherb. o.fl. Góð staðsetning, miklir möguleikar, góð húseign, húseign og fyrirtæki selt saman. Rótgróið fyrirtæki. Upplýs- ingar gefur Helgi Jón á skrifstofu. Daggarvellir - Hf. - 5 herb. Glæsileg 133,9 fm íbúð m. sér- inng. og séreignarlóð. Góður sérinngangur. Forstofa. Gott forstofuherbergi, geymsla með glugga, hol. Eldhús opið inn í bjarta stofu og borð- stofu, gott sjónvarpshol, glæsilegt baðherbergi, tvö góð barnaherbergi með skáp- um, gott hjónaherbergi og þvottahús. Glæsilegar innrétt- ingar og gólfefni. Afgirtur stór sólpallur. Verð 30,4 millj. Suðurhlíðar Kópav. - Sérh. Glæsileg efri sérhæð við Gnípuheiði í Kópavogi, klasahús, (endaíbúð), samtals 144,3 fm, sérinng., forstofa, skápur, flísar. Sjónvarpssk., björt stofa, útgangur út á suðursvalir. Glæsilegt eldhús með vönduðum innr., flísar á gólfi í eldhúsi og á milli skápa, vönduð tæki í eldhúsi. Bjartur útsýnisskáli við eldhús, útgangur út á svalirnar. Gott þvottah. með skápum og vaskaborði. Mjög fallegt baðh., baðkar með sturtu, góður sturtuklefi, vönduð innrétting, flísar á gólfi og veggjum, gluggi. Rúmgott svefnh. með skáp upp í loft. Tvö góð barnaherb. Parket á gólfum stofu, sjónvarpsskála og herbergjum. Hiti í gólfi út- sýnisskála og baðherbergi. Góður bílskúr, rúmgóð sérgeymsla í sam- eign. Óvenju glæsilegt útsýni. Frábær staðsetning. Myndir á netinu. Verð 37,9 millj. Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali Til leigu er stór hluti húsnæðis sem nú þegar er vel þekkt á Reykjavíkursvæðinu. Nýir eigendur hafa gert um- talsverðar breytingar á húsinu ásamt því að byggja nýja hæð á húsið að hluta. Einnig hefur lóðin verið endur- skipulögð m.t.t. þess að fjölga bílastæðum. Að utan verður húsið álklætt með hvítu áli og allt útlit fært í nú- tímalegra form. Að innan verður leitast við að hafa húsnæðið látlaust en aðlaðandi og bjart. Í húsinu verður lyfta sem getur flutt sjúkrarúm. Óþarft er að benda á gott aðgengi fyrir fatlaða. Loftræstikerfi verða fullkomin auk loftkælingar. Arkitekt er Tryggvi Tryggvason. Húsnæðið er vel staðsett með tilliti til samgangna og gott aðgengi frá öllum bæjarhlutum um stórar umferðar- æðar. Einnig ganga almenningsvagnar að svæðinu m.a. úr Vesturbæ, frá Lækjargötu, Hlemmi og Mjódd. Hluti húsnæðisins hefur verið ráðstafað fyrir heilbrigðistengda starfsemi og er það von eigenda að slík starf- semi verði sem mest ráðandi í húsinu. Upplýsingar gefur Jón Gretar Jónsson á skrifstofu Húsakaupa eða í síma 840 4049. ÁLFTAMÝRI 1-5 TIL LEIGU Til leigu Hlíðasmára, Kópavogi 6 hæða verslunar-, þjónustu- og skrifstofubygging Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. www.valholl.is Jarðhæð - verslun og þjónusta 324 fm. 2.-6. hæð - skrifstofur og þjónusta 324 fm hver hæð. Mögulegt er að skipta hverri hæð upp í 2-4 einingar. Húsnæðið afhendist fullbúið þ.e. með kerfisloftum, dúk á gólfum, 4-6 herb. á hverri hæð. Veggir málaðir í ljósum lit. Sameign fullbúin með lyftu. Fullbúið að utan. Mjög góð framtíðarstaðsetning á einum besta stað í Smáranum, efst við Hlíðasmára, glæsilegt útsýni. Mjög góð bílastæði eru við húsið. Húsið er mjög áberandi og er aðgengi og staðsetning mjög góð. Húsnæðið afhendist í september 2006. Leiguverð: Óskað er eftir tilboði í leiguverð. Byggingaraðili er Gissur og Pálmi ehf. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson, sími 588 4477 eða 822 8242 Sími 588 4477
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.