Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Málfríður Hann-esdóttir fæddist
í Reykjavík 2. ágúst
1920. Hún andaðist
á hjúkrunardeild
Hrafnistu í Reykja-
vík 8. mars síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Andrea Kristín
Andrésdóttir og
Hannes Jónsson
kaupmaður í
Reykjavík. Móðir
Málfríðar lést sama
dag og hún fæddist
og tók hálfsystir móður hennar,
Málfríður Jónsdóttir, hana að sér
sem sína dóttur. Síðari kona
Hannesar Jónssonar var Ólöf
Guðrún Stefánsdóttir og áttu þau
saman ellefu börn. Hálfsystkini
Málfríðar eru: Sveinbjörn, Stefán,
Pétur, Sesselja, Ólafur Hannes,
Andrea Kristín, Björgvin, Jóhann,
Jón Stefán, Sigurður Ágúst og
Þorbjörg Rósa.
Fyrri maður Málfríðar Jóns-
dóttur var Gunnar Þórðarson
kaupmaður, d. í Kaupmannahöfn
1926, þau áttu þrjá syni, Jón og
Þórleif, sem dóu í frumbernsku,
og Kristin hæstaréttarlögmann, f.
10. september 1919. Síðari maður
hennar var Kol-
beinn Högnason
skáld og bóndi í
Kollafirði, d. 1949.
Þau bjuggu í Kolla-
firði á Kjalarnesi til
ársins 1943 þegar
þau fluttu til
Reykjavíkur. Mál-
fríður var síðari
kona hans. Börn
þeirra eru Gerður
kennari, f. 3. apríl
1932, og Gunnar
kennari, f. 16. febr-
úar 1937. Börn Kol-
beins með fyrri konu sinni, Guð-
rúnu Jóhannsdóttur kennara,
voru Helga, Kolbeinn, Björn og
Unnur.
Málfríður útskrifaðist úr
Kvennaskólanum í Reykjavík
1939. Hún starfaði um tíma á
skrifstofu Sveinbjörns Jónssonar
og Gunnars Þorsteinssonar
hæstaréttarlögmanna en lengst
vann hún við símavörslu í Búnað-
arbanka Íslands. Þar starfaði hún
þangað til hún fór á eftirlaun. Síð-
ustu fjögur árin dvaldist hún á
Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Málfríðar var gerð frá
Lágafellskirkju 14. mars, í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Við Málfríður Hannesdóttir eða
Fríða Hannesar eins og hún var jafn-
an kölluð vorum systkinabörn. Faðir
minn og móðir hennar, Andrea
Kristín Andrésdóttir, voru hálf-
systkin, sammæðra. Andrea Kristín
dó sama dag og Fríða fæddist og
gekk Málfríður Jónsdóttir föður-
systir mín henni í móður stað og leit
Fríða ætíð á hana sem móður sína og
börn hennar sem systkini sín. Fríða
dáði líka Hannes föður sinn og var
hreykin af húnvetnskum uppruna
sínum. Hún hafði síðar meir gott
samband við hálfsystkini sín og
Ólöfu móður þeirra. Ég minnist
Fríðu fyrst þegar ég átti heima á
Marargötunni og í sumarbústaðnum
í Ártúnsbrekku, Litla koti. Fríða var
8 árum eldri en ég og fékk oft að
gæta mín og gerði það af mikilli sam-
viskusemi og var ætíð afar góð við
mig. Ég var svo heppinn að eiga
margar frænkur á barnapíualdri
sem kepptust um að passa mig. Þær
áttu einkum að gæta þess að ég færi
mér ekki að voða í Elliðaánum. Ég
man eftir að við Fríða fórum stund-
um upp í Árbæ til Margrétar og
Kristjönu sem bjuggu þar. Þær gáfu
okkur oft límonaði. Fríða hélt því
stundum fram að ég hefði verið erf-
iður og óþekkur sem barn en mér er
ekki grunlaust um að hún hafi haft
skömm og gaman af prakkarastrik-
um mínum og jafnvel alið á þeim því
að hún var alltaf til í eitthvað sprell.
Mér finnst ég enn geta heyrt tístandi
hlátur hennar þegar ég gerði eitt-
hvað af mér. Ég man vel eftir Fríðu
frá árunum sem hún bjó í Kollafirði.
Það var alltaf tilhlökkunarefni að
heimsækja ættingja og vini í Kolla-
firði. Þar var ætíð góður andi, jafn-
ræði með húsráðendum, mikið af
ungu og skemmtilegu fólki og þar
undi hún sér afar vel við leik og störf.
Hún hjálpaði mömmu sinni og gætti
systkina sinna Gerðar og Gunnars.
Náin og gagnkvæm vinátta var líka
alltaf milli hennar og Kristins bróður
hennar sem var ári eldri en hún og
eins barna Kolbeins af fyrra hjóna-
bandi, einkum Björns sem var á
sama aldri og hún og gekk með henni
í skólann á Klébergi.
Fríða fór í Kvennaskólann í
Reykjavík árið 1935 og útskrifaðist
árið 1939. Þau ár sem hún var í
Kvennaskólanum og oft endranær
bjó hún hjá náfrænku okkar Þuríði
Kolbeinsdóttur, sem við kölluðum
Æju, og eiginmanni hennar Gretari
Ó Fells lögfræðingi og rithöfundi á
Ásvallagötu 14. Þau hjón voru barn-
laus og litu næstum á Fríðu sem
dóttur sína. Ég minnist þess hve
gaman var að koma með Fríðu á Ás-
vallagötuna og njóta gestrisni og
hlýju þeirra Æju og Gretars.
Fríða giftist ekki og átti enga af-
komendur en hún var systkinabörn-
um sínum og þeirra börnum eins og
besta móðir og aðstoðaði þau á
margvíslegan hátt. Hún naut þess að
sjá til með yngri frændum og frænk-
um og þegar þau uxu úr grasi komu
alltaf nýir árgangar til sögunnar og
alltaf var Fríða tilbúin að sjá til með
þeim. Fríða var glaðlynd, hún var
fíngerð og hæversk í framkomu.
Hún var vel lesin einkum í þjóðleg-
um fræðum og hafði góða kímnigáfu
en gat þó verið dálítið gráglettin
þegar svo bar við.
Árið 2002 fékk hún inni á Hrafn-
istu og undi hag sínum mjög vel.
Hún kynntist þar mörgu áhugaverðu
fólki og þar naut hún sérstaklega
góðrar aðhlynningar. Eins sýndi
mágkona hennar, Svanfríður Kr.
Guðmundsdóttir, henni sérstaka
ræktarsemi. Heilsu Málfríðar fór
mjög hrakandi einkum sjóninni og
heyrnin dvínaði stöðugt. Ég og fjöl-
skylda mín þökkum Fríðu fyrir að
hafa verið til.
Jón Sveinbjörnsson.
MÁLFRÍÐUR
HANNESDÓTTIR
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
!"#
! $
"%%#
&
'
(!
))
( & ((
*
)
) + , (( -
.
( . ' ! / . . !
.!0
.
( ' ' ! 1
' .
!
0
,.
!--2
1343 "5%% 6'(
343
"5%7 1 8
.
4 7%3
9'
:! --2 0 !
!:
1 !""###$
$ ;--2
<
/.
'$
' (
( )((! 7=4=
' ( .
9'
0-
0
'
7-
"%%#
Þökkum samúð og vinarhug við andlát föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HELGA PÁLSSONAR
fyrrv. leigubílstjóra,
Hólmgarði 56,
Reykjavík.
Sjöfn Helgadóttir,
Valur Helgason, Harpa Bjarnadóttir,
Sævar Helgason
og fjölskylda.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
STEINUNNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður til heimilis
á Kirkjuvegi 11.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild 2B á Hrafnistu.
Kolbrún Vilbergsdóttir,
Fanney Eva Vilbergsdóttir, Gísli Haraldsson,
Þóra Vilbergsdóttir, Júlíus Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
ÁRNI KRISTINSSON,
síðast til heimilis á
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 14. mars.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn
22. mars kl. 14.
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á dvalarheimilið Höfða.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Edda Árnadóttir,
Hallgrímur Eðvarð Árnason.
Ástkær eiginkona mín, mamma, tengdamamma,
amma og langamma,
SIGRÚN GRÉTA GUÐRÁÐSDÓTTIR,
Dalbraut 16,
Reykjavík,
sem lést á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn
9. mars, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 21. mars kl. 13.00.
Sigurjón Ágústsson,
María Hrund Sigurjónsdóttir, Jafet Óskarsson,
Guðráður Jóhann Sigurjónsson, Unnur Ólöf Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
KARLS NÍELSSONAR.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Hrafnistu fyrir góða umönnun.
Þorsteinn Karlsson, Hanna B. Herbertsdóttir,
Ólafur G. Karlsson, Ásdís Karlsdóttir,
barnabörn og langafabarn.