Morgunblaðið - 29.03.2006, Side 42

Morgunblaðið - 29.03.2006, Side 42
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn VAÐ EÐDU AÐ GEÐA? AALAN DA... HANN ER BÚINN AÐ SLEIKJA FRÍMERKI Í ALLAN DAG ÆI, NEI! HLUSTAÐU Á ÞETTA SUMUM ER EKKERTHEILAGT EINHVER BJÓ TIL POPPLAG ÚR „STARDUST“ AFKOMA OKKAR BYGGIR Á EINBEITINGU EINBEITTU ÞÉR EINS OG ÞÚ GETUR! SKAL GERT! MAMMA, ÉG OG HOBBES FERÐUÐUMST AFTUR Í TÍMANN HVERNIG VAR ÞAÐ? VIÐ VORUM NÆSTUM ÞVÍ ÉTNIR VIÐ ÆTLUÐUM FRAM Í TÍMANN, EN ÉG GERÐI SMÁ MISTÖK GOTT AÐ ÞIÐ KOMUST AFTUR HEIM MAMMA ÞÍN ER SVO YFIRVEGUÐ EKKI ALLTAF, HÚN TÓK FROSKUNUM Í KLÓSETTINU EKKI MJÖG VEL MAMMA SEGIR AÐ BENJI SÉ MEÐ SITT EIGIÐ MERKI Á GANGSTÉTT Í HOLLYWOOD ÉG ÆTTI AÐ FÁ MITT EIGIÐ MERKI Á EINHVERJA GANGSTÉTT EN ÞÚ ÁTT NÚ ÞEGAR ÞITT EIGIÐ MERKI VIÐ GANG- STÉTTINA ER ÞAÐ? JÁ, Á ÞVÍ STENDUR „VARIST HUNDINN“ SÆL ÖLL SÖMUL! HÆ,ABBY! GAMAN AÐ SJÁ YKKUR,HVERNIG VAR FLUGIÐ? FREKAR... ...ÞREYTANDI ÞETTA ER MINN GAMLI FJANDI, KRAVEN, VEIÐIMAÐUR KÓNGULÓAR- MAÐURINN! HVAÐ ER MEÐ ÞETTA TÍGRISDÝR ÉG BJARGAÐI FÓLKINU FRÁ ÞESSU ÓVARGADÝRI EINS GOTT AÐ ÉG VAR NÆRRI Dagbók Í dag er miðvikudagur 29. mars, 88. dagur ársins 2006 Víkverji hafði orð áþví nýlega hve Bubba Morthens væri farið að leiðast í dómarasætinu í Idol- stjörnuleit. Undir þetta tóku fleiri en einn og fleiri en tveir. Hvort þau skrif höfðu einhver áhrif skal ósagt látið en í öllu falli tók Bubbi sig taki í síðasta þætti, virtist finna sig á ný og kom með umsagn- ir sem bragð var að. Á hann sérstakan heiður skilinn fyrir að hafa étið ofan í sig allt sem hann hafði sagt um hinn ljóshærða söngv- ara, Snorra, sem minnir Víkverja óneitanlega á Stebba Hilmars. Það er nú önnur saga, en Bubbi virðist ætla að eiga sterkan endasprett. Ét- ur Víkverji þau orð ofan í sig að hann vilji fá Björgvin Halldórsson í staðinn fyrir Bubba í dómarasætið, Bo verður að bíða á bekknum um sinn. Fyrst talið hefur borist að Stjörnuleitinni þá er ekki annað hægt en að dást að þessum krökkum sem þar keppa. Að þurfa að enda- sendast heimshorna á milli í boði styrktaraðila er meira en að segja það. Allt gert fyrir frægðina. Ein er sú starfsstétt ílandinu sem klár- lega er ofvirk, það eru stjórnendur salt- og mokstursbílanna hjá Reykjavíkurborg. Eftir hávaðarok í fyrrinótt tóku nokkur snjókorn að falla undir morgun og ekki leið á löngu þar til bílarnir voru komir af stað með blikkandi ljós, og gott ef ekki með moksturstennurnar framan á. Víkverji hef- ur oft velt því fyrir sér hvað ræður þessum saltaustri. Horfa þeir borgarstarfsmenn sem stjórna þessu ekki á veðurfrétt- irnar? Þarf borgin að losa sig við eitthvað lágmarksmagn af salti á ári? Eru menn á akkorði í þessu? Víkverji sá ekki betur en veð- urfræðingar hefðu spáð hlýnandi veðri eftir því sem leið á gærdaginn, enda gekk það eftir. Snjórinn stopp- aði stutt við. Að þessu sinni var saltið algjör óþarfi, næg er nú mengunin fyrir að ekki þurfi að bæta þessum óþverra við, sem gerir ekkert annað en að skaða ökutækin, og fara í taugarnar á sumum. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Kópavogur | Söngdeild Tónlistarskóla Kópavogs mun flytja óperuna Bastían og Bastíana eftir Wolfgang Amadeus Mozart annað kvöld kl. 20.00 í Salnum. Leikstjóri er Anna Júlíana Sveinsdóttir og Krystyna Cortes annast píanó- leikinn. Mozart var aðeins tólf ára þegar hann samdi óperuna. Söngvarar eru Ragnar Ólafsson, Fjóla Kristín Nikúlásdóttir og Sigurjón Örn Böðvarsson, en það eru þau tvö fyrrnefndu sem hér sjást á sviði Salarins. Áður en óperan hefst mun strengjasveit skólans undir stjórn Unnar Páls- dóttur flytja þátt úr sinfóníu eftir Haydn og svítu úr óperunni Carmen. Morgunblaðið/Eyþór Söngur í Salnum MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber um- hyggju fyrir yður. (1Pt. 5, 7.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.