Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 4

Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 4
4 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Próteinríkt og fitulaust Skyr.is er fitulaust en seðjandi. Það er próteinríkt og hentar vel þeim sem vilja byggja upp hraustan líkama. Það fæst með mörgum spennandi bragðtegundum, bæði með og án viðbætts sykurs. REYKJAVÍKURBORG hefur lagt fram kæru til Samkeppniseftirlitsins á hendur Landsvirkjun „vegna sam- þykktar stjórnar Landsvirkjunar um að leggja Laxárvirkjun á und- irverði til nýstofnaðs félags Lands- virkjunar, Orkubús Vestfjarða og Rafmagnsveitna ríkisins,“ eins og segir í bréfi Kristbjargar Stephen- sen, skrifstofustjóra lögfræðiskrif- stofu borgarinnar, til Samkeppnis- eftirlitsins. Sýnt fram á of lágt verð Krefst Reykjavíkurborg þess að Samkeppniseftirlitið leggi bann við því að Landsvirkjun leggi Laxár- virkjun inn í hið nýja félag á því verði sem samþykkt var í stjórn félagsins. Segir í erindinu að Reykjavíkur- borg geti með rökum sýnt fram á að um undirverð sé að ræða, og fari ákvörðunin því gegn 10. og 11. gr. samkeppnislaga. Einnig er gerð krafa um að Sam- keppniseftirlitið athugi hvort stofn- un og rekstur hins nýja fyrirtækis samrýmist ákvæðum samkeppnis- laga og raforkulaga. Áformað er að hið nýja smásölu- fyrirtæki Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og RARIK taki við Lax- árvirkjun á bókfærðu verði, sem er 1.062 milljónir kr. Reykjavíkurborg telur þetta mat vera langt undir sannvirði og gefa hinu nýja félagi þar með óréttmætt samkeppnisfor- skot á smásölumarkaði raforku. Borgin kærir Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið, fyrir fjárdrátt í opinberu starfi. Maður- inn var framkvæmdastjóri Fjórð- ungssambands Vestfirðinga og dró sér samtals rúmlega 17 milljónir króna af bankareikningi sambands- ins. Maðurinn var í héraði dæmdur í 10 mánaða fangelsi og var dómur- inn allur skilorðsbundinn. Í dómi héraðsdóms var rakið að ákærði hefði ekki áður sætt refs- ingum. Héraðsdómur taldi að auk þess sem gera yrði honum þyngri refsingu en ella vegna þess að hann framdi brot sitt í opinberu starfi, yrði að líta til þess hve hann dró sér mikið fé. Á hinn bóginn yrði lit- ið til þess að ákærði gerði enga til- raun til að leyna fjárdrættinum og játaði brotið. Ákærði viðurkenndi fjárdráttar- brot en mótmælti því að hafa verið í opinberu starfi. Hæstiréttur féllst hins vegar á þá niðurstöðu héraðs- dóms að maðurinn hefði verið opin- ber starfsmaður. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Verjandi var Björn Jóhannesson hdl. og sækjandi Helgi Magnús Gunnarsson sak- sóknari hjá ríkissaksóknara. Eins árs fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi TVEGGJA sólarhringa látlausu slökkvi- og björg- unarstarfi á Mýrum lauk í gærmorgun þegar tókst loks að slökkva einn mesta sinueld sem um getur hér á landi. Barist var við eldinn í alla fyrri- nótt og tókst að loks að ráða niðurlögum hans í gærmorgun, réttum 48 klukkustundum eftir að eldurinn kviknaði. „Það sést enginn reykur leng- ur, sagði Ólafur Egilsson bóndi á Hundastapa í gær. „Þeir voru að koma í hús dauðþreyttir eftir slökkvistarfið um hálffimm í morgun,“ sagði Ólaf- ur sem var með húsfylli af mönnum sem höfðu komið til að aðstoða við slökkvistarfið á föstudag og aðfaranótt laugardags. Ólafur sagði að lögreglan hefði þurft að loka vegum á svæðinu því mikil umferð af forvitnu fólki hefði verið farin að skapa hættu. Var hann ánægður með lok slökkvistarfs og vonaðist til að ekki blossaði upp glóð aftur. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kallaði liðs- auka sinn af vettvangi í gær en slökkviliðið hafði sent liðsauka á vettvang sem og slökkviliðið á Akranesi og í Búðardal. Ljóst er að slökkvistarfinu lauk fyrr en Bjarni Þorsteinsson, slökkvistjóri í Borgarnesi, hafði reiknað með en hann sá jafnvel fram á að eldurinn myndi geisa fram yfir helgi. Það rættist þó ekki. „Það hjálpuðust allir að og með harðfylgi manna tókst að slökkva í þessu og menn eiga mik- inn heiður skilinn,“ sagði Bjarni í gærmorgun. Þar átti hann við slökkviliðsmenn úr Dalasýslu, Borgarfjarðardölum, Akranesi og af höfuðborgar- svæðinu. Kjarkaðir bændur og ótrúleg þyrluhjálp „Og ekki má nú gleyma blessuðum bændunum með dráttarvélar sínar og haugsugur. Þetta eru algerir kraftaverkamenn.“ Bjarni telur að allt að 100 manns hafi unnið að slökkvistarfi þegar mest var. „Við fengum þyrlu frá Þyrluþjónustunni með þúsund lítra mál neðan í sér sem hún dýfði í næstu tjörn eða vog við ströndina og flaug síðan yfir brunasvæði. Þetta hefur alveg ótrúlegan slökkvimátt. Það var enginn slökkviliðsmaður um borð heldur flugmaður sem kunni sitt fag. Hann sló á eldjaðarinn við Hundastapa sem við vorum mjög hræddir um enda mikið í húfi fyrir ábúend- urna með sitt gríðarstóra kúabú. Bændurnir voru líka kjarkaðir og áræðnir. Þeir keyrðu vatni á eld- inn og svo var líka hlandforin og kúamykjan alveg ótrúlega góður slökkvimiðill. Eins og ég segi, það er víða orðið lágt í haughúsum í dag.“ Eitt af síð- ustu verkefnum slökkviliða var að vinna á eldlín- unni í vestri í fyrrinótt sem klöppuð var niður með þar til gerðum verkfærum og vatni skvett á. Eftir er að meta skemmdir á því gríðarstóra svæði sem eldurinn fór yfir, bæði eignatjón á girðingum, jörðum, auk tjóns á gróðrinum sjálf- um. Morgunblaðið/RAX Sinubruninn á Mýrum loks kveðinn niður af 100 mönnum eftir 48 tíma baráttu Dauðþreyttir eftir slökkvistarfið Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Dag Gunnarsson SAMFYLKINGIN mælist með ríf- lega 31% fylgi á landinu öllu en Sjálf- stæðisflokkur með rúmlega 40% samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar í Þjóðarpúlsi Gallups um fylgi flokkanna í kosningum til Al- þingis. Bætir Samfylkingin við sig fylgi frá seinustu könnun þegar flokkurinn mældist með 29% en fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar frá sein- ustu könnun þegar hann mældist með 42%. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð mælist með liðlega 16%, Fram- sóknarflokkurinn nýtur nú tæplega 9% fylgis og 3% kysu Frjálslynda flokkinn, ef kosið væri nú. Stuðning- ur við ríkisstjórnina mældist tæp- lega 52%. 21% tók ekki afstöðu í könnuninni eða neitaði að gefa hana upp og tæplega 5% sögðust myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosn- ingar færu fram í dag. Könnunin var gerð dagana 28. febrúar til 29. mars. Samfylking mælist með 31% og Sjálfstæðisflokkur 40% RANGLEGA var haft eftir Geir H. Haarde utanríkisráðherra, í frétt af ræðu hans á ráðstefnu um EES- samninginn í blaðinu í gær, að lítill pólitískur ágreiningur hefði verið um EES-samninginn hér á landi þegar hann var gerður. Geir sagði þvert á móti að aðild að EES hefði verið stórt pólitískt ágreiningsmál á árunum 1992 og 1993. Geir sagði einnig að almennt hefði verið litið svo á að ókostirnir við aðild að Evrópusambandinu væru svo ber- sýnilegir að sú ákvörðun að standa utan ESB hefði naumast valdið neinum pólitískum deilum á þess- um tíma. Leiðréttist þetta hér með og er beðist velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT EES var stórt pólitískt ágreiningsmál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.