Morgunblaðið - 02.04.2006, Side 28
28 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Eyrún Edda Hjörleifsdóttirhefur í sér listamannagenen hún er dóttir SigrúnarEldjárn rithöfundar ogmyndlistarmanns og Hjör-
leifs Stefánssonar arkitekts. Hún hef-
ur teiknað frá því hún gat haldið á
blýanti og gerir enn. Og það eru
myndasögur sem renna úr blýantin-
um svo einhver frásagnargáfa hlýtur
að fljóta með.
Hún ákvað þó fljótt að myndlistin
yrði ekki hennar ævistarf heldur
raunvísindin. Eyrún Edda lauk B.Sc.-
prófi í lífefnafræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1998 og vann svo hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu í tvö ár áður en
hún hélt til Stokkhólms í framhalds-
nám. Nú er hún þrítug að aldri og
hefur búið í sænsku höfuðborginni í
sex ár þar sem hún stundar doktors-
nám í sameindalíffræði við Karol-
inska Institutet. Verkefnið gengur út
á að rannsaka gen sem kemur við
sögu í krabbameinsmeinvörpum,
beinvexti og fleiru.
En hvernig kom það til að vísinda-
maðurinn tók þátt í ljóðakeppni? „Ég
sá frétt í Mogganum sama dag og
fresturinn rann út og fann að þarna
var komin keppni sem ég gæti átt
möguleika í. Ljóðið kom eiginlega til
mín, ég lagði ekki mikið á mig,“ segir
skáldið hógvært. „Ég er auðvitað
mjög stolt. Ég hef aldrei haft neinn
metnað í að vera gott ljóðskáld en ég
hef metnað til að axla þennan titil og
er ánægð með að hafa tekið þátt. Svo
vil ég nota tækifærið og óska öllum
þeim sem tóku þátt og unnu ekki til
hamingju. Ljóðin þeirra hafa greini-
lega verið betri en mitt. Það hefur
kannski blundað í mér vont skáld sem
beið eftir tækifæri til að brjótast út.“
Stílbrögð ömurleikans
Samkeppninni um ömurlegasta
ljóðið var hleypt af stokkunum fyrr í
vetur að frumkvæði og vegna draum-
fara ljóðskáldsins Eiríks Arnar
Norðdahl, eins af aðstandendum
jaðarforlagsins Nýhils. Draumurinn
gekk út á ljóðasamkeppni og eins og
sagði í frétt á vef Bæjarins besta á
Ísafirði voru viðbrögð við vinn-
ingsljóðinu neikvæð í draumnum og
m.a. vísað til ömurlegs ljóðskálds á
forsíðu dagblaðs. Dreymandinn gat
þó aldrei lesið ljóðið og þegar hann
vaknaði ákvað hann að efna til sam-
keppni með það að markmiði að ljóðið
í draumnum kæmi fram. „Tekið verð-
ur tillit til asnalegra myndlíkinga,
klaufalegs orðalags og ósmekklegs
umfjöllunarefnis, auk annarra stíl-
bragða ömurleikans sem dómnefnd
þykir rétt að hafa til viðmiðunar,“
sagði m.a. í tilkynningu um keppnina.
Úrslitin voru tilkynnt fyrir
skömmu en dómnefnd skipuðu auk
Eiríks Arnar, Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir og Sölvi Björn Sigurð-
arson. Hljóðar rökstuðningur dóm-
nefndarinnar fyrir sigri ljóðs Eyrún-
ar svo: „Ljóð Eyrúnar Eddu er
einhvers konar babelsturn ömurlegra
ljóðmynda, þær hlaðast hver ofan á
aðra og standa hver í vegi fyrir ann-
arri; það er engin leið að vita hvar
ljóðið er líklegast til að byrja að molna
við lestur, og það verður aldrei á sama
stað hjá einum lesanda og hjá öðrum.
Er það við „sinnepsmaríneraða há-
degissólina“? Við „loðdrapplitaðan
líkama kakódýrsins“? Eða kannski
strax við „skósvertar leifar limgerð-
isins“? Við getum einungis verið þess
fullviss að einhvers staðar við lestur-
inn mun ljóðið hrynja, og við munum
fá stærstu bitana í hausinn.“
Eyrún Edda er spurð hvaða skiln-
ing hún leggi í merkimiðann „ömur-
legasta ljóðið“. „Ja, það er verið að
biðja um slæmt ljóð sem hlýtur að
vera andstæðan við gott ljóð.“ Hún
vill sem minnst fara út í að greina
ljóðið eða túlka. „Ég lagði upp með að
nota ákveðin orð sem eru algjörlega
óhæf í ljóðum. Til dæmis drapplitað-
ur, utankjörstaðaatkvæði og remúlaði
og svo kom hitt af sjálfu sér.“
Vinnufélagar hennar á rannsókn-
arstofunni hafa auðvitað samglaðst
henni og reynt að fá nánari upplýs-
ingar um eðli ljóðsins. En skáldið hef-
ur þurft að valda þeim vonbrigðum
þar sem hún gat hvorki útskýrt um
hvað ljóðið fjallaði né þýtt það á neitt
þeirra fimmtán tungumála sem töluð
eru á rannsóknarstofunni. „Ég vona
að orð eins og loðdrapplitaður sé ekki
til í neinu tungumáli. Þetta er einstak-
lega ógeðfellt orð og ég biðst afsök-
unar á að hafa búið það til.“
Nafnlausa ljóðið er eina ljóðið sem
Eyrún Edda hefur látið frá sér og hún
gefur lítið fyrir að eiga fleiri ljóð í
skúffunni. „En það er spurning hvort
ég reyni að yrkja gott ljóð til að sanna
mig,“ segir hún hugsi. En svo tekur
hún U-beygju og segir að titillinn geti
e.t.v. verið merki um að hún eigi alls
ekki að leggja fyrir sig ljóðlist.
Laglausi kórinn
Áður kom fram að Eyrún Edda tel-
ur sjálfa sig laglausa. Henni finnst þó
gaman að syngja, segist fá útrás með
því. Umfjöllun í sænsku blaði um kór
sem Eyrún kallar Laglausa kórinn
höfðaði því til hennar og hún mætti á
æfingu. „Kör för alla er mjög vinsælt
fyrirbæri í þessu landi þar sem allir
eiga að vera jafnir. Mottóið er að allir
geti sungið og kórinn hefur haldið
tónleika og meira að segja sungið inn
á plötur. Maður mætir þegar maður
vill og það eru oft upp í þrjúhundruð
manns á æfingu.“ Eyrún byrjaði í
kórnum síðasta haust og segist hafa
gaman af.
Kórstjórnendurnir, mæðgurnar
Yvonne og Carolina af Ugglas, telja
að allir geti lært að syngja og það sé
jafnsjálfsagt og að geta lært að lesa
og reikna. Í kórnum fær fólk æfingu í
söng og lögð er áhersla á að hún fari
fram í þeirri tónhæð sem er auðveld-
ust fyrir viðkomandi, þ.e. líkt og tón-
hæð talraddarinnar.
„Kannski ég syngi ljóðið mitt inn á
plötu og biðji laglausa kórinn að
syngja bakraddir. Það er aldrei að
vita þegar maður er kominn inn á
þessa braut,“ segir laglausa skáldið
brosandi.
Aðaláhugamál Eyrúnar er þó
teikning og hún mætir reglulega í
módelteikningu í Kulturhuset í mið-
borg Stokkhólms. Hún teiknar líka
myndasögur og þrjár þeirra hafa m.a.
birst í íslenska tímaritinu Bleki. Og
hér í Morgunblaðinu birtist nú ein
skrýtla eftir þennan upprennandi vís-
indamann með myndlistar- og frá-
sagnargáfu í farteskinu.
Ömurlegasta viðtalið
Eyrún Edda Hjörleifsdóttir bar sigur úr býtum í keppninni um ömurlegasta ljóðið.
Vont skáld, laglaus og
myndast illa. Þannig lýsir
sigurvegarinn í keppninni
um ömurlegasta ljóðið
sjálfum sér. En við nánari
athugun Steingerðar Ólafs-
dóttur kemur í ljós hæfi-
leikaríkur doktorsnemi sem
rannsakar genastjórnun og
teiknar í frístundum.
steingerdur@mbl.is
Skósvertar leifar limgerðisins vikna hástöfum
í sinnepsmaríneraðri hádegissólinni.
Og svartstorkið blóðið undir brotinni tánögl minni
engist um líkt og utankjörstaðaatkvæðaþyrstur slímþörungur.
Ó! Kakódýrið brokkar valhoppandi gegnum nóttina.
Það stirnir á loðdrapplitaðan líkama þess.
Ég finn hvernig svitinn logar í kakóbolla augnabliksins
og súreygður sykurpúði skelfur í auðninni um stund.
Í remúlaðibaði hringiðar hringormakös – Kakódýrsins og mín,
eitt óútsprungið og titrandi síðsumarkvöld í maí.
Tánögl mín klofnar til blóðs, götuna fram eftir veg,
og stund míns gulasta plásturs er sokkin í graftarhaf.
Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
Nafnlaust
Í maí 2006 hefst viðbótarnám í íslensku fyrir grunnskólakennara vegna
fyrirhugaðra breytinga á aðalnámskrá. Námið verður með eftirfarandi hætti:
Aðfaranám, maí 2006.
Meðal annars verður farið yfir drög að aðalnámskrá og þátttakendum kynnt kennsluumhverfi á vef.
Staðbundnar lotur verða haldnar í öllum landsfjórðungum og þeim fylgt eftir með fjarnámi.
19. og 20. maí á Akureyri og í Reykjavík.
26. og 27. maí á Ísafirði og Egilsstöðum.
Aðfaranám, haust 2006 (3e)
Meðal annars verður hugað að undirbúningi háskólanáms í íslensku og rætt um kennsluaðferðir og -tækni.
September 2007
Viðbótarnám, 2007-2009.
Þátttakendur geta valið námskeið í íslensku í Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri eða
Háskólanum í Reykjavík og stundað þau í fjarnámi.
Menntamálaráðuneytið mun greiða kennslukostnað og innritunargjöld.
Umsóknir um þátttöku berist í síðasta lagi 28. apríl 2006 til Símenntunarstofnunar Kennaraháskóla Íslands sem hefur umsjón með skráningu og þátttöku.
Upplýsingar um skráningu og námið eru veittar á vef Símenntunar: http://simennt.khi.is og í síma 563 3980.
vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalnámskrá
Viðbótarnám
í íslensku fyrir grunnskólakennara