Morgunblaðið - 02.04.2006, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 02.04.2006, Qupperneq 35
borðið var tekið og dansað í stofunni. Við ætluðum að dansa í dempuðu ljósi en þá kom mamma og kveikti. Ekkert vín var haft um hönd í þá daga,“ segir Guðrún. „Mér fannst gaman að fara í bíó á unglingsárunum. Þá var mest sýnt af dönskum myndum. Uppáhaldsleik- konan mín var dönsk, Karina Bell hét hún og var voðalega sæt. Ég skrifaði mörgum leikurum í gamla daga og fékk sendar myndir af þeim til baka. Til dæmis fékk ég mynd af Colin Moor og fjölritað bréf. Milton Shills sendi mér líka mynd. Ég sá síðar allar myndir með Gloriu Swanson, þær voru margar sögulegs eðlis, ég var ekkert fyrir gaman- myndir. Þegar ég var 16 ára fékk ég sem fyrr greinir vinnu hjá Heildverslun Garðars Gíslasonar, ég vann á skipti- borðinu, gaf samband á borðin hjá skrifstofufólkinu, þaðan fór ég í vefn- aðarvöruverslun til Ásgeirs G. Gunn- laugssonar í Austurstræti 1, Veltan var húsið kallað og stóð þar sem Ing- ólfstorg er nú. Ég vann tvisvar í þess- ari gömlu vefnaðarvöruverslun, fyrst árið 1934 og síðar 1953. Einnig vann ég á skrifstofu hjá Café Höll og stutt- an tíma leysti ég af á Skjaldbreið. Til Skipaútgerðar ríkisins réðst ég 1954 og starfaði þar í 25 ár við innheimtu og gjaldkerastörf. Á þeim árum keypti ég alltaf Hjemmet og Familie Journal. Þegar blöðin voru komin var kallað til mín: „Guðrún, dönsku blöð- in eru komin!“ Ég fylgdist með tísk- unni og sögunum og Gissuri gullrassi og Rasmínu konu hans.“ Fór á fundi hjá Láru miðli og var í tjaldi á Alþingishátíðinni 1930 Guðrún kveðst líka lengi hafa haft áhuga á dulrænum efnum. „Ég fór á miðilsfundi hjá Láru miðli og trúði alveg á hana. En svo reyndist þetta „blöff“, ég fór líka á fundi hjá Hafsteini miðli.“ Ég spyr um stóratburði eins og Al- þingishátíðina 1930 og lýðveldishá- tíðina 1944. „Ég var í tjaldi á Þingvöllum í júní 1930. Tjaldið var ekki með neinum botni og segl var lagt á grasið. Kveikt var á olíuvél sem logaði alla nóttina í tjaldinu. Einn var á vakt til að passa upp á eldinn um nóttina,“ segir Guð- rún. Hún var hins vegar í Skíðaskálan- um 17. júní 1944. „Það var hellirigning, við höfðum fengið viku í Skíðaskálanum og fór- um ekki á Þingvöll.“ Guðrún hefur ferðast talsvert, m.a. til Kanada þar sem hún átti ættfólk en heimili sitt átti hún lengst af í austurbæ Reykjavíkur. „Ég þekkti sem ung einhverja manneskju í hverju húsi allt frá Að- alstræti og vestur á Framnesveg. Vesturgatan hét raunar áður Hlíð- arhúsastígur og Suðurgatan hét Kirkjugarðsstígur. Ég hef séð miklar breytingar í Reykjavík þau 95 ár sem ég hef lifað,“ segir Guðrún Straum- fjörð. Hún kveðst una hag sínum vel á Sóltúni. „Starfsfólkið er mjög gott hér – og svo hef ég Rögnu, það er dýrmætt, – það eru svo margir farnir sem ég þekkti.“ húsastígur Guðrún Straumfjörð ung kona í gulum Úlsterfrakka með nýlagt hár. „Gulla Thorlacius hárgreiðslukona var nýkomin frá Danmörku, það þótti fínt þá.“ Guðrún (t.v.) smábarn með frænda sínum af Grettisgötunni. F.v. Vigdís Torfadóttir, Sigríður Pétursdóttir og Ragnheiður Straum- fjörð. Vigdís er í upphlut, Sigríður í dagtreyju og Ragnheiður á peysufötum. Guðrún 12 ára tók myndina fyrir framan Torfabæ. Grettisgata 11, þar uppi á rishæð fæddist Guðrún Straumfjörð í maí árið 1911. gudrung@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 35 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 Króatía Frá 45.895kr. frá 45.895 kr. Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. hjónmeð 2 börn, 2-11 ára, vikuferð í maí eða sept. Diamant íbúðahótelið. Heitasti staðurinn í fyrra. Brottfarir í júní og ágúst að seljast upp Bókaðu núna áwww.heimsferdir.is E N N E M M / S IA / N M 20 62 5 Orlando Vacation Homes USA Thank you to everyone who visited us at the Hótel Loftleiðir. We enjoyed meeting all of you and look forward to seeing you soon in sunny Florida! www.livinfl.com Starfsfólk Hótels Freyju er komið í páskaskap. Yndisleg tilboð í gangi á hótelinu um páskana Gisting og matur. Pantanir í símum 4866174 - 4866074 - 8626071 DRAUMAKOT OLGU - SJÓN ER SÖGU RÍKARI Ný bútasaumsefni frá Bandaríkjunum og gjafavara Kaffi fyrir gesti og gangandi á frábæru páskatilboði Verið velkomin, aðeins klukkustundarakstur frá Reykjavík Starfsfólk Hótelsins Hótel Freyja, Minni Mástungu, Gnúpverjahreppi, Árnessýslu hotelfreyja.is Hótel Freyja
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.