Morgunblaðið - 02.04.2006, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
BERLÍNARTVÍÆRINGURINN
eða Berlin Biennale var formlega
settur í fjórða sinn hér í borg 25.
mars síðastliðin. Listsýningunni –
sem er nú orðin ein af þeim mik-
ilvægari í Evrópu – lýkur 28. maí.
Segja má þó að þessi tiltekni
tvíæringur sé búinn að vera við
lýði mun lengur en þessa viku síð-
an hann opnaði. Sýningarstjórarn-
ir, þau Maurizio Cattelan, Mass-
imiliano Gioni og Ali Subotnick,
hafa byggt upp stemningu fyrir
honum markmiðsbundið í um ár,
oft með nýstárlegum hætti.
Þríeyki þetta hefur á orð á sér
sem andófsfólk í listheiminum og
hefur leitast við að brjóta upp
reglur og hefðir sem þar ríkja.
Reka t.d. saman The Wrong Gall-
ery og lögðu grunninn að fjórða
tvíæringnum m.a. með því að setja
upp galleríið Gagosian í borginni
(hvers nafn er stolið) og með
reglulegum dálkaskrifum í hið víð-
lesna borgartímarit Zitty og dag-
bókarfærslum í sunnudagsblað
hins virta dagblaðs Frankfurter
Allgemeine.
Farið á sveig
Yfirskrift tvíæringsins í þetta
sinnið er „Af músum og mönnum“
(„Von Mäusen und Menschen/Of
Mice and Men“) og vísar í hina
frægu bók John Steinbeck. Eins
og í þeirri bók er þema tvíærings-
ins í dekkra lagi; missir, firring,
þunglyndi og dauði og voru verk/
listamenn valin af kostgæfni til að
endurspegla þetta.
Sýningarsvæðið er August-
straße í Mitte hverfinu, 70 lista-
menn eiga verk á sýningunni en
valið var úr yfir 700 listamönnum.
Eitt af (mörgum) óvenjulegum
einkennum tvíæringsins eru sýn-
ingarstaðirnir en téð gata býr yfir
mikilli og um margt hrottafenginni
sögu. Lífæð gamla gyðingahverf-
isins lá í gegnum götuna og við
hana er kirkja, kirkjugarður, yf-
irgefinn skóli sem eitt sinn hýsti
kennslustundir fyrir gyð-
ingastúlkur, tómar íbúðir og fleira.
Allt þetta hefur verið tekið í þjón-
ustu tvíæringsins en notkun á
tómum íbúðum undir listrými end-
urspeglar hvernig listalífið hefur
þróast í Berlín síðan múrinn féll.
Markmið sýningarstjóranna var
að fara á sveig við viðteknar hug-
myndir um listaverkasýningu og
gallerí þannig að erfitt væri að
pinna niður nákvæmlega hvar
tvíæringurinn færi fram. Hann
væri semsagt alls staðar og
hvergi, ástand frekar en eitthvað
rými sem gengið er inn í.
Flestir listrýnar eru á því að
þetta markmið sýningarstjóranna
hafi tekist. Blöð og miðlar eru yfir
það heila afar sátt og þrátt fyrir
allnokkra leit fann greinarhöf-
undur ekki tetur af neikvæðri
gagnrýni. Flestir eru á því að
ferskur andvari blási um sýn-
inguna og henni takist að fanga
anda listasenunnar í Berlín vel –
nokkuð sem var lagt upp með.
Berlín hefur orð á sér fyrir að
vera höll undir utangarðslistina
(„avant garde“) og að þar sé allt
látið flakka. Valið á sýningarstjór-
unum hefur því fengið allnokkurt
hrós, hugmyndafræði þríeykisins
fellur eins og flís við rass hinnar
meintu listáru höfuðborgarinnar
(sem er ekki bara opinber höf-
uðborg heldur er búin að leysa
Köln af sem höfuðborg þýsks
listalífs). Emilie Trice hjá NY
Arts Magazine tiltekur þannig að
síðasti tvíræringur hafi fallið um
sjálfan sig vegna of mikillar aka-
demíkur, of einstrengnislegrar
hugmyndafræði. „Götuvirðið“
(„street credibility“) hlyti að vera
mikilvægt í borg eins og Berlín,
sem stærir sig af andstöðu gagn-
vart formlegheitum og ríkis-
báknum og það væri sýningar-
stjóranna að koma þessu í gegn.
Er bara þarna
Einum rýninum, Jörg Heiser
hjá Die Süddeutsche Zeitung’s,
þótti það sérstakt að sýningin
væri svona „heildræn“ og sagði að
venjulega væru tvíæringar þannig
að fremstu listamönnum heims
væri smalað saman án þess að ein-
hver heildarhugmynd hvað listina
sjálfa varðaði væri til staðar. Það
kom reyndar nokkrum á óvart
hversu ákveðnir sýningastjórarnir
voru í því að keyra þetta dökka
þema alla leið. Clair Bishop hjá
Artforum í New York sagðist hafa
átt von á meiri galgopahætti þeg-
ar þetta fólk ætti í hlut. En hitt
ber á að líta að með þessu eru þau
einmitt að vera trú sjálfum sér –
að koma sífellt á óvart og ganga í
berhögg við viðteknar hugmyndir.
Adrian Searle hjá Guardian var
stórorður; lýsti sýningunni sem
„mikilvægri og tímabærri“ og vef-
ritið Artkrush spáði því að að-
ferðafræðin við þennan tvíæring
ætti eftir að reynast áhrifamikil á
næstu misserum.
Þýsku blöðin fylgja svipaðri línu
og að ofan. Niklas Maak hjá tíma-
Myndlist | Berlínartvíæringurinn í fullum gangi í borginni
Dauði, drungi, ang-
ist … og óróleiki
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen í Berlín
arnart@mbl.is
Ljósmynd/Uwe Walter
Vettvangur tvíæringsins er við Auguststraße í Berlín.
Sýningarstjórarnir Maurizio Cattelan, Massimiliano Gioni og Ali Subotnick
hafa orð á sér sem andófsfólk í listheiminum og hafa leitast við að brjóta
upp reglur og hefðir sem þar ríkja.
Markmið skólans er: Faglegur metnaður, fjölbreytni og að mæta séróskum hvers og eins.
Kennsla hefst í óperusöng á fiðlu selló kontrabassa píanó.
Innritun hefst mánudaginn 3. apríl í síma 511 5151
Kennarar við skólann eru m.a.
Páll Hannesson kontrabassaleikari
Pawlikowscy strengjahljóðfæri
Skipholt 29A, sími: 511 5151 gsm: 661 4153 - www.hljomaroglist.com - opið kl. 10 - 18
Alina Dubik
mezzósópran
Þuríður Helga
píanóleikari og nemi á
háskólastigi mun taka
þátt í samspili.
Ewa Tosik Warszawiak
fiðluleikari
Nýr tónlistarskóli og verslun með hljóðfæri hefur opnað
Silfur servíettuhringur
Hrútaber
Gull- og Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Kr. 5.200