Morgunblaðið - 02.04.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 02.04.2006, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞANNIG gætu fyrirsagnir hæg- lega hafa hljómað í síðustu viku þeg- ar greint var frá blaðamannafundi Gunnars og Guðmundar Hallvarðs- sonar í Salnum í Kópavogi. Fund- urinn var um „nýjung“ í málefnum aldraðra, að stofninum til það að Hrafnista og Kópa- vogsbær hafa gert með sér samkomulag um að byggja íbúðir fyrir aldraða, þar sem hægt verður að fá heima- hjúkrun og aðra þjón- ustu. Einnig fylgdi að byggja eigi hjúkr- unarrými, en ekki hef- ur fengist samþykki fyrir því hjá ríkisvald- inu. Heilbrigð- isráðherra var á staðn- um, og lýsti í útvarpsviðtali yfir að hún væri ánægð með þetta framtak, og að Kópavogur væri í sérstökum forgangi í þessum málum. Það er vissulega gleðilegt að eftir 16 ára valdatíma skuli Sjálfstæð- isflokkurinn í Kópavogi hafa áttað sig á að eitthvað þurfi að gera í mál- efnum aldraðra. Það er hinsvegar sorglegt hvað menn gera sig bera að miklu þekkingarleysi með þessum yfirlýsingum. Sjálfstæð búseta aldr- aðra, bæði í þjónustuíbúðum á veg- um sveitarfélaganna og í sérhönnuðum íbúðum á vegum einkaaðila og félagasamtaka, með öllum þeim réttindum og skyldum sem íbúar nýju íbúðanna eiga að hafa, hefur tíðkast ára- tugum saman á Íslandi, bæði í Kópavogi og víð- ar á landinu. Í Kópa- vogi hafa Sunnuhlíð- arsamtökin lyft Grettistaki í þessum málum, án þess að bæj- aryfirvöld hafi haft þar nokkurt frumkvæði. En hvað með hjúkrunaríbúðir sem svo eru kallaðar? Ætlast Gunnar Birgisson til, og félagar hans í Fram- sókn, að fólk kaupi sig inn í þær? Þá ganga þeir væntanlega fyrir sem hafa rúm fjárráð, því hingað til hafa íbúðir fyrir aldraða ekki fengist á neinum tombóluprís. Og ef þeir sem búa í íbúðunum eiga að ganga fyrir á hjúkrunarheimilið, jafnvel geta farið þangað tímabundið, eiga þeir þá að borga fyrir sig þar líka? Eins og staðan er í dag kostar mánaðarvist á hjúkrunarheimili 500 þúsund krón- ur. Það má vel vera að einhver hópur aldraðra á Íslandi hafi svo rúm fjár- ráð að hann geti staðið undir slíkum greiðslum, en samkvæmt minni reynslu er sá hópur ekki stór. Kaupa sér forgang? Og enn má spyrja hvort íbúarnir hafi þá í raun ekki keypt sér forgang inn á hjúkrunarheimili, en slíkt er óheimilt samkvæmt lögum og með því væri stuðlað að tvöföldu heil- brigðiskerfi. Einu kerfi fyrir hina efnameiri, öðru fyrir hina efnaminni. Er þar komin raunverulega ástæðan fyrir áhuga sjálfstæðismanna og framsóknarmanna á þessu fyr- irkomulagi? En sagði ekki heilbrigð- isráðherra í síðustu viku að það mál væri úr sögunni? Ekki treystandi Þrátt fyrir meintan góðan ásetn- ing er greinilegt af ofansögðu að sjálfstæðismönnum í Kópavogi og meðreiðarsveinum þeirra í Fram- sókn er ekki treystandi fyrir þessum málaflokki. Þessir flokkar hafa haft 16 ár til að taka á í þessum málum, en ekki haft döngun í sér til verka. Það er afar ótrúverðugt þegar þeir svo koma korteri fyrir kosningar og segjast hafa fundið lausnina. Aldr- aðir Kópavogsbúar eiga betra skilið. Gunnar I. Birgisson finnur upp hjólið! Ólafur Þór Gunnarsson fjallar um bæjarmálin í Kópavogi ’Þrátt fyrir meintan góð-an ásetning er greinilegt af ofansögðu að sjálf- stæðismönnum í Kópa- vogi og meðreiðarsvein- um þeirra í Framsókn er ekki treystandi fyrir þessum málaflokki.‘ Ólafur Þór Gunnarsson Höfundur er öldrunarlæknir og skipar 1. sæti á V-lista vinstri grænna í Kópavogi. FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Til sölu er 147 fm einbýlishús, ásamt 46 fm bílskúr, við Njálsgerði 6, Hvolsvelli. Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1980 og klætt að utan með Steni. Húsið skiptist í anddyri, eldhús, þvottahús, stofu, borðstofu, gang, fjögur svefn- herbergi, baðherbergi og gestasalerni. Verð kr. 23.700.000. Nánari upplýsingar á www.fannberg.is Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur sími 487 5028 Einbýli á Hvolsvelli Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali Maríubaugur 133 Falleg og björt 121,2 fm íbúð á efstu hæð á einum besta stað í Grafar- holti með frábæru útsýni. Mjög rúmgóð svefnherbergi, þrjú talsins. Stór stofa með afar fallegu útsýni, ölur í öllum innréttingum sem eru mjög vandaðar. Fallegt eldhús. Þvottarými m. innréttingu. Baðherbergi flísa- lagt m. baðkari og sturtu. Aðeins þrjár íbúðir í stigaganginum, ein á hverri hæð. V. 30,9 millj. Linda og Sveinn sýna eignina. Opið hús í dag á milli kl. 14-15 Fasteignasala til sölu Vel þekkt og gróin fasteignasala. Salan hefur ágæta eignaskrá og er í góðu húsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið getur boðið upp á vinnuaðstöðu fyrir allt að 6 manns. Fyrirtæki með góða stækkunarmöguleika. Áhugasamir vinsamlegast leggið fyrirspurnir inn til afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir 10. apríl nk. merkt, F-123. Stakkahraun Hf. - Mónuhúsið Til sölu er heil húseign í Hafn- arfirði (Mónuhúsið). Húsið skiptist þannig: Iðnaðar- og lagerhúsnæði samtals 1.812 fm, sem síðan skiptist í 376 fm iðnaðarhúsnæði, 361 fm vöru- geymslu og 1.075 fm iðnaðar- húsnæði. Byggingarréttur. Malbikuð lóð. Miklir möguleik- ar. Teikningar á skrifstofu. Verðtilboð. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is LEIRUTANGI 21 A - MOSFELLSBÆ OPIÐ HÚS Í DAG Á MILLI KL. 13 OG 15 Um er að ræða fallega 92,5 fm íbúð með sérinngangi og sérgarði í góðu fjórbýli á mjög grónum og barnvænum stað í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu með útgengi í garð, fallegt eldhús og flísalagt baðherbergi. Sérþvottaherbergi. V. 17,6 m. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning. Steindór og Ingibjörg taka vel á móti gestum með heitt á könnunni. Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is Pétur Pétursson lögg. fasteignasali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.