Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 52

Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 52
52 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Sigurður Óskarsson lögg. fasteignasali - Sveinn Óskar Sigurðsson lögg. fasteignasali Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali AÐALSTRÆTI - SKRIFSTOFUHÆÐ TIL LEIGU Erum með til leigu fallega skrifstofu- hæð í þessu nýlega húsi við Ingólfs- torg. Hæðin er um 190 fm og skiptist í þrjár skrifstofur, kaffistofu og opin rými. Auðvelt er að bæta við fleiri skrifstofum. Lyfta er í húsinu. Allur frágangur á lögnum og innréttingum er til fyrirmyndar. Loft eru niðurtekin. Bjart og gott húsnæði. Teikningar og nánari upplýsingar veitir Óskar R. Harðarson, hdl. 5117 Hægt er að skoða fleiri myndir af eigninni á www.kirkjuhvoll.com. Nánari upplýsingar veita Aron í síma 861 3889 og Karl í síma 892 0160. 3.000-4.000 m² atvinnuhúsnæði til leigu/sölu Suðurhraun 3, Garðabæ. Vesturhluti 3.000 m² fjölnotahúss, þar af um 900 m² skrifstofuhæð með fullbúnu mötuneyti og búnings- aðstöðu. Mikil lofthæð (allt að 7 metrar að hluta), stór lóð, gáma- aðstaða, stórar innkeyrsludyr og næg bílastæði. Húsið hefur mik- ið auglýsingagildi þar sem Álftanesvegur verður lagður handan hússins. Samþykktur 1.000 fm byggingaréttur í vestur. Heildar- stærð vesturhluta getur orðið 4.000 m². Í austurhluta eru BYKO og VÍDD. Laust til afhendingar 1. maí. Fasteignafélagið Kirkjuhvoll ehf. sérhæfir sig í útleigu á skrifstofu-, þjónustu-, lager- og iðnaðarhúsnæði og er með rúmlega 35.000 m² á höfuðborgarsvæðinu. FASTEIGNAFÉLAGIÐ KIRKJUHVOLL EHF. www.kirkjuhvoll.com Reynihvammur 1 - Opið hús Opið hús í dag frá 15:00 til 17:00 Nýkomin í einkasölu glæsileg 3ja herb., 93 fm neðri sérhæð í nýlegu fjórbýli. Sérinngangur, vandaðar innréttingar, parket og náttúrusteinn á gólfum, sér- þvottaherbergi, allt sér, frábær staðsetning, stutt í sundlaug, o.fl. Verð 25,6 millj. Ævar býður ykkur velkomin Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is Vorum að fá í einkasölu afar vandaða og glæsilega 144 fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi, ásamt 28 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað. Íbúðin skiptist í rúmgott hol, stórar stofur, rúmgott og vandað eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, sem er nýlega flísalagt í hólf og gólf og þvottahús í íbúð. Nýjir ofnar og ofnalagnir og raflagnir endurnýjaðar. Eikarparket og flísar á gólfum. Tvennar svalir. FRÁBÆR STAÐSETNING. EIGN Í SÉRFLOKKI. Upplýsingar veitir Ingibjörg í síma 864-8800. Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali HJÁLMHOLT - EFRI SÉRHÆÐ M. BÍLSK. ÞAÐ VORU sérkennilegar myndirnar, sem við blöstu á bak- síðu Mbl. 2. mars, þar sem sýnt var, er lögreglumenn fjarlægðu með valdi mótmælendur við skrif- stofur Alcoa á Suðurlandsbraut. Nokkur hópur ungs fólks, sem nefnir sig Ungliða gegn stóriðju, tók sér mótmælastöðu á skrifstof- unni vegna ákvörð- unar auðhringsins Al- coa daginn áður að hefja könnun á hag- kvæmni þess að reisa nýtt álver við Húsavík. Ungliðarnir börðu trommur og blésu í lúðra. Lögreglan var kölluð til. „Þar sem ekki þótti vinnufriður á skrifstofunni,“ og mótmælendur dregnir út með valdi. En skoðum nú, hvað þarna var að gerast. Unga fólkið var að mótmæla auknum stóriðjuáformum á Íslandi og krefjast þess, að Alcoa hefði sig á brott frá landinu. Í yfirlýsingu hópsins segir, að al- menningi hafi fram til þessa verið neitað um þjóðaratkvæðagreiðslu eða önnur úrræði til að hafa áhrif á gang mála í sambandi við stóriðju- áform á Íslandi. Sýnt sé, að ekki dugi umræður, blaðaskrif eða fortölur til að hafa áhrif í þessu máli. Því neyðist ungt fólk til að grípa til eigin aðgerða. Enn fremur vill unga fólkið koma því á framfæri við Alcoa og rík- isstjórn, að þau séu ósátt við gang mála og muni beita öllum ráðum, að ofbeldi undanskildu, (leturbr. mín) til að stöðva framgang stóriðju á Ís- landi. Með öðrum orðum, þetta unga fólk er ekki sátt við þróun mála og finnur sig knúið til að beita öllum tiltækum ráðum til að ná eyr- um ráðamanna þjóðarinnar. Það hefur greinilega áhyggjur af fram- tíðinni, óttast vaxandi mengun á Íslandi, versnandi lífslíkur, auk eyðileggingar á ósnortinni náttúru landsins. Það horfir lengra, horfir til framtíðar, sem það eðli málsins samkvæmt á mest undir. Öfugt við þá skammsýnu ráðamenn þjóðarinnar, sem um þessar mundir virðast aðeins horfa til næsta dags blindaðir af gróðahyggju og með stóriðjuglýju í augum. En bíðum við, nú kemur rúsínan í pylsuendanum. Erna Indriðadóttir, svonefndur „kynningarstjóri“ Alcoa á Íslandi, lætur hafa eftir sér í Mbl., að það sé ánægjuefni, að ungt fólk láti sig varða þjóðfélagsmál og tileinki sér lýðræðislegan rétt til að láta skoð- anir sínar í ljós. „Ungt fólk þarf að læra það“, segir hún, en bætir svo við, að því miður hafi ólætin verið svo mikil á skrifstofunni, að ekki hafi verið annarra kosta völ en kalla til lög- reglu. Þar höfum við það. Það er með öðrum orðum ánægjuefni, að ungt fólk skuli taka afstöðu, en þegar það vill nýta sér þann lýðræðislega rétt að taka af- stöðu og vekja athygli á stefnu- málum sínum á þann hátt, sem það telur árangursríkastan, og án þess að beita hinu minnsta ofbeldi (eða hvenær hefur það verið saknæmt að berja trommur eða blása í lúðra?), þá er því svarað með vald- beitingu, fólk dregið út úr húsi og fleygt út fyrir dyr eins og hverju öðru rusli. Hvílík sýndarmennska, sem þarna birtist í orðum „kynning- arstjórans“. Ekki kom fram í fréttinni, að neitt hefði verið rætt við fólkið eða hlustað á skoðanir þess, hvað það hefði fram að færa eða bæri fyrir brjósti, heldur var því vísað út. Hefði ekki hinum lýðræðiselsk- andi kynningarstjóra farið betur að hlusta á raddir þessa unga fólks, sem virðist hafa gleggri framtíð- arsýn en margir þeir, sem telja sig hátt setta í þjóðfélaginu, jafnvel þótt það hefði valdið einhverri tíma- bundinni truflun á skrifstofu Alcoa. Sýnir ekki þessi uppákoma og aðrar slíkar, sem átt hafa sér stað, að nú er nauðsyn á, að þjóðin, fólkið í landinu, fái að tjá hug sinn til auk- inna stóriðjuframkvæmda á Íslandi í þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa flutt þings- ályktunartillögu um á Alþingi. Sjái ríkisstjórnin sér ekki fært að verða við slíkum óskum, sýnir það aðeins, að hún óttast niðurstöðurnar, enda hafa kannanir þegar sýnt, að meiri- hluti landsmanna er andvígur frek- ari stóriðjuframkvæmdum, a.m.k. í bili. Væru það lýðræðisleg vinnu- brögð. Mótmælin nú eru afleiðing þeirra ólýðræðislegu vinnubragða, sem ríkisstjórn Íslands hefur við- haft í sambandi við stóriðjufram- kvæmdirnar fyrir austan allt frá upphafi og virðist ætla að tileinka sér áfram. Auðhringurinn Alcoa hefur sýnt sitt rétta innræti með aðgerðunum, sem þarna áttu sér stað. Og „kynn- ingarstjórinn“ hefur orðið sér til skammar og ætti því að biðja unga fólkið, sem þarna átti hlut að máli, opinberlega afsökunar. Ég er viss um, að þetta góða, unga fólk, sem hefur svo ríka ábyrgðartilfinningu gagnvart framtíðinni, mun fyrirgefa honum. Lýðræði í framkvæmd? Ólafur Þór Hallgrímsson fjallar um mótmæli við Alcoa ’Auðhringurinn Alcoahefur sýnt sitt rétta inn- ræti með aðgerðunum, sem þarna áttu sér stað.‘ Ólafur Þór Hallgrímsson Höfundur er sóknarprestur á Mælifelli. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.