Morgunblaðið - 02.04.2006, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
GRÍÐARLEGIR sinu-brunar riðu yfir landið á
fimmtudag og föstudag. En mestur var
sinu-bruninn á Mýrum í Borgarfirði. Þar
brunnu allt að 12 jarðir og naumlega tókst
að stöðva eldinn rétt við nokkur íbúðar-hús.
Ekki varð ráðið við eldinn og var hann
látinn hafa sinn gang og brenna út.
Eld-hafið náði allt að fjögurra metra hæð og
var það um 30 km breitt á tímabili. Skyggði
reykurinn á sólina. Talið er að eldurinn hafi
kviknað út frá sígarettu-glóð við
Snæfellsnes-veg.
Engin slys urðu á fólki eða skepnum, en
einnig brunnu eldar í Reykholtsdal og
Skorradal. Einnig var slökkvilið sent að
sinu-bruna í Grafarvogi í Reykjavík. Veðrið er
búið að vera mjög þurrt og því var gróður
afar viðkvæmur fyrir bruna.
Morgunblaðið/RAX
Mikill skaði í sinu-brunum
Þing-kosningar fóru fram í
Ísrael á þriðjudag. Þær voru
sögulegar að mörgu leyti, því
að mikil uppstokkun varð á
rótgrónu flokka-kerfi landsins.
Sigurvegari kosninganna er
nýr flokkur, Kadima, sem
Ariel Sharon
forsætis-ráðherra stofnaði
síðast-liðið haust, áður en
hann fékk heila-blóðfall og féll
í dá. Gamli flokkurinn hans
Sharons, Likud, galt afhroð í
kosningunum.
Ehud Olmert hefur farið
fyrir Kadima síðan Sharon
veiktist. Kadima fékk 28
þingmenn kjörna. En 120
fulltrúar eiga sæti á ísraelska
þinginu. Þetta er öllu minna,
en spáð hafði verið. Sigur
flokksins markar þó tímamót.
Verkamanna-flokkurinn
kom næstur, hlaut 20
þingmenn. Bókstafs-trúaðir
gyðingar fengu þrettán
þingmenn, flokkur
innflytjenda frá fyrrverandi
lýðveldum Sovétríkjanna tólf.
Og í fimmta sæti kom svo
Likud, með aðeins ellefu
þingmenn. Ehud Olmert
verður væntanlega áfram
forsætis-ráðherra, en það
verður flókið mál fyrir hann að
mynda nýja ríkis-stjórn.
Olmert leggur áherslu á að
ákveða einhliða varanleg
landamæri Ísraels.
Þó að niðurstaða
kosninganna í Ísrael teljist
söguleg vakti áhugaleysi
kjósenda athygli. Kjörsókn var
aðeins 62,3%.
Sögulegar þing-
kosningar í Ísrael
Hljómsveitirnar Kaiser
Chiefs, Wolf Parade,
Brazilian Girls og All is
Love eru á meðal þeirra
sem koma fram á Iceland
Airwaves í haust.
Nítján hljómsveitir og
listamenn hafa staðfest
komu sína en hátíðin fer
fram dagana 18.–22.
október næst-komandi.
Fjölmargir innlendir
listamenn hafa einnig
verið bókaðir á hátíðina.
Má þar nefna Benna
Hemm Hemm sem var
valin bjartasta vonin á
Íslensku
tónlistar-verðlaununum,
Jakobínarínu og Mammút
sem báðar hlutu
verðskuldaða athygli hjá
Rolling Stone, Mugison,
Leaves, Hjálmar og Sign.
Alls munu um 120
listamenn og hljómsveitir
koma fram á Iceland
Airwaves 2006.
Næsta Iceland
Airwaves-hátíð skýrist
Kanadíska hljómsveitin Wolf
Parade.
ÓFAGLÆRT starfsfólk á
nokkrum hjúkrunar-heimilum
efndi til setu-verkfalls á
miðnætti aðfara-nótt
miðvikudags. Stóð verkfallið í
sólarhring.
Með verkfallinu vildi
starfsfólkið leggja áherslu á
kröfur sínar um sömu laun og
fólk í sambærilegum störfum
hjá Reykjavíkur-borg. En fólkið
sem starfar hjá borginni er
með um 30.000 krónum
hærri byrjunar-laun.
Aðstoðar-maður
fjármála-ráðherra segir
ráðuneytið hafa gert
þjónustu-samning við
þjónustu- og dvalar-heimilin.
Ekki stæði til að endur-skoða
hann.
Sveinn H. Skúlason,
forstjóri Hrafnistu, segir
starfsfólk þar skilja aðgerðir
ófaglærða starfsfólksins.
Reynt og gott starfsfólk fari
burt af vinnu-staðnum og leiti
sér að nýju starfi.
Guðmundur Hallvarðsson,
stjórnar-formaður Hrafnistu,
segir að ekkert svigrúm sé til
að hækka laun vegna
samninga við ríkið. Gjaldið
sem ríkið borgar fyrir íbúana
sé allt of lágt. Tvær nefndir
sem hafi átt að skoða málið
hafi komist að þeirri
niðurstöðu.
„Við viljum fá sömu laun
fyrir sömu vinnu, svo einfalt er
það,“ segir Rannveig
Gunnlaugsdóttir, starfsmaður
á hjúkrunar-deild á Hrafnistu í
Reykjavík. Ófaglært starfsfólk,
sem er félagar í Eflingu, er
með um 104.000 krónur í
byrjunarlaun. Rannveig segir
að fólk þurfi að geta lifað af
launum sínum miðað við átta
tíma vinnu-dag. „Við viljum
ekki þurfa að vinna aukavaktir
um helgar, á kvöldin og á
nóttunni,“ segir Rannveig.
Hún bætir við að vegna
undir-mönnunar sé gríðarlegt
álag á starfsfólki.
Starfs-fólk hjúkrunar-
heimila krefst bættra kjara
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ÍBV mun ekki tefla fram liði á
Íslands-móti kvenna í
knattspyrnu í sumar. Ákveðið
var að hætta við þátttöku í
mótum ársins vegna
mann-eklu. En ÍBV hefur
þurft að sjá á eftir mörgum
leikmönnum og meðal þeirra
eru Olga Færseth,
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Pálína Bragadóttir og Elín
Anna Steinarsdóttir.
ÍBV hefur verið í hópi
bestu liða landsins
undanfarin ár. Það varð
bikar-meistari 2004 og
síðustu tvö árin hefur ÍBV
lent í öðru sæti á
Íslands-mótinu. Þess má
geta að meistara-flokkur ÍA,
sem féll úr deildinni í fyrra,
hefur verið lagður niður. Tvö
af liðunum sem léku í
Landsbanka-deildinni í fyrra
eru því ekki lengur til.
Liðin sem leika í
Landsbanka-deild kvenna í
sumar verða þessi:
Breiðablik, Valur, KR,
Stjarnan, Keflavík, FH, Fylkir
og Þór/KA.
ÍBV ekki með í efstu deild kvenna