Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 63

Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 63 MINNINGAR ar færi gafst og var þá víða farið enda stúlkan í mörgu lík þér. Þegar Oliv- era stálpaðist varðstu þeirrar ham- ingju aðnjótandi að kynnast Jóhönnu þinni, konunni sem svo sannarlega reyndist vera sú eina rétta fyrir þig. Með henni varðstu endanlega Íslend- ingur og fannst þann lífsstíl sem upp- fyllti drauma þína um gott líf. Jó- hanna og fjölskylda tóku Oliveru strax sem einni af þeim og þær Jó- hanna urðu mjög nánar vinkonur. Dusan, þú elskaðir að keyra og gerðir það að atvinnu þinni. Þú varst sérlega gestrisinn og snilldarkokkur. Þú virtist ekki þurfa að hafa neitt í höndunum til þess að útbúa veislu- borð þegar gestirnir streymdu að. Þú elskaðir öll dýr og þá sérstaklega páfagaukinn þinn, hana Lillu. Alltaf var líf og fjör í kringum þig og kímni- gáfa þín smitaði umhverfið. Elsku Olivera dóttir mín og kæra Jóhanna, þið hafið misst ólýsanlega mikið. Ég veit að það fólk sem í kringum ykkur er mun styrkja ykkur í sorg ykkar. Samhugurinn hjálpar ykkur og góðu minningarnar færa ykkur ríkidæmi sem þið munuð njóta um ókomin ár. Dusan, þú varst öðrum mönnum fremur sá maður sem kunni að gefa. Sú var náðargáfa þín. Jóhanna og Olivera, ættingjar og vinir, munum hve rík við erum eftir kynnin við Dusan. Það mun sefa sorg okkar með tímanum. Bestu kveðjur Dusan minn. Þuríður Una Pétursdóttir. Elsku Dússi minn, ég sit hér við tölvuna mína heima og er að reyna skrifa nokkur orð til þín en á svo erf- itt með það án þess að tárast, tárast þannig að ég sé bara ekki á lykla- borðið mitt. Frá því að ég man eftir sjálfri mér, man ég eftir þér, pabbi minn var þinn besti vinur og þú varst pabba mínum hans besti vinur. Það var og hefur alltaf verið mikið talað um þig á mínu heimili, þú og pabbi hafið brallað margt saman í gegnum árin, ég man svo vel eftir því þegar við fórum öll saman, þú, Jóhanna, pabbi og ég í langt ferðalag, keyrðum í gegnum Þýskaland og enduðum í Serbíu, ég man ekki alveg hvað ég var gömul þá en þessu ferðalagi man ég vel eftir og mun geyma það vel í hjarta mínu. Þú hefur alltaf átt vissan part í mínu hjarta, þú hefur alltaf ver- ið mér eins og minn nánasti frændi, þú og Jóhanna hafið ávallt verið ná- lægt mér. Árin líða svo hratt frá manni. Eftir að ég fór að búa sjálf og flutti frá pabba minnkaði sambandið okkar á milli, en alltaf fékk ég að vita hvað Dusan og Jóhanna voru að bralla, ef pabbi sagði mér ekki fréttir af ykkur á hverjum degi þá spurði ég. Það er ekki langt síðan pabbi festi kaup á lóð á Þingvöllum, hann var al- veg í skýjunum, búinn að kaupa lóð rétt hjá Dússa vini sínum, þarna átt- uð þið góðar stundir, stundir sem verða aldrei teknar til baka. Eftir því sem ég vissi best eyddu Dússi og Jó- hanna öllum sínum frítíma þar, dunda við bústaðinn sinn eða þá að hjálpa öðrum vinum við sinn bústað. Þegar sonur minn eldri var skírður þá komu Dusan og Jóhanna í skírnina. Ég á svo yndislega mynd af Dússa haldandi á eldri stráknum mínum, þessi mynd fer beinustu leið upp á vegg hjá mér, Alexander Leví sonur minn var mjög hrifinn af þér enda kallar hann þig alltaf Dússi go go (gogo þýðir Lilla páfagaukur). Mikið er ég búin að gráta síðan ég frétti að þú værir dáinn, ég hef í rauninni ekki getað hætt að gráta. Alltaf þegar ég sé strætó keyra framhjá hugsa ég til þín, skil þetta bara ekki, ég vissi ekki að það myndi verða svona erfitt að kveðja þig, tím- inn líður allt of hratt. Ég hitti þig síð- ast fyrir um fjórum til fimm vikum, ég var eiginlega nýbyrjuð að vinna á Landspítalanum þegar ég rakst á þig og Jóhönnu. Hún var með þér í lab- bitúr, þú varst í hjólastól. Mér brá svolítið, fannst þetta ekki sá Dússi sem ég þekkti, mér fannst ég bara þekkja augun þín, brúnu augun þín svo falleg. Þú varst þreyttur að sjá en gafst þér þó tíma til að spjalla við mig, rosa fannst mér gott að hitta þig, ég náði að tala við þig smá, tók utan um þig og kyssti þig á kinnina. Eftir að hafa hitt þig lofaði ég sjálfri mér að ég myndi sko vera dugleg að koma í heimsókn, ég gerði margar til- raunir til að koma til þín, en einhvern veginn, Dússi minn, þá gat ég það ekki, ég bara táraðist, hugsaði sem svo að Dússi vildi ekki sjá mig grát- andi en sem betur fer fór pabbi nán- ast á hverjum degi og heimsótti þig, hringdi svo alltaf strax í mig og sagði mér fréttir af þér. Ég er svo þakklát fyrir það að tengdaforeldrar mínir fengu að heimsækja þig áður en þú fórst, þú leyfðir þeim að biðja fyrir þér, þau sögðu mér að þú hefðir grát- ið, og ég trúi því, Dússi minn, að á þeirri stundu hafirðu tekið á móti Guði inn í þitt líf. Ég trúi því, Dússi minn, að núna sértu hjá Guði, ég mun hitta þig aftur, það veit ég. Útförin þín var yndisleg. Ég ætla með Alexander núna fljótlega að leiði þínu, við ætlum að gróðursetja páskaliljur hjá þér, elsku vinur. Elsku besta Jóhanna, Olivera og fjölskylda, enn og aftur þá votta ég ykkur mína dýpstu samúð og bið Guð að hjálpa ykkur á þessum tímum, vernda ykkur og blessa. Ég kveð þig nú með þessum orðum úr Jóhannes- arguðspjalli 3:16: „Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ Kveðja frá Arnari og strákunum. Nada Dokic. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Jóhanna, Guð blessi þig og fjölskyldu þína. Veiðifélagar SVR. Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, SIGRÚNAR GRÉTU GUÐRÁÐSDÓTTUR, Dalbraut 16, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11-E á Landspítalanum við Hringbraut. Sigurjón Ágústsson, María Hrund Sigurjónsdóttir, Jafet Óskarsson, Guðráður Jóhann Sigurjónsson, Unnur Ólöf Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMANNS SKÆRINGSSONAR, Suðurbraut 2A, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins. Ósk Alfreðsdóttir, Jóna Birna Guðmannsdóttir, Sveinn Gunnarsson, Inga Kristín Guðmannsdóttir, Kristinn Þór Ásgeirsson, Ósk Heiða, Guðmann og Linda María, Guðni Már, Benedikt Reynir og Bjarki Þór. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTRÍÐUR GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, Vallargötu 9, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju miðviku- daginn 5. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Björgunarsveit Suðurnesja. Sigurður Herbertsson, Fríða Bjarnadóttir, Eyjólfur Herbertsson, Lára Halldórsdóttir, Þórdís Herbertsdóttir, Grétar Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur stuðning, vináttu og samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR frá Litlu-Tungu í Holtum, Grænumörk 2, Selfossi. Sérstakar þakkir fá Þórir B. Kolbeinsson læknir, hjúkrunarfólk deildar B-6, Landspítala Fossvogi og allir þeir aðrir sem sýndu henni hjálpsemi og alúð. Guð blessi ykkur öll. Karl J. Þórarinsson, Inga Jóna Einarsdóttir, Þórdís T. Þórarinsdóttir, Vilhjálmur Þórarinsson, Guðbjörg Ólafsdóttir, Vigdís Þórarinsdóttir, Gunnar A. Jóhannsson, Þorsteinn G. Þórarinsson, Sigríður Ása Sigurðardóttir, barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu hjálp og vináttu við andlát og útför míns kæra mágs, KARLS ÞORSTEINSSONAR, Hörðalandi 6, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll, Gréta Árnadóttir. Systir okkar og mágkona, GUÐRÚN SIGRÍÐUR STEINGRÍMSDÓTTIR fyrrum húsfreyja í Laufási við Laufásveg, sem andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík laugardaginn 25. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu- daginn 3. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeir, sem vilja minnast hennar, láti líknar- stofnanir njóta þess. Þóra Steingrímsdóttir, Jón Steingrímsson, Sigríður Löve, Arndís Steingrímsdóttir, Þórhallur Tryggvason, Agnar Tryggvason, Þorbjörg Tryggvadóttir, Anna Guðrún Tryggvadóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargrein- unum. Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning- argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.