Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 68
68 SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Krýsuvíkursamtökin fagna í ár 20 ára af-mæli og vinna um þessar mundir að út-gáfu veglegs afmælisrits. „Á 10 ára af-mæli samtakanna var einnig gefið út rit
sem rakti söguna frá stofnun fram að þeim tíma-
punkti. Nú ætlum við að gera upp næstu 10 ár sem
komu á eftir,“ segir Ragnar Ingi Aðalsteinsson, rit-
stjóri afmælisritsins.
Krýsuvíkursamtökin voru upphaflega stofnuð
sem meðferðarúrræði fyrir unglinga í fíkniefnum
en í áranna rás hefur starfsemin þróast. „Í dag rek-
um við mjög árangursríka langtímameðferð fyrir
þá sem ekki hafa náð árangri annars staðar og er
eftirspurnin mjög mikil.“
Á afmælinu fagnar félagið sérstaklega þeim ár-
angri sem náðst hefur í fjármálum Krísuvík-
ursamtakanna: „Mikið hefur unnist, og má fyrst
nefna að þegar 10 ára afmæli samtakanna var fagn-
að var reksturinn mjög erfiður og skuldir miklar.
Umskipti urðu í stjórn félagsins og Lovísa Christ-
iansen framkvæmdastjóri og Sigurlína Davíðs-
dóttir formaður sem þá tóku við rekstrinum eiga
heiðurinn af því að hafa endurskipulagt og endur-
fjármagnað reksturinn og lækkað skuldir stórlega,
ásamt því að viðhalda fullum rekstri.“
Meðferðarrúrræði samtakanna hafa einnig verið
í stöðugri þróun: „Árangur meðferðarinnar er í dag
mjög glæsilegur en nýverið létu Krýsuvík-
ursamtökin óháða aðila gera úttekt á árangri með-
ferðarinnar. Niðurstöðurnar eru mjög hvetjandi,
og í ljós kom að af þeim sem hafa verið útskrifaðir í
1 ár eru 56% enn í bata, og 25% þeirra sem útskrif-
aðir hafa verið í 5 ár. Sérstaklega vekur athygli að
undanfarin 2,5 ár hefur verið 100% árangur meðal
þeirra kvenna sem útskrifaðar hafa verið, sem er
mjög merkilegur árangur. Þegar haft er í huga
hvaða hóp samtökin sinna verður þetta að teljast
gríðarlega góður árangur,“ segir Ragnar Ingi.
Áætlað er að afmælisritið komi út í sumar og
verður þar saga Krýsuvíkursamtakanna rakin í
stórum dráttum. Gerð verður ítarleg grein fyrir því
mati sem fram fór á gæðum meðferðarinnar en
einnig verða birtar reynslusögur fólks sem náð hef-
ur bata í Krýsuvík. Þá verður viðtal við Þorgeir
Ólason, forstöðumann meðferðarheimilisins, um
þróun meðferðarinnar: „Meðferðin hefur verið í
stanslausri þróun allan þennan tíma og undir stjórn
Þorgeirs hefur starfið blómstrað. Grunnurinn að
hinum góða árangri meðferðarinnar liggur í þessari
þróun, og stöðugri leit að árangursríkari aðferðum,
en ekki síst því að hjá okkur starfar úrvalsfólk sem
er áhugasamt um starf sitt og leggur sig allt fram
við að hjálpa vistmönnum.“
Vímuvarnir | Veglegt afmælisrit gefið út og farið yfir árangursríkt starf í tuttugu ár
Krýsuvíkursamtökin í tvo áratugi
Ragnar Ingi Að-
alsteinsson fæddist á
Vaðbrekku í Hrafnkels-
dal 1944. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum að
Laugarvatni 1969,
kennaraprófi frá Kenn-
araháskóla Íslands
1982 og meistaragráðu
í kennslufræðum frá
sama skóla árið 2000.
Árið 2004 lauk Ragnar Ingi meistaranámi í ís-
lenskum fræðum við HÍ og leggur nú stund á
doktorsnám við sama skóla. Hann hefur lengst
af unnið við kennslustörf í unglingadeildum
grunnskólanna og síðar sem aðjúnkt í íslensku
við KHÍ frá 2002, auk þess að vinna að rit-
störfum. Ragnar Ingi er kvæntur Sigurlínu
Davíðsdóttur og á með henni einn son, auk
þess sem hann á einn son af fyrra hjónabandi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Orkusviðið í kringum okkur á meðan
við sofum eða dveljum í hugleiðslu-
ástandi er afar magnað - draumarnir
eru ekki bara skýrir, heldur líka upp-
lýsandi á mjög þýðingarfullan hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það væri frábært fyrir nautið, sem er
hin mikla eyðslukló dýrahringsins, að
finna upp á margvíslegum leiðum til
þess að afla peninga. Þú getur það með
minni fyrirhöfn en þú heldur. Aflaðu
þér upplýsinga.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Taktu þér þann tíma sem þú þarft. All-
ir hafa sinn gang og ekki hægt að ýta á
eftir þínum án þess að það leiði til eft-
irsjár. Eitthvað kemur upp á yfirborðið
innan tíðar sem gerir réttu ákvörð-
unina augljósa.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Lífið er orka. Orkan sem þú leggur í
það sem þú fæst við er líf þitt. Gakktu
úr skugga um að þitt viðfangsefni sé
þinnar dýrmætu athygli virði. Ef það
gengur upp, mun það verða mörgum til
góðs?
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið ræður yfir veðbandalausri tján-
ingarleið og hugmyndirnar renna án
afláts. Kannski dettur því í hug að sjá
sér farborða á einhvern glænýjan hátt.
Fiskar og hrútar eru þínir dyggustu
stuðningsmenn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er staðreynd, að því klárari sem
manneskja er, því flæktari er hún í
hluti sem minna greindu fólki þykja
hversdagslegir. Það gæti skýrt ein-
falda hrifningu dagsins í dag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Voginni tekst best upp þegar hún er í
tilfinningalegri fjarlægð frá tilteknu
vandamáli. Hreinsaðu hugann og
reyndu að komast eitthvað í burtu.
Kímnin er græðandi. Gefðu heilabúinu
frí og gefðu þér tíma til að hlæja.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er frábær miðlari. Sam-
bönd styrkjast vegna hæfileika hans til
að tjá sem með orðum. Það spillir held-
ur ekki fyrir að aðdráttarafl þitt er
með ólíkindum í augnablikinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Verkefni silast áfram. Breyttu um að-
ferð svo þú komist fyrr í mark. Það
getur líka verið þreytandi að vera alltaf
og einn við stjórnvölinn. Leyfðu eins
mörgum að leggja í púkkið og kostur
er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er minnug eins og fíll. Ef
einhver móðgar hana einu sinni, fær
viðkomandi sjaldnast tækifæri til þess
að gera það aftur. Gerðu undantekn-
ingu í dag. Þér verður umbunað fyrir
að gefa einhverjum annan séns.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er sterkur, metn-
aðargjarn og öflugur. Reyndar ertu
svo tilbúinn til þess að glíma við um-
heiminn að fæstir hika við að skora á
þig. Mættu því sem kemur.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þú trúir á skapandi verkefni þín og
hæfileika kennir þú öðrum að trúa á þá
líka. Þú ert ekki hrokafullur. Að hafa
jákvæða skoðun á getu sinni er nauð-
synlegur þáttur í því að vera listrænn
hugsjónamaður.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í tvíbura blaðrar og
blaðrar um allt og ekkert
og það sem er nýtt og
spennandi. Merkúr og Júpíter eru líka í
spjallstuði, og hinar kosmísku samræður
eru eins og lifandi bakgrunnssuð. Í því
má greina klingjandi setningabúta sem
við mannfólkið gætum hent á lofti til þess
að byrja samræður.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 depill, 4 for-
bjóða, 7 byssubógs, 8 loft-
gatið, 9 rödd, 11 forar, 13
innyfli, 14 herkvöð, 15
flói, 17 blása, 20 tjara, 22
kuldablær, 23 heimild, 24
þvaðra, 25 illa.
Lóðrétt | 1 blotna, 2 árar,
3 kvenfugl, 4 lagað, 5 ró-
in, 6 mannsnafn, 10 hárf-
lóki, 12 áhyggjur, 13
svelgur, 15 kroppur, 16
borguðu, 18 nef, 19 gera
fjáðan, 20 aðeins, 21 urg-
ur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 trúrækinn, 8 þykkt, 9 sötra, 10 net, 11 grafa,
13 auðna, 15 skálm, 18 eisan, 21 ári, 22 starf, 23 teymi,
24 taumhalds.
Lóðrétt: 2 rakna, 3 rætna, 4 kústa, 5 notað, 6 óþæg, 7
hala, 12 fyl, 14 uxi, 15 sósa, 16 ábata, 17 máfum, 18 eitla,
19 skyld, 20 náin.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0–0
5. Bd3 c5 6. Rge2 d6 7. d5 b5 8. 0–0
bxc4 9. Bxc4 e5 10. e4 Bxc3 11. Rxc3
Rfd7 12. f4 Rb6 13. Be2 R8d7 14. f5
a5 15. Bb5 Ba6 16. a4 f6 17. De2 Bxb5
18. Rxb5 Db8 19. Bd2 c4 20. Hf3
Rxa4 21. Hxa4 Dxb5 22. Dxc4 Dxb2
23. Bc1 Db8 24. Hb3 De8 25. Be3
Hc8 26. Db5 Dh5 27. Dd3 g6 28. Hb7
Hf7 29. Hb1 Hg7 30. Da6 Hc2 31.
Da8+ Rf8 32. Hxa5
Staðan kom upp á opna alþjóðlega
Reykjavíkurmótinu sem lauk fyrir
skömmu í skákmiðstöðinni í Faxa-
feni 12. Alþjóðlegi meistarinn Bragi
Þorfinnsson (2.367) hafði svart gegn
Atla Frey Kristjánssyni (1.922).
32. … Hxg2+! hróksfórn sem þving-
ar fram mát í mesta lagi sex leikjum
en endalok hvítu stöðunnar urðu þó
fyrr en það eftir 33. Kxg2 De2+ 34.
Bf2 gxf5+ 35. Kh3 Dg4#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.