Morgunblaðið - 02.04.2006, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. APRÍL 2006 73
Á ÞESSARI fyrstu plötu dúettsins
NBC, sem ber heitið Drama, er svo
sannarlega dramatík á ferð. Þeir
Stjáni og Dóri sem sjá alfarið um
rappið á plötunni virðast ganga alla
leið í að setja sig í dramatískar stell-
ingar. Textar fjalla langflestir um
persónulegar eða samfélagslegar
krísur piltanna og undirspilið er
uppfullt af tilfinningaríkum og
dramatískum sándum með laglínum
í molli. Í lok Síðasta lagsins, sem er
númer 11, nær dramatíkin hámarki
þegar rappararnir segjast ætla að
hætta í rappinu og stimpla sig svo út
með setningunni: „Dóri DNA er
dauður.“
Eftir nokkrar hlustanir fara text-
arnir aðeins að skýrast og ljóst verð-
ur að hér eru á ferðinni afbragðs lýs-
ingar á lífi ungra manna á Íslandi í
dag. Þeir eru nokkurs konar hvunn-
dagshetjur, ósköp venjulegir strák-
ar sem einnig eru hluti af súb-kúltúr
hip-hoppsins. Við fáum að heyra um
litla stráka með stóra drauma, og
hvernig þeir fóta sig í skóla, ástar-
málum og í frístundum. Að lokum
eru örlög hvunndagshetjanna farin
að skipta hlustandann máli og mað-
ur hálfvonar að það komi nú ekkert
fyrir þessa leitandi stráka sem finn-
ast þeir þurfa að leika töffara þótt
þeir séu í raun bara saklausir, ráð-
villtir og jafnvel svolítið hræddir.
Raddir rapparanna eru blæ-
brigðaríkar og þeir hafa gott vald á
að leika sér að mismunandi töktum.
Textar eru sem fyrr segir til mikillar
fyrirmyndar. Það er helst að stund-
um séu Stjáni og Dóri fullóskýr-
mæltir, en það fer reyndar alveg eft-
ir því hvaða lag á í hlut. Sem dæmi
um óskýrmæli væri e.t.v. hin mjög
svo grípandi lína lags númer 3: „Upp
með hendurnar, gefið upp ránsfeng-
inn“ sem hljómar meira eins og:
„Upp me endunar, gefið upp brjóss-
igginn.“ Geri ég mér þó fulla grein
fyrir því að það er afar erfitt að bera
skýrt fram „ránsfenginn“ á eins
stuttum tíma og lagið krefst og geri
ég það ekkert betur, en ef gera má
kröfu um skýrmæli til einhverra,
ætti það að vera til rappara. Þetta
eru þó hnökrar sem skipta litlu máli,
og í heildina séð er diskurinn fullur
af prýðisefni, hvort heldur sem mað-
ur einblínir á rapp/raddir eða á
sjálfa grunnana að lögunum.
Það er heilmikil dulúð sem maður
finnur fyrir í lögunum, og stemmn-
ingin er lík þeirri stemmningu sem
verður til að næturlagi. Það útskýrir
líklega hið rólega og þunga tempó
sem heldur sér í gegnum lögin, og
diskurinn hentar að sama skapi mun
betur til kvöld- og næturhlustunar
en fyrir hábjartan dag. Þessi dulúð
er ánetjandi og fær mann til að
sækja í diskinn á síðkvöldum. NBC
eru vonandi ekki dauðir úr öllum
æðum eftir þennan prýðisdisk, og
krýni ég þá félaga, Dóra og Stjána,
dramadrottningar næturinnar.
Dramatík í
Reykjavík
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur NBC, Drama. 12 lög, heild-
artími 41.56 mínútur. NBC eru Kristján
Þór Matthíasson, StjániHeitirMisskilinn,
og Halldór Halldórsson, Dóra DNA.
Gestir á disknum eru Kájoð, Blazroca,
Diddi Fel ,Blazematic, Dj Magic og Siggi
Skurður, . Um takta sá Palli PTH. Höf-
undar gefa sjálfir út 2005.
NBC – Drama
Ragnheiður Eiríksdóttir
Útlit er óneitanlega kosturþegar haldið er út áfrægðarbrautina, en þaðgetur líka verið ókostur –
það gengur betur að vekja athygli
og selja plötur ef tónlistarmaður er
glæsilegur útlits, en það getur líka
verið til vandræða, ekki síst ef við-
komandi vill að tónlstin sé í aðal-
hlutverki. Þannig er því eiginlega
farið með hljómsveitina Yeah Yeah
Yeahs, sem vakti mikla athygli fyrir
útlit og klæðaburð söngkonu sinnar,
svo mikla athygli að hljómsveitinni
þótti nóg um.
Karen Orzolek, sem jafnan er
kölluð Karen O, var í listaháskóla í
Ohio og kynntist þar trommuleik-
aranum Brian Chase sem lagði
stund á djassfræði. Karen kunni
ekki nema miðlungi vel við sig í
Ohio og flutti sig um set, fór frekar í
skóla í New York. Þar kynntist hún
gítarleikaranum Nicolas Zinner og
áður en langt var um liðið voru þau
farin að spila saman í þjóðlaga-
tvennunni Unitard. Fljótlega tók
Karen O og Zinner að langa í meira
fjör, meira rafmagn, og stofnuðu
pönktríó. Fyrsti trymbill tríósins
entist ekki lengi en í hans stað kom
gamli félaginn Brian Chase.
Yeah Yeah Yeahs var vel tekið að
segja frá fyrstu tónleikum, aðallega
fyrir það hve Karen O þótti glæsileg
við hljóðnemann og sviðsfram-
koman mögnuð, en einnig féll tón-
list sveitarinnar vel að því sem helst
var á seyði í bandarísku rokki á
þeim tíma – ekki leið á löngu að
Yeah Yeah Yeahs var farin að hita
upp fyrir Strokes og White Stripes.
Haustið 2001 kom fyrsta stutt-
skífan út, samnefnd sveitinni, og
vakti mikla athygli, kraftmikil og
skemmtilega hrá plata. Næstu mán-
uðir fóru svo í tónleikaferðir, ýmist
að hita upp fyrir aðrar sveitir eða
sem aðalnúmer þó enn hefði hljóm-
sveitin ekki sent frá sér stóra plötu.
Önnur stuttskífa, Machine, kom út
haustið 2002 og fyrsta breiðskífan,
Fever to Tell kom loks út í apríl
2003.
Hljómsveitin hafi tekið svo mikl-
um breytingum á þeim stutta tíma
sem hún hafði starfað að Fever to
Tell var sundurlaus á köflum, eins
og tvær hljómsveitir væru að takast
á um völdin, önnur enn á kafi í villtu
stuðpönki en hin tók hlutunum með
meiri ró, meiri pælingar í lögum og
útsetningum.
Eitt laganna af plötunni, „Maps“,
varð mjög vinsælt og ýtti undir sölu
á skífunni, en sveitin fékk athygli
langt umfram þær vinsældir því
Karen O var á allra vörum, glæsi-
leg, beinskeytt og kraftmikil söng-
kona. Hún kunni frægðinni þó ekki
vel, fékk nóg af því að vera sífellt
undir smásjá fjölmiðla og fluttist á
endanum til Kaliforníu, enda auð-
veldara að fá frið þar en í New
York.
Lungann úr árinu 2005 var sveit-
in í fríi enda liðsmenn hennar á fullu
í ýmiskonar hliðarverkefnum, aug-
lýsingagerð, samstarfi við aðra tón-
listarmenn og svo má telja. Um
haustið var þó kominn tími til að
hefjast handa að nýju og sveitin
kom saman í New York að taka upp
nýja breiðskífu. Sú plata, Show
Your Bones, kom svo út í liðinni
viku og hefur yfirleitt fengið fína
dóma fyrir músíkina. Vonandi að
hún fái þá athygli sem hún á skilda.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Ekki er öll athygli góð
Bandaríska rokksveitin Yeah Yeah Yeahs komst í sviðsljósið
aðallega fyrir glæsilega söngkonu sína. Ný plata sveitar-
innar sýnir að tónlistin stendur líka vel fyrir sínu.
Sveitin kom saman í New York í haust til að taka upp nýja breiðskífu en sú
plata, Show Your Bones, kom út í liðinni viku.
Guðrún Helga Sederholm, MSW félagsráðgjafi.
Sérfræðiréttindi sem Fræðslu- og skólafélagsráðgjafi frá
heilbrigðisráðuneyti. Námsráðgjafi og kennari.
Lágmúla 9, 3. hæð • Tímapantanir 864 5628,
554 4873 • Fax 554 4871
Póstfang: gsed@simnet.is
Hyggur þú á nám? Viltu skipta um starf?
Eru starfslok framundan?
Áhugasviðsgreining og ráðgjöf er líkleg til að hjálpa þér við ákvarðanatökuna.
Nokkrir lausir tímar.