Morgunblaðið - 27.05.2006, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SÝNING á nýjum málverkum eftir
Braga Ásgeirsson verður opnuð í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg, í dag
milli kl. 15 og 17. Opnunin er öðrum
þræði afmælishóf en listamaðurinn
fagnar 75 ára afmæli sínu á morgun.
Á sýningunni getur að líta tæpa
fimm tugi málverka. Þau hafa flest
orðið til á síðustu fimm árum enda
hefur Bragi haft rýmri tíma en oft
áður til að sinna listinni eftir að hann
lét af kennslu og dró saman seglin á
sviði gagnrýni. „Það hefur ekki farið
vel í mig hvað ég hef þurft að vinna
mikið með listinni gegnum árin. Í
dag hef ég miklu meiri tíma og ég
held að það sjáist á málverkunum.
Ég finn fyrir því að ég á enn eftir að
breytast og að það séu landvinn-
ingar í nánd,“ segir listamaðurinn.
Bragi hefur þegar selt fjögur
verkanna á sýningunni enda þótt
hún hafi ekki enn verið opnuð.
Kaupandi tveggja þeirra er ræð-
ismaður Íslands á Indlandi sem legg-
ur leið sína reglulega í Gallerí Fold.
Hann sá eina af myndum Braga
hanga uppi á vegg og festi kaup á
henni en var svo boðið að koma aftur
um kvöldið þegar fleiri verk voru
komin í hús vegna myndatöku. Þá
keypti hann aðra mynd. „Þetta var
síðasta myndin sem ég málaði fyrir
sýninguna og hafði ég lokið við hana
þá um morguninn,“ segir Bragi.
„Þetta er auðvitað mikil auglýsing.“
Nánar verður rætt við Braga Ás-
geirsson í blaðinu á morgun, sunnu-
dag.
Afmælissýning Braga Ásgeirssonar í Galleríi Fold
Landvinn-
ingar í nánd
Morgunblaðið/Kristinn
Bragi Ásgeirsson við tvö verka sinna á sýningunni í Galleríi Fold.
MARGT bendir til þess að kosninga-
nóttin í Reykjavík verði sú mest
spennandi síðan 1978, og miðað við
skoðanakannanir virðist sem allir
fimm flokkarnir keppi um fimmtánda
borgarfulltrúann, segir Ólafur Þ.
Harðarson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands.
Ólafur segir að þó dálítill munur sé
á þeim skoðanakönnunum sem birst
hafi undanfarið gefi þær í raun allar
sömu heildarmyndina. „Þó að mun-
urinn sé einhver prósentustig, bæði á
milli dagskannana Gallup, og eins hjá
Fréttablaðinu og Félagsvísindastofn-
un, þá er þetta í sjálfu sér meira og
minna innan skekkjumarka. Það má
ekki túlka þessar skoðanakannanir of
bókstaflega, í þeim er alltaf falin
óvissa.“
Hann segir ekki endilega best að
túlka einstakar kannanir með þröng-
um hætti, en þegar það sé gert virðist
t.d. slagurinn vera á milli Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks í Gall-
up-könnununum, en Samfylkingin
blandi sér í þann slag samkvæmt
könnun Fréttablaðsins. Það sé þó lítið
vit í að lesa þann-
ig í kannanirnar,
og betra að reyna
að sjá heildar-
samhengið sem
þær sýni.
„Eðlilegasta
niðurstaðan er sú
að þetta sé allt
fremur opið og
allir sláist um
fimmtánda manninn. Ef menn vilja
þetta eitthvað nákvæmara verður
bara að velja sér könnun og ákveða
þannig á hverjum þeir taki mest
mark,“ segir Ólafur. Hann segir það
þó sína tilfinningu að það séu Fram-
sóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og
Samfylking sem eigi mesta mögu-
leika í þeirri baráttu, en það sé ekki
hægt að fullyrða eingöngu út frá
könnununum.
Kosninganóttin ekki
eyðilögð af könnunum
Spennan ætti að geta haldið áfram
fram eftir nóttu, sér í lagi ef fyrstu
tölur benda til þess að mjótt sé á mun-
unum. Ólafur bendir á að vel sé þekkt
að fylgi Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórnarkosningum sveiflist til um
2% í talningu, það geti auðveldlega
fært til fulltrúa. „Það er sem sagt góð
von til þess að skoðanakannanir muni
ekki eyðileggja þessa kosninganótt
fyrir mönnum, eins og stundum hefur
verið kvartað yfir,“ segir hann.
„Það gæti vel verið að þetta yrðu
mest spennandi kosningarnar síðan
1978, þegar meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins féll. Þá var áttundi sjálf-
stæðismaðurinn inni alla nóttina, og
hann féll í utankjörfundaratkvæðum
einhverntíma undir morgun. Þá var
það þannig að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði þurft að bæta við sig tæplega
100 atkvæðum til að áttundi maður-
inn væri inni. Þegar þetta er svona
knappt veit enginn úrslitin fyrr en bú-
ið er að telja öll atkvæðin,“ segir Ólaf-
ur.
Hann nefnir einnig að í síðustu
borgarstjórnarkosningum hafi Ólafur
F. Magnússon, efsti maður á lista
Frjálslynda flokksins, verið úti fram
eftir allri kosninganóttinni, en komist
inn á síðustu atkvæðunum. Það hafi
þó einkum verið spenna fyrir Frjáls-
lynda, því munurinn á Reykjavíkur-
listanum og Sjálfstæðisflokknum var
of mikill til að þessi breyting hefði
stór áhrif.
Allir keppa um fimm-
tánda borgarfulltrúann
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Ólafur Harðarson
SAMFYLKING og Sjálfstæð-
isflokkur bæta við fylgi sitt á
kostnað litlu flokkanna þriggja í
Reykjavík samkvæmt sjöttu og síð-
ustu raðkönnun Gallup sem gerð
var fyrir RÚV. Enginn er með
hreinan meirihluta, og stendur
baráttan um fimmtánda borg-
arfulltrúann milli allra flokka.
Í könnuninni mældist Sjálfstæð-
isflokkurinn með 45% fylgi og sjö
borgarfulltrúa. Samfylkingin fær
27,3% og fjóra borgarfulltrúa.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð fær 14,5% og tvo borgarfull-
trúa, verði þetta úrslit kosning-
anna, og Frjálslyndi flokkurinn
mælist með 7,3% fylgi, og einn
borgarfulltrúa. Framsóknarflokk-
urinn mælist með 5,9% fylgi og
einn borgarfulltrúa.
Borgarfulltrúi Framsókn-
arflokksins er fimmtándi mað-
urinn inn í borgarstjórn, og mun-
ar ekki miklu að áttundi maður
Sjálfstæðisflokksins komist inn á
kostnað fulltrúa Framsóknar.
Í könnuninni er byggt á svörum
þriggja daga, hringt var í 1.200
manns, en rúmt 61% tók þátt í
könnuninni. Alls sögðust 6%
óákveðin og 5% ætla að skila
auðu. Í Kastljósi Sjónvarpsins í
gærkvöldi var vitnað í niðurstöður
könnunar Gallup um fylgi við
borgarstjóraefni flokkanna. Þar
sögðust 49% aðspurðra vilja Vil-
hjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita
sjálfstæðismanna, sem næsta borg-
arstjóra. 28,6% vildu Dag B. Egg-
ertsson, efsta mann á lista Sam-
fylkingar, og 7,1% kusu helst
Svandísi Svavarsdóttur, sem leiðir
lista VG. Ólafur F. Magnússon,
oddviti Frjálslyndra, naut fylgis
5% aðspurðra, og 2% sögðust vilja
Björn Ingi Hrafnsson, efsti maður
á lista Framsóknarflokks, sem
næsta borgarstjóra.
Framsóknarflokkurinn nær ekki
inn manni samkvæmt könnun
Fréttablaðsins í gær, en Samfylk-
ingin nær fimm mönnum í borg-
arstjórn. Samkvæmt könnuninni
fengi Sjálfstæðisflokkurinn 43,2%
atkvæða og sjö borgarfulltrúa,
Samfylkingin 31,7% fylgi og fimm
fulltrúa, VG fengi 13% fylgi og tvo
fulltrúa og Frjálslyndir 7,6% fylgi
og einn borgarfulltrúa. Framsókn-
arflokkurinn fengi samkvæmt
könnuninni 4,5% og næði ekki inn
manni.
Stærri flokkarnir bæta við
fylgi sitt samkvæmt Gallup
!
!
"#$
!
# %
!
&!
!
!
Húsavík | Búrhvalavaða sást í hvala-
skoðunarferð á Bjössa Sör á Skjálf-
andaflóa í gær, en búrhvalur hefur
ekki sést áður í ferðum Norður-
Siglingar þau 11 sumur sem fyr-
irtækið hefur boðið upp á hvala-
skoðun frá Húsavík.
„Við höfum ekki séð búrhval hér
í flóanum áður, aðeins blástur frá
þeim í fjarlægð,“ sagði Þórunn
Harðardóttir sem verið hefur leið-
sögumaður, vélstjóri og skipstjóri
hjá fyrirtækinu síðan árið 1997. Í
sama streng tók Hrólfur Þórhalls-
son skipstjóri sem var við stjórnvöl-
inn á Bjössa Sör í gær þegar búr-
hvelin sáust en búrhvalir geta verið
í kafi allt að 40 mínútum og því erf-
itt að elta þá.
Hrólfur sagði að það hefði ekki
verið raunin í gær því auðvelt hefði
verið að komast að þeim og hefði
það vakið mikla hrifningu meðal
farþeganna, sem aðallega voru er-
lendir ferðamenn. Auk búrhval-
anna sáust hnúfubakar í ferðinni.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Farþegarnir gengu glaðir í bragði frá borði þegar í land var komið á Húsa-
vík enda höfðu þeir bæði litið hnúfubaka og búrhveli augum.
Búrhvalavaða
á Skjálfanda
LÖGREGLAN á Akureyri fór í gær
fram á að þrír menn yrðu úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald til 6. júní. Þeir
eru grunaðir um að hafa misþyrmt
þremur öðrum í heimahúsi í miðbæ
Akureyrar að morgni fimmtudags-
ins og m.a. klippt framan af fingri
eins þeirra með garðklippum. Að
sögn sýslumannsins á Akureyri
bendir allt til þess að þeir sem árás-
ina gerðu séu menn sem oft hafi
komið við sögu lögreglunnar vegna
ofbeldis- og fíkniefnamála.
Lítið kom út úr fyrstu yfir-
heyrslum yfir meintum árásarmönn-
um, skv. heimildum Morgunblaðsins
og rannsókn var enn í gangi í gær-
kvöldi. Fleiri voru á staðnum en þeir
sex sem komu við sögu, skv. heim-
ildum blaðsins, en þrátt fyrir það
liggja ekki nákvæmar lýsingar fyrir
á því sem gerðist.
Dómari tekur líklega ákvörðun
um það fyrir hádegi í dag hvort
krafa um gæsluvarðhald verður
samþykkt.
Mennirnir þrír sem um ræðir urðu
fyrir mismiklum líkamsmeiðingum.
Eins og fram hefur komið var garð-
klippum beitt til þess að klippa hluta
af fingri eins mannsins, en um er að
ræða litla fingur og var hann tekinn
af við fremstu kjúku. Einn er talinn
vera nefbrotinn og sá þriðji slasaðist
minna.
Ljóst er að a.m.k. einhverjir árás-
armannanna og fórnarlambanna
þekktust. Árásarmennirnir eru
flestir á þrítugsaldri. Sömu sögu er
að segja um fórnarlömbin utan eins
manns sem er fimmtugsaldri. „Við
lítum náttúrulega svona atburð mjög
alvarlegum augum, það fer ekki á
milli mála. Mennirnir sem liggja
undir grun eru þekktir hér fyrir
fíkniefnabrot og ofbeldisverk,“ sagði
Björn Jósef Arnviðarson, sýslumað-
ur á Akureyri, við Morgunblaðið.
Klipptu framan
af fingri með
garðklippum