Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Svona, upp í Húsdýragarð með ykkur, þetta eru alltof dýrmætar lóðir fyrir andarrassgöt. Miklar breytingarhafa orðið á sóknÍslendinga út fyrir 200 mílna lögsöguna á síðustu 20 árum eða svo, en þá var hún um það bil engin. Fyrir mörgum ára- tugum sóttu menn meira út, togararnir veiddu við Grænland og Nýfundna- land og fóru austur í Hvítahaf eins og það var kallað. Síldarbátarnir eltu síldina á sínum tíma norð- ur að Svalbarða og stund- uðu síðan veiðar í Norður- sjó, þegar stofn norsk-ís- lenzku síldarinnar hrundi. Meira að segja voru síldveiðar stundað- ar við Bandaríkin. Sókn Íslendinga í úthafið jókst mjög í upphafi síðasta áratugar. Aflaheimildir á Íslandsmiðum drógust þá stöðugt saman og augu manna beindust út fyrir landhelgina. Miklar og örar fram- farir í þróun togveiðarfæra, sér- staklega hins svokallaða flott- rolls, gerðu íslenskum togurum kleift að sækja í úthafið, s.s. út- hafskarfa á Reykjaneshrygg í lok 9. áratugarins og í kolmunna upp úr miðjum síðasta áratug. Ný rækjumið voru uppgötvuð utan lögsögu Kanada, áhugi á þorsk- veiðum í Barentshafi kviknaði á ný, auk þess sem norsk-íslenzki síldarstofninn var nú að rétta úr kútnum, sem var langþráður draumur. Á árunum frá 1990 og fram til 1996 gátu íslensk skip sótt að kalla óheft í þessa gullnámu sem úthafið var. Á síðari árum hefur verið komið stjórn á þessar veið- ar víðast hvar, nú síðast kol- munnaveiðarnar. Aðeins er ósam- ið um veiðar á norsk-íslenzku síldinni. Staðan nú er sú að þorsk- veiðiheimildir í Barentshafi eru tæp 6.000 tonn, rækjuveiðiheim- ildir á Flæmska hattinum um 4.500 tonn, kolmunnakvótinn er um 352.000 tonn og af norsk-ís- lenzku síldinni má veiða 153.000 tonn. Kvóti á úthafskarfa utan lögsögu er um 5.000 tonn en 23.400 innan lögsögu. Þegar mest var veiddu íslenzk skip um 37.000 tonn af þorski í Barentshafinu, mestur rækjuafli okkar á Flæmska hattinum varð 20.700 tonn. Þegar mest var veiddu Íslendingar tæp 63.000 tonn af úthafskarfa. Þegar mest var skiluðu veiðarnar í úthafinu meiru en 10 milljörðum króna og skiptu miklu um afkomu útgerð- arinnar. Nú er hún Snorrabúð stekkur. Veiðin hefur dregizt verulega saman. Nú hefur eina skipið, sem stundað hefur veiðar á Flæmska hattinum, verið selt, en það hefur verið að veiða um 4.000 tonn á ári. Þó kvótinn nú sé aðeins 4.500 tonn hafa Íslendingar rétt til veiða á mun meiru eða vel yfir 10.000 tonnum. Þrátt fyrir það er allt útlit fyrir að þessar veiðar leggist af. Þær hafa ekki skilað viðunandi afkomu. Sóknin í Barentshafið hefur verið bundin við fá skip, sem hafa leigt til sín heimildir frá öðrum. Kvótinn í ár er tæp 6.000 tonn og hafa 2.700 tonn verið veidd innan lögsögu Noregs. Þessar veiði- heimildir hafa yfirleitt náðst. Veiðar á úthafskarfa hafa að segja má hrunið. Síðasta vertíð var sú langlélegasta frá því veiðar hófust að nokkru marki, skilaði aðeins 16.000 tonnum. Sóknin í úthafið hefur því dreg- izt verulega saman, bæði vegna veiðitakmarkana og vegna þess að veiðarnar eru ekki lengur hag- kvæmar. Segja má að þessi sókn takmarkist að mestu við uppsjáv- arfiskitegundirnar norsk-ís- lenzku síldina og kolmunnann. Reyndar hefur stærsti hluti kol- munnaaflans verið tekinn innan íslenzkrar lögsögu undanfarin ár, en síldin veiðist enn að mestu ut- an lögsögunnar. Það er þó í síld- inni, sem mestu verðmætin verða til eftir að farið var að flaka og frysta nánast alla síldina úti á sjó. Sömu möguleikar liggja í kol- munnanum. Það er þó alveg ljóst að útrásinni er lokið. Úthafið skiptir ekki eins miklu máli leng- ur, bæði eru möguleikarnar tak- markaðir og áhuginn sömuleiðis. Fréttaskýring | Veiðitakmarkanir og óhagkvæmni draga stöðugt úr sókninni Úthafið gefur nú mun minna Veiðar Íslendinga á rækju á Flæmska hattinum eru nú að leggjast af "#$% $ $$ &'' (!) *  $ $#$  +# ,$-,      ' # ()(#( *!% &+!(+( (#,$-#( .(! /## 0( (1 ! /## *+ /1!% &+!(+(2     ,3! * 4  4  4  4  4 4 4 4  4  4  4  4   !%!*( Norsk-íslenzka síldin veiðist utan lögsögu  Veiðar utan íslenzku lögsög- unnar byggjast að mestu á norsk-íslenzku síldinni. Þrátt fyrir að hún gangi nú í vaxandi mæli inn fyrir hana, veiðist mest í Síldarsmugunni, við Jan Mayen, Svalbarða og innan lögsögu Fær- eyja. Eftir að vinnsluskipin fóru að vinna síldina um borð hefur hagkvæmni veiðanna aukizt verulega og aflaverðmætið margfaldazt, enda allt unnið til manneldis. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is Síldinn er ennþá silfur hafsins. Innihaldið skiptir máli „EFTIR að hafa skoðað þessar hug- myndir eins og þær líta út núna, tel ég að það sé of langt gengið,“ sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg- arstjóri eftir að hafa tekið við mót- mælum við fyrirhugaðar fram- kvæmdir við Úlfljótsvatn, á borgarbókasafninu í gærdag, en þar hyggst Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við fasteignafélagið Klasa reisa 600–700 lóða sumarhúsabyggð. Steinunn sagðist vilja beita sér fyrir því að málið yrði endurskoðað að því leyti að starfsemin geti verið í sátt við hagsmunaaðila og náttúr- una. „Ég legg hins vegar áherslu á að þetta svæði sé áfram nýtt undir frístundabyggð,“ sagði Steinunn Valdís og vísaði þar í sumarhús Starfsmannafélags Reykjavíkur sem standa við vatnið. Hún sagðist sjálf hafa dvalið og notið náttúrunnar við Úlfljótsvatn oft og mörgum sinnum og telji hún svæðið kjörið til útivist- ar, og sumarhúsabyggðar. „Það er hins vegar spurning um hvernig við vinnum þetta þannig að sátt sé á milli uppbyggingarinnar og nátt- úruverndarsjónarmiða. Ég skal ekki láta mitt eftir liggja við að reyna ná því fram gagnvart Orkuveitu Reykjavíkur og öðrum aðilum.“ Bergur Jónsson er forsvarsmaður hóps fólks, sem lætur sig framtíð og náttúru Úlfljótsvatns varða. Hann afhenti borgarstjóra mótmælin en einnig fulltrúum borgarstjórn- arflokkanna. Í mótmælunum segir m.a. að „Auðvelt [sé] að auka gildi landsins til framtíðar sem útivist- arsvæði skáta og almennings og hlúa að þeirri skógrækt sem fyrir er“. Jafnframt er bent á alþjóðlegar tilnefningar sem svæðið í kringum Úlfljótsvatn hefur hlotið sökum sér- stæðs lífríkis. Í mótmælaheftinu er einnig kynnt niðurstaða úr skoðanakönnun sem gerð var á vefsvæði mótmælenda. Af tæpum fimm hundruð manns sem tóku þátt voru 84% andvíg fram- kvæmdunum. Einnig voru birtar at- hugasemdir sem skrifaðar voru í gestabók mótmælenda á vefnum. Morgunblaðið/Eyþór Bergur Jónsson afhendir Steinunni Valdísi Óskarsdóttur borgarstjóra mótmæli gegn framkvæmdum við Úlfljótsvatn. Hópur fólks mótmælir framkvæmdum við Úlfljótsvatn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.