Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Tilboð/Útboð
ÚU T B O Ð
Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar
- viðbygging jarðvinna
Útboð nr. 14077
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins, óskar eftir tilboðum
í jarðvinnuframkvæmdir við Heilbrigðisstofn-
un Siglufjarðar.
Verk þetta nær til uppgraftar úr grunni viðbygg-
ingar heilbrigðisstofnunarinnar, förgun á því
efni og þjappaðar fyllingar með burðarhæfu
efni.
Verkið skal vinnast fyrir ágústlok og er miðað
við að framkvæmdartíma verði haldið sem
skemstum, ekki lengri en þrjár vikur. Gert er ráð
fyrir að verktaki verji vinnusvæðið með viðeig-
andi öryggisgirðingum.
Helstu magntölur eru: Gröftur 1.800 m³ og
þjappaðar fyllingar 1.860 m³.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en
31. ágúst 2006.
Útboðsgögn eru til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík.
Útboðsgögn verða ennfremur til sýnis hjá bygg-
ingarfulltrúanum á Siglufirði. Tilboðin verða
opnuð hjá Ríkiskaupum þriðjudaginn 13. júní
2006 kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Félagslíf
28.5. Ingólfsfjall
Brottf. frá BSÍ kl. 10:30. Verð
2.500/2.900 kr.
9.-11.6. Fimmvörðuháls
Brottf. frá BSÍ kl. 17:00. Verð
12.000/14.700 kr.
16.-18.6. Lómagnúpur
Brottf. frá BSÍ kl. 18:00. Hinn
tignarlegi Lómagnúpur gnæfir
yfir Skeiðarársandi og heillar
flesta sem um sandinn fara.
Sjá nánar á www.utivist.is
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Freyjugata 6, fnr. 222-2850, Suðureyri, þingl. eig. Vélsmiðja Suður-
eyrar ehf., gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Ísafirði, miðvikudaginn
31. maí 2006 kl. 11:30.
Hafnarstræti 1, 50% eignarhl. gþ., fnr. 212-6458, Flateyri, þingl. eig.
Hólmfríður H. Guðjónsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands
höfuðstöðvar, miðvikudaginn 31. maí 2006 kl. 14:00.
Ránargata 8, fnr. 212-6551, Flateyri, þingl. eig. Hrefna Björg Waage
Björnsdóttir og Guðjón Svanur Hermannsson, gerðarbeiðendur
Landsbanki Íslands höfuðstöðvar og Sveitarfélagið Skagafjörður,
miðvikudaginn 31. maí 2006 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
27. maí 2006,
Una Þóra Magnúsdóttir fulltrúi.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Hlíðarsmára 19 - Akstur á kjördag
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi að
Hlíðarsmára 19 verður opin í dag á meðan kjörstaðir eru
opnir.
Þeir sem vilja veita Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi
aðstoð á kjördag við hringingar og akstur gefi sig fram
við Björn Hermannsson kosningastjóra og aðstoðarfólk
hans á kosningaskrifstofunni.
Upplýsingar um kjörstaði og annað er viðkemur
kosningunum eru veittar í síma 564 6410. Jafnframt er
hægt að óska eftir akstri á kjörstað í sama símanúmer.
Stuðningsmenn og velunnarar velkomnir. Heitt á
könnunni.
Sjálfstæðismenn, mætum öll á kjörstað og nýtum
atkvæði okkar. Þannig tryggjum við góð kosningaúrslit!
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi
Kosningavaka
Sjálfstæðismanna á
T.G.I. Fridays í Smáralind
Ágætu Kópavogsbúar.
Kosningavaka Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður
haldin í kvöld á veitingastaðnum T.G.I. Fridays í Smáralind.
Húsið opnar klukkan 21:30.
Fylgst verður með kosningatölum og kosningaúrslitum fram
á nótt.
Sjálfstæðismenn, gerum okkur glaðan dag í góðra vina
hópi.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi
Ársfundur 2006
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitar-
félaga verður haldinn þriðjudaginn 13. júní
nk. kl. 10:00 í fundarsal BHM á 3. hæð að
Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin), Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt
samþykktum sjóðsins.
2. Önnur mál löglega upp borin.
Allir sjóðfélagar, fulltrúar aðildarfélaga BSRB,
BHM og KÍ svo og launagreiðendur eiga rétt
til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og
eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir
setningu fundarins.
Reykjavík, 14. mars 2006.
Stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna sveitarfélaga.
Styrkir
Styrkur til framhaldsnáms
Blikastaðasjóður
Blikastaðasjóður auglýsir lausa til umsókna
styrki til framhaldsnáms á skólaárinu 2006-
2007. Hlutverk Blikastaðasjóðsins er að styrkja
nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá
Landbúnaðarháskóla Íslands til framhalds-
náms erlendis eða til rannsókna í landbúnaðar-
vísindum eftir því sem stjórn sjóðsins
ákveður.
Umsóknarfrestur er til 20. júní nk. Umsóknir
ásamt upplýsingum um námsárangur og
fyrirhugað framhaldsnám skulu sendar til
skrifstofu rektors Landbúnaðarháskóla Íslands,
Hvanneyri, 311 Borgarnes. Reiknað er með
að styrkveitingar fari fram í júnílok.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Fréttir
á SMS
FRÉTTIR
Fáskrúðsfjörður | Hótel Bjarg á Fáskrúðsfirði hefur
verið opnað að nýju eftir að hafa staðið lokað í marga
mánuði.
Karvel Ögmundsson, veitingamaður úr Njarðvík,
hefur fest kaup á hótelinu og hefur opið um helgina.
Karvel, sem hefur verið með veitingarekstur í Kali-
forníu í mörg ár, er með ýmsar hugmyndir um rekst-
urinn en fyrst um sinn hyggst hann einbeita sér að
gistiþjónustu og matsölu í Hótel Bjargi. Ætlar hann
einnig að opna þar kaffihús, sem jafnframt verður
bjórstaður. Hann vinnur að því að setja upp kerfi, þar
sem hann ætlar að bjóða upp á sýningu heimsmeist-
arakeppninnar í fótbolta, sem er að hefjast. Samfara
hótelrekstrinum er uppi ráðagerð um dansleiki í hús-
inu.
Hótelið verður opnað formlega í dag með kosn-
ingavöku, þangað sem allir eru boðnir velkomnir.
Kosningavaka á
Hótel Bjargi
Morgunblaðið/Albert Kemp
Karvel Ögmundsson fluttur heim frá Kaliforníu og hef-
ur keypt Hótel Bjarg á Fáskrúðsfirði.
TALSVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni í Reykjavík aðfararnótt
fimmtudags. Þurfti lögregla m.a.
að hafa afskipti af 12 einstaklingum
vegna minniháttar fíkniefnamála,
þar af voru níu með fíkniefni í fór-
um sínum á einum og sama
skemmtistaðnum í miðborginni.
Tvö minniháttar fíkniefnamál
komu upp í Kópavogi í fyrrinótt að
sögn lögreglu. Lögreglan hafði af-
skipti af tveimur ökumönnum sem
voru með fíkniefni í fórum sínum,
þeir voru færðir á lögreglustöðina
og tekin af þeim skýrsla. Í fram-
haldinu var farið í húsleit á tveimur
stöðum og fannst lítið magn fíkni-
efna sem ætlað var til eigin neyslu.
Málið telst upplýst.
Níu með fíkniefni
á skemmtistað
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann á fertugsaldri
til þriggja mánaða fangelsis-
vistar, en ástæða þótti til að skil-
orðsbinda dóminn til þriggja ára.
Ákærða er gefið að sök að hafa
stolið fatnaði úr verslun í versl-
unarmiðstöðinni Smáralind og
játaði hann brot sitt skýlaust.
Hann hefur áður hlotið dóm fyrir
auðgunarbrot ásamt því að hafa
ítrekað brotið gegn umferðar-
lögum, með ölvunar- og svipt-
ingarakstri.
Finnbogi H. Alexandersson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn. Guð-
mundur Siemsen fulltrúi lög-
reglustjórans í Kópavogi flutti
málið af hálfu ákæruvaldsins.
Dæmdur fyrir
fataþjófnað