Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
Aðaldalur | Gríðarleg vinna hefur
verið að steypa brúargólfið á nýju
Laxárbrúnni við Aðaldalsflugvöll.
Mörg hundruð rúmmetra af steypu
þarf í mótin og hafa starfsmenn
lagt nótt við dag að járnabinda og
undirbúa þetta mikla verk.
Byrjað var fyrir kl. sex í gær-
morgun en búast má við að steypu-
vinnan taki u.þ.b. sólarhring. Á
myndinni má sjá að brúin er að taka
á sig mynd og hafa margir beðið
eftir því að fá tvöfalda brú yfir
Laxá.
Brúargólfið
steypt
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Hveragerði | Hugmynd PK arki-
tekta ehf. fékk fyrstu verðlaun í sam-
keppni um rammaskipulag byggðar
austan Varmár í Hveragerði. Úrslit-
in voru kynnt á dögunum og verðlaun
afhent en sýning á verðlaunatillög-
unum stendur yfir á Bókasafni
Hveragerðisbæjar til 2. júní næst-
komandi.
Efnt var til samkeppninnar í fram-
haldi af samningi Hveragerðisbæjar
og Eyktar ehf. um skipulag og upp-
byggingu á áttatíu hektara land-
svæði austan Varmár í Hveragerði.
Arkitektafélag Íslands stóð að sam-
keppninni með bænum og Eykt.
Með samkeppninni var leitast við
að fá fram góðan grunn að deiliskipu-
lagi í samræmi við þau markmið sem
samningsaðilar settu sér um yfir-
bragð og eðli byggðar á svæðinu. Sex
tillögur bárust og valdi dómnefnd
hugmynd PK arkitekta ehf. til fyrstu
verðlauna sem voru ein milljón kr.
Í umsögn dómnefndar kemur fram
að í tillögu PK sé sett fram einföld og
aðlaðandi hugmynd um heildarskipu-
lag. Tillagan komi mjög vel til móts
við kröfur keppnislýsingar og gefi
fyrirheit um aðlaðandi yfirbragð
byggðar og fallegt samspil við nátt-
úru. Hún taki tillit til landslagsein-
kenna og felli áform um byggð vel að
landi, sem og hugmyndir um götur,
stíga og tengingar. Þá kemur meðal
annars fram að tillagan sýni lág-
stemmdar og einfaldar rýmismynd-
anir í anda Hveragerðisbæjar.
Önnur verðlaun hlaut tillaga frá
Batteríinu ehf. arkitektum og þriðju
verðlaun tillaga frá Arkitektastof-
unni OÖ og Tangram arkitektum.
Ljósmynd/Páll Guðjónsson
Til sýnis Gestir lögðust yfir verðlaunatillögurnar þegar úrslit höfðu verið kynnt í Bókasafni Hveragerðisbæjar.
Verðlaunatillagan í
anda Hveragerðisbæjar
Selfoss | „Ég tók stúdentsprófið á
þremur árum, jú þetta tekur svolít-
ið á en það er gaman að hafa nóg að
gera og mér fannst þetta skemmti-
legt,“ sagði Guðrún Nína Óskars-
dóttir, stúdent af náttúrufræði-
braut, sem náði bestum heildar-
árangri brautskráðra og fékk
sérstaka viðurkenningu skóla-
nefndar Fjölbrautaskóla Suður-
lands við brautskráningu nemenda
19. maí. Guðrún fékk einnig af því
tilefni námsstyrk frá Hollvarða-
samtökum skólans. Þá fékk hún að
auki sjö önnur verðlaun fyrir náms-
árangur í einstökum námsgreinum.
Guðrún Nína ætlar í verkfræði í
Háskóla Íslands í haust en sagðist
ekki hafa ákveðið hvaða grein inn-
an verkfræðinnar hún myndi ein-
beita sér að en iðnaðarverkfræði
kæmi vel til greina. „Mér finnst
skemmtilegast að fást við stærð-
fræði og tungumál og hef sér-
staklega gaman af frönskunni,“
sagði Guðrún Nína en hún hefur
auk hefðbundins náms lagt stund á
tónlistarnám og hefur tekið 5 stig
hjá Tónlistarskóla Árnesinga á
fiðlu og píanó. „Ég hef mjög gaman
af tónlist, ferðalögum og því að
vera með vinum mínum,“ sagði
Guðrún Nína Óskarsdóttir dúx Fjöl-
brautaskóla Suðurlands sem vinnur
í Glitni sem gjaldkeri í sumar ásamt
því að vinna aðra hverja helgi í
Sundhöll Selfoss.
Alls brautskráðust 82 nemendur
frá Fjölbrautaskóla Suðurlands
föstudaginn 19. maí, þar af 40 stúd-
entar. 8 nemendur brautskráðust af
tveimur brautum. Stefanía Ósk
Garðarsdóttir fékk fern verðlaun
auk námsstyrks frá Hollvarða-
samtökunum. Edda Karlsdóttir og
Lilja Jóhannesdóttir fengu tvenn
verðlaun hvor, og þau Alda Marín
Kristinsdóttir, Anna Hansen, Árni
Már Einarsson, Harpa Rún Garð-
arsdóttir, Herdís Ólöf Kjartans-
dóttir, Karen Ýr Sæmundsdóttir,
María Katrín Fernandez, Ragnar
Gylfason, Reynir Arnar Ingólfsson
og Tryggvi Rúnar Guðnason eina
viðurkenningu hvert.
Það er gaman að
hafa nóg að gera
Ljósmynd/Magnús Hlynur
Dúx Guðrún Nína Óskarsdóttir
útskrifaðist sem stúdent frá Fjöl-
brautaskóla Suðurlands.
Eftir Sigurð Jónsson
Hveragerði | Bjarni Jónsson list-
málari hefur opnað sína árlegu mál-
verkasýningu í Eden í Hveragerði.
Hann sýnir þjóðlífsmyndir, ekki síst
varðandi sjósókn, en einnig fleiri
tegundir málverka.
„Við Bragi í Eden höfum verið
vinir í yfir þrjátíu ár og hann hefur
viljað fá mig til að sýna í skálanum.
Þjóðlífsmyndirnar passa vel hér, það
hafa margir áhuga á þeim. Svo er
staðan einnig þannig að við þessir
eldri atvinnumyndlistarmenn kom-
umst ekki inn í sýningarsalina í
Reykjavík,“ segir Bjarni og tekur
fram að gott sé að sýna í Eden. Þar
fái hann miklu betri aðsókn en í
hefðbundnum sýningarsölum. „Ég
hef alltaf notið þess að vera þarna,“
segir Bjarni.
Sýning Bjarna í Eden er opin til
annars dags hvítasunnu, 5. júní.
Alltaf notið þess að vera í Eden
Morgunblaðið/Arnaldur
Þjóðlíf Bjarni Jónsson sýnir meðal annars þjóðlífsmyndir í Eden.
Selfoss | Selurinn, tómstunda-
klúbbur fatlaðra á Suðurlandi, hefur
starfað um árabil í Árborg, fyrst að
frumkvæði Þroskahjálpar á Suður-
landi og síðan á vegum sveitarfé-
lagsins með stuðningi Þroskahjálp-
ar. Félagar hafa komið víða að af
Suðurlandi og hefur starfsemi
klúbbsins því ekki einskorðast við
Árborgarsvæðið. Skráðir félagar í
Selnum eru 35 en virkir eru um 20
og fer þeim fjölgandi.
„Meginmarkmið Selsins er að efla
skilning félaga á ýmsum þeim þátt-
um í samfélaginu sem nauðsynlegir
eru hverjum einstaklingi auk þess
að standa fyrir skemmtilegum uppá-
komum af ýmsu tagi,“ sagði Sig-
hvatur Blöndal, umsjónarmaður
Selsins undanfarin tvö ár, er Selur-
inn bauð til grillveislu við Félags-
miðstöðina í Tryggvagötu í vikunni
þar sem kynntar voru áherslur
klúbbsins og stuðningsaðilum afhent
blóm og þeim þökkuð liðveislan.
Framundan er hápunktur í starf-
semi klúbbsins, en það er sumarferð
til Mallorka 29. júní. Þar munu 17
félagar dvelja í eina viku ásamt 7
fararstjórum. Stuðningsaðilar þess-
arar ferðar eru Sveitarfélagið Ár-
borg og þrjár fasteignasölur á Sel-
fossi, Bakki, Árborgir, hjá Lög-
munnum Suðurlandi og ferðaþjón-
ustufyrirtækið Guðmundur Tyrf-
ingsson ehf.
Gott tómstundastarf hjá Selnum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Undirbúningur Félagar í Selnum og stuðningsaðilar sumarferðarinnar.