Morgunblaðið - 27.05.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 51
UMRÆÐAN
Höldum áfram
www.xb.is/kopavogur
Kosningakaffi Framsóknarflokksins
verður að Digranesvegi 12 í allan dag.
Þeir sem óska eftir akstri
á kjörstað geta haft samband í síma 554 1300.
Kosningavaka
verður að Digranesvegi 12
og mun standa fram eftir nóttu.
Allir velkomnir
Framsóknarflokkurinn í Kópavogi
Kópavogsbúar
SÍÐAN faðir minn fór á öldr-
unarheimili hef ég verið fjárhalds-
maður hans og séð um hans mál útá-
við. Ég las þess vegna bréf sem
honum var sent á dögunum frá Fram-
sóknarflokknum undirritað af þér.
Þar er verið að minna á kosningar
framundan og barma sér vegna stöð-
ugra árása frá pólitískum andstæð-
ingum og talað um að ólík öfl hafi
sameinast um að vega ódrengilega að
flokknum. Reynt er að höfða til vit-
undar eldra fólks með því að minna á
ómaklegar árásir á Ólaf Jóhannesson
þar sem einskis hafi verið svifist til að
sverta mannorð hans. Fólk er hvatt
til að nýta tímann fram að kosningum
til að hringja í ættingja og vini um
land allt til að safna atkvæðum og
veita flokknum stuðning.
Eftir lestur þessa bréfs get ég ekki
orða bundist.
Er virkilega svo illa komið fyrir
Framsóknarflokknum að hann þurfi
að kvabba í gömlu fólki um at-
kvæðasnap? Fólki sem hefur með sín-
um störfum komið þjóðinni frá fá-
tæktarsnörunni sem hékk hér yfir á
þess yngri árum. Þessu fólki er nú
þakkað fyrir með því að skammta því
svo nauma vasapeninga þegar það fer
inn á öldrunarheimili að skömm er að.
Í tilviki föður míns hefur hann 22.873
kr. í vasapening frá Tryggingastofn-
un og 2.648 kr. frá lífeyrissjóði. Sam-
tals 25.521 kr. til ráðstöfunar á mán-
uði.
Nú spyr ég: Vildir þú eða aðrir
framsóknarmenn lifa á þessum
tekjum í ellinni?
Þó að fólk geti ekki lengur búið
heima hjá sér er ekki sjálfgefið að það
sé tilbúið að selja heimili sitt og
skipta upp eigum sínum, það er þó
tórandi ennþá!
Þegar svo er þarf ýmislegt að
borga, svo sem rafmagn, fast-
eignagjöld, tryggingar og annað. Það
þarf líka að borga sjálft fyrir ýmislegt
á heimilunum til dæmis afþreyingu
eins og hannyrðir, dagsferðir og
fleira. Fyrir utan persónulegar þarfir
eins og fatnað tannlækna og gler-
augnakostnað, nú og svo langar það
kannski til að geta glatt barnabörn og
barnabarnabörn á afmælum og jól-
um.
Þessir vasapeningar duga ekki til í
þetta, þannig að margir neyðast til að
selja eigur sínar til að eiga upp í
þennan kostnað.
Nú spyr ég aftur: Ætlar Fram-
sóknarflokkurinn að borga síma-
reikning þessa gamla fólks eftir at-
kvæðasnapið eða ætlar hann kannski
að sjá sóma sinn í því að hækka vasa-
peninga þess þannig að það hafi sjálft
efni á að borga hann og ef ekki býst
hann þá virkilega við stuðningi þess á
kjördag?
Flokkurinn ætti að afla sér sjálfur
atkvæða af eigin verðleikum.
Eitt er víst að eftir þessi skrif
missti hann að minnsta kosti eitt at-
kvæði, það er mitt atkvæði og eflaust
fleiri úr þessari fjölskyldu.
Akureyri 25. maí 2006
KRISTJANA
KRISTJÁNSDÓTTIR
Steinahlíð 7b, 603 Akureyri
(utan Glerár).
Opið bréf til Halldórs Ásgrímssonar
Frá Kristjönu Kristjánsdóttur,
sem skrifar vegna aldraðra
framsóknarmanna:
UNDANFARNA daga hafa fram-
bjóðendur og stuðningsmenn Sam-
fylkingarinnar birt fjölda blaða-
greina um að ekkert sé að marka
stefnu Sjálfstæðisflokksins í borg-
armálum, því Heimdallur hafi ein-
hvern tíma ályktað á skjön við hana.
Þessum greinum virðist fjölga í öf-
ugu hlutfalli við gengi Samfylking-
arinnar í skoðanakönnunum. Hamr-
að er á því að Heimdallur sé á móti
styrkjum til menningar- og mennta-
mála og hafni borgarreknum leik-
skólum. Því hljóti það að verða
fyrsta verk sjálfstæðismanna að
leggja niður menningarnótt og loka
leikskólunum, komist þeir til valda.
Nú veit ég ekki hvort höfundar
þessara greina eru nægilega skyn-
samir til að trúa ekki því sem þeir
sjálfir segja. En gagnvart kjós-
endum held ég að þessi áróður hljóti
að hljóma undarlega svo ekki sé
meira sagt.
Það vita allir sem vilja vita það, að
stefnumál félaga ungra sjálfstæð-
ismanna hafa oftsinnis verið á skjön
við almenna stefnu Sjálfstæð-
isflokksins, hvort sem litið er til
samþykkta flokksins eða athafna.
Og ósjaldan hefur Heimdallur gagn-
rýnt athafnir og yfirlýsingar ráð-
herra flokksins. Innan Sjálfstæð-
isflokksins rúmast margar skoðanir.
Menn takast opinskátt á um þær,
komast að niðurstöðu og ganga síð-
an sameinaðir til verka. Það er
styrkur Sjálfstæðisflokksins. Fyrst
fer fram umræða. Síðan eru ákvarð-
anir teknar. Ekki öfugt eins og hjá
R-listanum.
Stefna Sjálfstæðisflokksins í kom-
andi borgarstjórnarkosningum er
skýr. Hún snýst um að þjóna borg-
arbúum, ekki að segja þeim fyrir
verkum. Hún snýst um að nýta fjár-
muni borgarbúa þeim til hagsbóta,
ekki í gæluverkefni gæðinga Fram-
sóknarflokksins. Hún snýst um að
stöðva þá gegndarlausu spillingu og
dugleysi sem brothætt meirihluta-
samstarf R-listans hefur leitt af sér.
Við þurfum samhentan hóp til að
hreinsa til eftir þetta fólk, sem strax
fyrir kosningar er byrjað að rífast
um borgarstjórastólinn. Við höfum
tækifæri til þess nú. Glutrum því
ekki niður!
ÞORSTEINN SIGLAUGSSON,
varaformaður Félags sjálfstæð-
ismanna í Nes- og Melahverfi.
Stjórnar Heimdallur
Sjálfstæðisflokknum?
Frá Þorsteini Siglaugssyni:
EFTIR komandi bæjarstjórn-
arkosningar mun verða dásamlegt
að vera aldraður og munu öll helstu
vandamál Akureyrarbæjar hverfa
eins og hendi sé veifað. Þetta er
reyndar allt undir því komið að
kosningaloforðin haldist en ég ætla
ekki að efast um það, enda hefur
sagan ekki kennt mér annað en það
að hvert kjörtímabil hefur verið enn
eitt skrefið í átt að paradís. En þó
ekki alveg. Það er alveg sama hvað
ég blaða í bæklingum flokka sem nú
gubbast inn um lúguna hjá mér.
Enginn flokkanna hefur lofað hund-
eigendum bættri aðstöðu. Að vísu
hefur hundeigendum gefist kostur á
að viðra vini sína á Blómsturvöllum
en það er svolítið súrt að þurfa að
keyra langleiðina inní Hörgárbyggð
til þess arna. Á Blómsturvöllum
hefur ekki bæjarstarfsmaður sést í
háa herrans tíð og er bílaplanið eitt
drullusvað og væri vel þegið að fá
þar einn vörubílsfarm af grófri möl.
Bílastæðið hefur aldrei verið rutt
snjó eða þar tæmd ruslafata.
Göngustígur hefur aldrei verið sleg-
inn af bæjarstarfsmanni og aldrei
verið týnt rusl af svæðinu. Það litla
starf sem unnið hefur verið til að
bæta Blómsturvelli hefur alfarið
verið unnið af hundeigendum.
Staðreyndin er sú að á hverju ári
þarf hundeigandi að greiða reikning
upp á 8.500 kr. til að geta talist lög-
hlýðinn. Ef ég set mig nú í töl-
fræðistellingar og reikna með að
það séu 300 skráðir hundar á Ak-
ureyri þá segir reiknivélin 2.550.000
kr. Ég hef ekki hugmynd um hvað
þessi peningur fer í og hef ég aldrei
fengið neina gáfulega útskýringu á
þessari innheimtu. Vissulega fara
hundarnir mínir í hundahreinsun
einu sinni á ári og fá þar sína töflu
og lifrarpylsubitann með. Verður
þetta að teljast frekar dýr pilla
nema það sé sláturbitinn sem ég er
að greiða fyrir. Ef hundeigandi er
svo óheppinn að seppinn hans týnist
og lendi í höndunum á hundafang-
ara Umhverfisdeildar þá þarf sá
hinn sami að greiða lausnargjald
sem myndi duga fyrir hugljúfri nótt
á svítu Hótel Holts. Af þessu má sjá
að ekki er peningurinn að renna
óskiptur í starf tengd hundum. Hef
ég lúmskan grun um að eitthvað af
honum fari í kattahald og eyðingu
geitungabúa en það er nú bara
minn þankagangur. Á öllum huggu-
legum grænum svæðum Akureyr-
arbæjar hefur verið bannað að vera
með lausa hunda og fær maður
óblíðar kveðjur ef maður brýtur það
bann.
Íslendingar eru einkennilegir
þegar kemur að hundamálum. Er-
lendis þykir eðlilegt að hundurinn
kíki með á pöbbinn en hérna mega
þeir ekki einu sinni fara inn í sund-
laugargarðinn í taumi. Mér er hulin
ráðgáta hver sé ástæða þessarar
hundafælni Íslendinga. Staðreyndin
er nefnilega sú að hundur reynist
fólki oft betur en þunglyndislyf eða
kort í ræktina. Það er sannað að
það að halda hund getur rofið fé-
lagslega einangrun. Þegar hundur
vill út þá duga engar málamiðlanir
og afsakanir frá eiganda. Hundar
geta því reynst ágætustu einka-
þjálfarar. Ótalin er gagnsemi fólks
af leitarhundum, fíkniefnahundum
og blindrahundum sem vinna heil-
mikið starf bak við tjöldin og er
sjaldan hampað. Fjölmiðlar eru
hinsvegar snöggir til þegar hundur
glefsar eða hundaskítur finnst á
gangstétt.
Ef bæjarstjórn Akureyrar vantar
fyrirmynd að góðu hundasvæði þá
leyfi ég mér að benda á það svæði
sem Akraneskaupstaður hefur
útbúið. Þar labba hundeigendur
sem aðrir sáttir og ekkert stórslys
hlotist af því ennþá.
HILMAR TRAUSTI
HARÐARSON
hundeigandi og nemi í HA,
Sólvöllum 3, Akureyri.
Hundapólitík á Akureyri
Frá Hilmari Trausta Harðarsyni:
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
ÉG, Halldór Eiríkur S. Jónhildarson
(Don), Kópavogi, prófkjörs- og kosn-
ingastjóri Alþýðuflokksins í Kópavogi
og Reykjaneskjördæmi hinu forna,
heimilisfastur í Kópavogskaupstað,
lýsi því yfir að ég styð ekki og mun
ekki greiða Samfylkingu eða Vinstri-
grænum atkvæði mitt í komandi
borgar-, bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningum.
HALLDÓR EIRÍKUR S.
JÓNHILDARSON
(Don), prófkjörs- og kosningastjóri
Alþýðuflokksins í Kópavogi og
Reykjaneskjördæmi hinu forna,
Kópavogi.
Yfirlýsing
prófkjörs-
og kosninga-
stjóra
Alþýðu-
flokksins
Frá Halldóri Eiríki S. Jónhildarsyni: