Morgunblaðið - 27.05.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
DANSKA viðskiptablaðið Börsen
greinir frá því í gær að norræna
ferðaskrifstofan Appollo Rejser, sem
er eigu svissneska fyrirtækisins
Kuoni, hafi hug á að festa kaup á
ferðaskrifstofunni Bravo Tours, sem
er í meirihlutaeigu Heimsferða. Haft
er eftir framkvæmdastjóra Appollo,
Jan Lockhart, að viðræður hafi átt
sér stað milli fyrirtækjanna og aðeins
eigi eftir að ná samkomulagi um verð.
Andri Már Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heimsferða, segir hins
vegar í samtali við Morgunblaðið að
ekki sé fótur fyrir fréttinni. „Við höf-
um ekki átt viðræður við Appollo, né
nokkurn annan, um mögulega sölu á
Bravo Tour. Það er skrítið þegar
menn kasta svona löguðu fram, en
engar söluviðræður hafa verið í gangi
og eins og er höfum við engan áhuga á
slíku,“ segir Andri Már.
Bravo Tours
ekki til sölu
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF hækkuðu umtalsvert í
verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 2,43% og er
5.547 stig. Viðskipti með hlutabréf
námu 7,1 milljörðum króna, þar af
2,8 milljarðar með bréf Landsbank-
ans. Bréf Avion hækkuðu um 5,8%,
bréf Straums-Burðaráss um 5,1% og
bréf Össurar um 4,8%. Bréf Marels
lækkuðu um 1,4%, en það var eina
lækkunin í Kauphöllinni í gær.
Hlutabréf hækkuðu
● VERÐIÐ á norska félaginu Orkla
Media, sem meðal annars gefur út
danska blaðið Berlingske Tidende og
fleiri fjölmiðla á Norðurlöndum, hefur
að öllum líkindum lækkað vegna
væntanlegrar útgáfu á fríblöðum í
Danmörku. Haft er eftir sérfræð-
ingum á fjármálamarkaði í danska
viðskiptablaðinu Børsen, að jafnvel
séu meiri líkur en minni á því að
móðurfélagið Orkla hætti við að selja
Orkla Media vegna þessa.
Haft er eftir Henrik Schultz, sér-
fræðingi hjá Danske Equities, að
hann telji að Orkla vilji fá hærra verð
fyrir Orkla Media en þá 6–7 milljarða
danskra króna sem fyrirtækið geti
búist við að fá nú, eins og þróunin
hefur verið. Þess vegna séu að
minnsta kosti helmings líkur á að
Orka ákveði að stíga á bremsurnar
og hætta söluferlinu.
Frá því hefur verið greint að fimm
aðilar eru að keppa um Orkla Media.
Þetta eru Dagsbrún, breski fjölmiðla-
fjárfestirinn David Montgomery,
breska fjárfestingafélagið Apax Part-
ners, norska fjölmiðlafyrirtækið A-
pressen og norska fjölmiðlafyr-
irtækið Avishuset Dagbladet, í sam-
vinnu við Capital Research og Bank
of New York.
Dótturfélag Dagsbrúnar í Dan-
mörku vinnur að útgáfu fríblaðs þar í
landi. Þá hafa útgefendur Jyllands
Posten, Politiken og Ekstra-Bladet
einnig tilkynnt um útgáfu nýs frí-
blaðs.
Verðið á Orkla
Media lækkar
RÁÐSTEFNAN „Iceland in London
– Partnering for Success“ sem fór
fram í Lancaster House í London á
fimmtudag þótti takast afar vel, að
sögn aðstandenda. Féllu framsögur
ræðumanna og svör þeirra við
spurningum gesta í góðan jarðveg,
en aðstandendur kveða mikinn
áhuga meðal Breta á fjárfestingum
og viðskiptum íslenskra fyrirtækja.
Um 170 manns sóttu ráðstefnuna,
en framsögumenn voru Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
Jón Ásbergsson frá Útflutningsráði,
Sigurður Einarsson, stjórnarfor-
maður KB banka, Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóri Baugs, Hannes
Smárason, forstjóri FL Group, og
Andrew Cahn frá UK Trade and In-
vestment.
Meðal umræðuefna voru einkenni
og eiginleikar íslenskra viðskipta-
manna og voru framsögumenn sam-
mála um að einfaldleiki, traust, heið-
arleiki og gott orðspor væru
lykilatriði ætluðu menn að ná ár-
angri í sinni útrás. Væru þessi atriði
til staðar væri lagður grundvöllur að
hraðri ákvörðunartöku og þar með
samkeppnisforskoti.
Á ráðstefnunni kom einnig fram
að breski markaðurinn hefði tekið
sérstaklega vel á móti íslenskum fyr-
irtækjum og fjárfestum og mæltu
framsögumenn eindregið með Bret-
landi sem vænlegum markaði fyrir
önnur íslensk fyrirtæki í útrásarhug-
leiðingum.
Að lokinni ráðstefnu tóku við áður
skipulagðir fundir íslenskra og
breskra fyrirtækja, ásamt því að
Fjárfestingastofa Íslands stóð fyrir
kynningu á Íslandi sem vænlegum
fjárfestingakosti. Íslenska sendi-
nefndin fór í kynnisferð í breska
þinghúsið í gær og heimsótti höfuð-
stöðvar Bakkavarar.
Tuttugu fyrirtæki með í för
Ráðstefnan er hluti af ferð við-
skiptasendinefndar Útflutningsráðs
Íslands til Bretlands, sem stendur til
28. maí, en ríflega tuttugu íslensk
fyrirtæki eru með í för. Skipulagning
og undirbúningur hefur verið unninn
af Útflutningsráði í samvinnu við
UK Trade and Investment, sendiráð
Íslands í London og ráðgjafafyrir-
tækið Ezenze auk þess sem sendi-
herra Bretlands á Íslandi, Alp
Mehmet, hefur reynst afar hjálpleg-
ur, að sögn Theodórs Bjarnasonar
verkefnisstjóra hjá Útflutningsráði.
Þess má geta að Lancaster House
er ein virðulegasta bygging London
og einungis notuð af bresku ríkis-
stjórninni þegar mikið liggur við, en
þetta er einungis í tíunda skipti sem
UK Trade and Investment hefur
fengið að nýta þessa sögulegu og
áhrifamiklu aðstöðu til ráðstefnu- og
fundahalda.
Áhugi á fjárfestingum
Íslendinga í Bretlandi
London Ráðstefnan í Lancaster House var vel sótt af fulltrúum breskra
fyrirtækja en hér eru fyrirlesarar á háborðinu í þessu sögufræga húsi.
fyrr á árinu um að auka alþjóðlega
starfsemi fyrirtækisins. Í tilkynn-
ingu frá Sjælsø segir að IBI hafi
áform um starfsemi í Þýskalandi,
Frakklandi, Portúgal og á Spáni.
Hjá IBI starfa 82 manns og áætl-
uð velta á þessu fjárhagsári er 900
milljónir danskar, rúmir 11 millj-
arðar, og hagnaður upp á 90 millj-
ónir d.kr. Félagið gerir ráð fyrir
vexti á næstu árum upp á 10–20%.
Samson Properties, sem er í eigu
Björgólfs Guðmundssonar og
Björgólfs Thors Björgólfssonar, á í
félagi við Straum-Burðarás Fjár-
festingabanka og fleiri Íslendinga
50% í eignarhaldsfélaginu SG Nord
AG. Hinn helming félagsins á
danska fyrirtækið Rönje Holdings.
DANSKA fasteignafélagið Sjælsø
Gruppen, sem Straumur-Burðarás,
Samson og Birgir Þór Bieltvelt eiga
hlut í, hefur fest kaup á öðru fast-
eignafélagi í Danmörku, Ikast
Byggeindustri, IBI, fyrir 800 millj-
ónir danskra króna, jafnvirði nærri
10 milljarða króna. Hluti kaup-
verðsins er í formi nýrra hlutabréfa
í Sjælsö Gruppen en staðgreiðsla
nemur 303 milljónum danskra
króna, um 3,8 milljörðum króna.
IBI er sagt öflugt fasteignafélag
með stærstan hluta starfsemi sinn-
ar utan Danmerkur, m.a. í Stokk-
hólmi, Ósló og Helsingfors. Með
kaupunum fylgir Sjælsø Gruppen
eftir stefnu sem mótuð var þegar ís-
lenskir fjárfestar komu að félaginu
Sjælsø Gruppen kaupir
danskan keppinaut
! "# #
!/. !
0
1#$ $+ 56( ! 7*
8 .
5!6( .
5*%( 7*
8 .
9(%%( & 7*
8 .
:(+!)3 .
; 7*
8 .
(+( 7*
8 .
7 )(% .
<(
8,+ 9(% .
;(!)(% =!(! .
( .
*!(6 (!.*! .
(
>9
#( ! $ )(% .
?!!
.
2#3#0
*,$+
5 * 7*
8 .
!%(%(#
=!(! . 9 7( .
(8#$( . @6(6 7*
8 .
AB.$ .
CD 5(6 C*
E1+++(#!&# .
F!
!&# .
43,$.#,#/5/
!% G1$($(#( .
H(+
#
(! !
6#$ 7,#
@IGJ
K#(!(
#!% #
>
>
>
>
>
>
>
>
91+
1( #!% #
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
' 2
' 2
'
2
' 2
>
' 2
>
'
2
' 2
' 2
' >2
' 2
' 2
'
2
'
2
>
>
>
>
>
' 2
>
>
>
>
>
( #!%8
(+!!
E)*# K *% (+!
<(
8 ((
>
>
>
>
>
>
>
F#!%8 K ,3! %
5E L 5.
+
(! $&
#!%8(
>
>
>
>
>
>
>
SMÁSÖLUKEÐJUR og dreifingar-
fyrirtæki eru mun áhrifa- og um-
fangsmeiri á heimsmarkaði en ætla
mætti af umræðunni um alheimsvæð-
ingu, sem oft er mjög framleiðslumið-
uð. Kom þetta meðal annars fram á
ráðstefnu um smásöluverslun sem
haldin var á vegum viðskipta- og hag-
fræðideildar Háskóla Íslands í gær.
Í erindi sínu fjallaði Neil Wrigley,
prófessor við Southampton háskóla,
um þróun í átt að alþjóðlegum smá-
sölukeðjum og sagði að í umræðum
um efnahagslega alheimsvæðingu
gætti ekki nægilegs skilnings á mik-
ilvægi smásölu og dreifingar, og að
þessir geirar væru því ekki ræddir
sem skyldi.
Verðugt rannsóknarefni
Ekki er langt síðan stór alþjóðleg
smásölufyrirtæki urðu til, en Wrigley
segir að um aldamótin 2000 hafi verið
til um 15 smásölufyrirtæki sem fengu
yfir tíu milljarða bandaríkjadala í
tekjur frá löndum utan heimalands.
Venjulega væru slík alþjóðleg smá-
sölufyrirtæki með útibú í 10–40 lönd-
um, sem væri sambærilegt við mörg
alþjóðleg framleiðslufyrirtæki.
Aðrir frummælendur á ráðstefn-
unni voru dr. Ágúst Einarsson, sem
fjallaði um smásölu á Norðurlöndum,
dr. Mark Harvey, sem fjallaði um
hlutverk stórmarkaða í Evrópu og
traust neytenda á matvörum, og dr.
Örn D. Jónsson, sem fjallaði um vöxt
verslanamiðstöðva almennt og Wal-
Mart sérstaklega.
Aukin áhrif smásölu- og
dreifingarfyrirtækja
Morgunblaðið/Jim Smart
Mikilvæg Umsvif smásölukeðja á heimsmarkaði eru oft vanmetin, að því er
kom fram á ráðstefnu viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands.
● SKRIFAÐ hefur verið undir samn-
inga hjá Lánasýslu ríkisins í
tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa
og viðskiptavakt á eftirmarkaði.
Markmiðið með samningnum er að
styrkja aðgang ríkissjóðs að lánsfé
og efla verðmyndun á eftirmarkaði.
Hafa fimm fjármálastofnanir nú
heimild til að kalla sig aðalmiðlara
með ríkisverðbréf, þ.e. Glitnir, KB
banki, Landsbankinn, MP Fjárfest-
ingarbanki og Straumur-Burðarás
Fjárfestingarbanki.
Með samningnum er tryggður selj-
anleiki ríkisverðbréfa á eftirmarkaði
þar sem þessar fjármálastofnanir
skuldbinda sig til að setja fram kaup-
og sölutilboð í viðskiptakerfi Kaup-
hallar Íslands fyrir 100 milljónir
króna í flokkum ríkisbréfa og rík-
isvíxla með skilgreindan hámarks-
mun. Nú verður hægt að eiga við-
skipti með 500 milljónir króna með
litlum viðskiptakostnaði og styrkir
það umgjörð og vaxtamyndun
skuldabréfamarkaðarins, segir í til-
kynningu frá Lánasýslunni.
Þá segir Lánasýslan að hlutverk
aðalmiðlara sé m.a. að jafna tíma-
bundnar sveiflur í framboði og eft-
irspurn ríkisverðbréfa og draga með
því úr sveiflum í verði þeirra. En stöð-
ug aukning hefur verið á viðskiptum
með ríkisverðbréf undanfarin ár.
Samið um miðlun
með ríkisverðbréf
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Moody’s hefur staðfest lánshæfisein-
kunnir Glitnis í kjölfar kaupa bank-
ans á sænska verð-
bréfafyrirtækinu
Fischer Partners
Fondkommission,
sem tilkynnt var um í fyrradag.
Bankinn keypti hið sænska félag fyr-
ir um 3,7 milljarða íslenskra króna.
Moody’s staðfestir lánshæfisein-
kunnina A1 fyrir Glitni til langs tíma,
einkunnina P-1 til skamms tíma og
C+ varðandi fjárhagslegan styrk-
leika bankans. Frá þessu er greint í
tilkynningu frá Moody’s. Þar segir
jafnframt að horfur varðandi fjár-
hagslegan styrkleika Glitnis séu enn
neikvæðar, en fyrirtækið breytti
horfunum úr stöðugum í neikvæðar
hinn 4. apríl síðastliðinn. Þá sagði
fyrirtækið að einkunnin fyrir fjár-
hagslegan styrk Glitnis endurspegli
það erfiða rekstrarumhverfi sem lík-
legt sé að bankinn standi frammi fyr-
ir og aukinn mótbyr sem líklegt sé að
hann þurfi að glíma við í framtíðinni.
Fram kemur í tilkynningu
Moody’s að þó svo kaupin á Fischer
Partners séu tiltölulega lítil fyrir
Glitni, muni þau verða til þess að
auka þóknunartekjur bankans auk
þess sem hið sænska félagi falli vel
að rekstri hans í Noregi.
Moody’s
staðfestir
lánshæfis-
einkunnir
Glitnis
♦♦♦
A(!(M
NC
EG
:5O
I5I P O
P O <.&
A%%
@IGO :* 0*!