Morgunblaðið - 27.05.2006, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SÍÐUSTU helgi felldu liðsmenn
Karuna liðþjálfa einn helsta hershöfð-
ingja tamílsku Tígranna á Sri Lanka,
rúmum tveimur árum eftir að Karuna
stofnaði klofningsfylkingu úr Tígrun-
um. Á sama tíma var orðrómur um að
Evrópusambandið (ESB) væri að
íhuga að skilgreina Tígrana sem
hryðjuverkasamtök, til að auka á
spennuna, en ástandið þykir reyna á
vopnahléið frá 2002.
Helen Ólafsdóttir, talsmaður nor-
rænu eftirlitssveitanna (SLMM) á Sri
Lanka, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að þrátt fyrir morðið á
Ramanan, hershöfðingja Tígranna,
gæti frekara svigrúm hafa myndast
til friðarviðræðna. „Stjórnvöld á Sri
Lanka eru núna farin að viðurkenna
tilvist liðsmanna Karuna og að það
kunni að vera staðbundið samband á
milli hersins og liðsmanna hans,“
sagði Helen. „Tígrarnir hafa þrýst á
stjórnina um að viðurkenna samstarf
við menn Karunas og því gæti þetta
skref orðið vísir að því að friðarvið-
ræður hefjist á ný.“
Aðspurð hvort morðið á Ramanan
hefði aukið líkur á allsherjarátökum
segir Helen enn afar ólíklegt að borg-
arastyrjöld brjótist út.
„Það eru búin að vera átök hér í 25
ár og það þarf ansi mikið til að borg-
arastríð brjótist út,“ sagði Helen.
„Þetta eru öðrum þræði staðbundin
átök sem reiknað er með að muni
halda áfram í nokkra mánuði.“
Þá segir Helen orðróm um að ESB
kunni að skilgreina Tígrana sem
hryðjuverkasamtök ekki hafa haft
mikil áhrif, þrátt fyrir að Svíar, Finn-
ar og Danir séu aðilar að ESB og taki
þátt í starfi SLMM. „Fulltrúar þess-
ara ríkja koma ekki fram fyrir hönd
þjóða sinna heldur sem þátttakendur
í starfi SLMM,“ sagði Helen.
Þá segir hún að það myndi ekki
breyta miklu þótt ESB frysti banka-
innistæður Tígranna. „Þrátt fyrir
slíkar aðgerðir bendir margt til að
meðlimir þeirra gætu safnað fé með
óbeinum hætti,“ sagði Helen. „Sviss
er ekki í ESB og þar hafa Tígrarnir
safnað fé svo dæmi sé tekið.“
Ekki fjölgað í liðinu að sinni
Spurð um öryggi íslensku eftirlits-
mannanna þriggja sem nú eru við
störf hjá SLMM á Sri Lanka segir
Helen að þeir séu ekki sendir í óþarfa
áhættu. Þá segir hún að það hafi kom-
ið til tals á samráðsfundi aðildarlanda
SLMM í vikunni að fjölga í liði sveit-
anna, en um 60 manns eru nú á þeirra
vegum á Sri Lanka.
Spurð um samráðsfundinn sagði
Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðar-
maður utanríkisráðherra, að ekki
hefði verið tekin ákvörðun um að
fjölga í liði SLMM. „Það liggur ekkert
fyrir staðfest um breytingar í þessum
efnum,“ sagði Ragnheiður í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Borgarastríð
enn ólíklegt
Reuters
Lögreglumenn í Batticaloa á Sri Lanka með kistu félaga síns, Nakoor Bad-
uredeens, sem var eitt fórnarlamba Tamíl-tígra á fimmtudag.
Stjórnvöld á Sri Lanka gefa í skyn að þau
hafi átt í samstarfi með Karuna liðþjálfa
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, viðurkenndu á
fréttamannafundi í fyrrakvöld að mistök hefðu
verið gerð í Írak en þeir lögðu jafnframt áherslu á
að umheimurinn yrði að styðja við bakið á nýrri
ríkisstjórn í Bagdad. Bush var afdráttarlausari í
máli sínu en hann hefur áður verið og vöktu um-
mæli hans nokkra athygli.
Blair er í heimsókn til Bandaríkjanna og átti
hann fund með Bush í fyrrakvöld og í gær flutti
hann svo erindi um utanríkismál við Georgetown-
háskólann í Washington. Að loknum fundi leiðtog-
anna í Hvíta húsinu í fyrrakvöld ræddu þeir við
fréttamenn í fimmtíu mínútur og var allt annar
blær yfir fréttamannafundinum en fyrri fundum,
þar sem Bush og Blair hafa engan bilbug látið á
sér finna vegna atburða í Írak.
Bush nefndi sérstaklega Abu Ghraib-hneykslið
en upp komst vorið 2004 að bandarískir hermenn
höfðu niðurlægt og misþyrmt íröskum föngum í
þeirra umsjón í Abu Ghraib-fangelsinu í útjaðri
Bagdad eftir að Bandaríkjamenn og Bretar tóku
öll völd í Írak 2003. Sagði Bush þá atburði verstu
mistökin, sem Bandaríkjamenn hefðu gert og
kvaðst hann telja að þeir væru enn að gjalda fyrir
þau mistök.
En Bush viðurkenndi ennfremur að hann hefði
á stundum talað gáleysislega og var hann þar að
vísa til ummæla í júlí 2003 þegar hann sagði um
uppreisnarmenn í Írak að þeir skyldu bara „gera
sitt versta“; en á þessum tíma var árásum gegn
bandarískum hermönnum og óbreyttum borg-
urum farið að fjölga.
Ummæli Bush þá þóttu herská og hafa oft verið
rifjuð upp síðar, enda hafa þúsundir manna fallið í
ódæðisverkum í Írak síðustu þrjú árin. Við-
urkenndi Bush í gær að ummælin hefðu sent fólki
„röng skilaboð“.
Blair sagði fyrir sitt leyti, aðspurður um hver
hann teldu verstu mistökin sem gerð hafa verið,
að sú ákvörðun að reka alla fyrrverandi liðsmenn
Baath-flokksins úr hernum 2004 hefði haft slæm
áhrif, enda hefðu þá margir Írakar snúist gegn
hernámsliðinu erlenda að ástæðulausu.
Pólitísk staða bæði Blairs og Bush þykir veik
um þessar mundir en atburðir í Írak hafa ekki síst
orðið til að grafa undan þeim. Var raunar haft á
orði í gær að Blair hefði virkað afar þreytulegur á
fundinum í Washington.
Hvor um sig lagði hins vegar áherslu á það í
gær að nú miðaði í rétta átt í Írak og að hvað sem
liði öllum mistökum þá hefði innrásin í Írak verið
rétt ákvörðun. Bush sagði þó engan vafa á að
bandaríska þjóðin væri klofin vegna atburða í
Írak. Óhjákvæmilegt væri að það hefði áhrif á af-
stöðu fólks er það sæi fréttir um morð og mis-
þyrmingar í Írak dag hvern.
Enn að gjalda fyrir hneykslið í Abu Ghraib
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu á fimmtudag.
Bush og Blair viður-
kenna mistök í Írak
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
ERLENDIR hermenn frá Ástralíu, Portúgal, Malasíu
og Nýja-Sjálandi munu taka að sér að kveða niður átök
milli stjórnarliðs og óánægðra herflokka í Dili, höf-
uðborg Austur-Tímor, að beiðni stjórnvalda þar.
Fyrstu Ástralarnir eru þegar komnir til borgarinnar,
einn þeirra sést hér við brynvarinn liðsflutningavagn í
gær. Níu manns féllu og 27 særðust í átökum á fimmtu-
dag en ró virtist vera að færast yfir í gær og íbúar, sem
flúið höfðu heimili sín, sneru aftur heim þótt enn mætti
heyra stöku byssuhvelli. Stjórn landsins sagði fjöl-
mörgum hermönnum upp starfi eftir að þeir fóru í
verkfall til að heimta betri aðbúnað.
Reuters
Skakka leikinn í Dili
Washington. AP, AFP. | Öldungadeild
Bandaríkjaþings staðfesti í gær
skipun Michaels Haydens í embætti
forstjóra banda-
rísku leyniþjón-
ustunnar, CIA.
George W. Bush,
forseti Banda-
ríkjanna, fagnaði
mjög niðurstöð-
unni. Hann hrós-
aði þinginu fyrir
að staðfesta ráðn-
inguna með þver-
pólitískum meiri-
hluta beggja flokka og kallaði
Hayden „ættjarðarsinna“ og dygg-
an, opinberan starfsmann.
Þingdeildin samþykkti ráðningu
Hayden, sem er 61 árs, með 78 at-
kvæðum gegn 15. Hann var áður yf-
irmaður Þjóðaröryggisstofnunar
Bandaríkjanna 1999 til 2005. Leið-
togi þingflokks demókrata, Harry
Reid, studdi Hayden en í fyrstu var
gagnrýnt verulega að hermaður ætti
að stýra CIA.
Bush forseti sagði að reynsla Hay-
dens, sem er hershöfðingi, og sér-
þekking gerðu að verkum að hann
hentaði fullkomlega til að stjórna
stofnuninni á erfiðum tímum. Sjálfur
sagði Hayden þingmönnum að hann
myndi ekki láta yfirmenn í varnar-
málaráðuneytinu stýra gerðum sín-
um. En færi svo að einkennisbúning-
urinn hefði áhrif á samstarfið við
undirmenn hjá CIA myndi hann
„taka rétta ákvörðun“.
Hayden
samþykktur
Michael Hayden
London. AFP. | Það væri siðferðilega
réttlætanlegt að myrða Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, í sjálfs-
morðssprengjuárás vegna aðildar
Bretlands að stríðinu í Írak. Þetta er
mat George
Galloway, bresks
þingmanns sem
áður tilheyrði
Verkamanna-
flokknum en náði
síðast kjöri á
breska þingið fyr-
ir flokkinn Virð-
ing (Respect).
Galloway er
spurður að því í
viðtali, sem tímaritið GQ birtir við
hann, hvort hann teldi réttlætanlegt
að sjálfsmorðssprengjuárásarmaður
dræpi Blair, að því gefnu að enginn
annar færist í tilræðinu. Galloway
svarar: „Já, það væri siðferðilega
réttlætanlegt. Ég er ekki að kalla
eftir því – en ef það gerðist þá væri
það á siðferðilega allt öðru plani en
atburðirnir 7. júlí.“
Var Galloway þar að vísa til
hryðjuverkaárása í London síðasta
sumar þar sem fjórir íslamskir öfga-
menn drápu 52 óbreytta borgara,
auk þess sem þeir létust einnig sjálf-
ir. En margir röktu aðgerðir þeirra
til andstyggðar þeirra á aðild Bret-
lands að innrásinni í Írak.
Ummælin vöktu hörð viðbrögð og
sagði Stephen Pound, þingmaður
Verkamannaflokksins, þau til hábor-
innar skammar. „Ég er agndofa yfir
þessum ummælum,“ sagði Pound við
The Sun. „Í hvert skipti sem þú telur
að hann geti ekki lagst lægra þá
kemur hann manni á óvart.“
Þingmaður
segir rétt-
lætanlegt að
drepa Blair
George Galloway
API í eigu götutrúðs í Lahore í Pak-
istan át ís af mikilli lyst í gær. Mikil
hitasvækja er um miðbik Pakistan
og mældist 43 stiga hiti á selsíus í
gær. Spáð er miklum hita og þurrki
næstu daga.
Reuters
Hressandi!