Morgunblaðið - 27.05.2006, Page 22
Mývatnssveit | Sköpunargáfa
bænda og annarra landeigenda
fær oft að njóta sín þegar þeir
verja lönd sín og óðöl fyrir gæs
og öðrum óboðnum gestum.
Árni bóndi Halldórsson í Garði
í Mývatnssveit vill hafa tún sín
í friði fyrir gæs. Hann útbýr
því í varnaskyni áberandi
fuglafælur á túnin. Hér er
hann að leggja lokahönd á eina
gerðarlega.
Morgunblaðið/BFH
Gerðarleg fuglahræða
Búskapur
Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Þó að það sé komið sumar samkvæmt
dagatalinu hafa Eyjamenn ekki frekar
en aðrir landsmenn farið varhluta af
kuldanum síðustu daga. Það breytir því
þó ekki að menningarlífið blómstrar
sem aldrei fyrr í Eyjum og nóg verður
um að vera í sumar.
Fyrir skömmu heimsótti Edda Björg-
vinsdóttir Heimaey og var með fjórar
sýningar á Alveg brilljant skilnaði. Var
sýningin vel sótt og gaf tóninn í því sem
koma skal í sumar. Um næstu helgi þeg-
ar skjálfti sveitarstjórnarkosninganna í
dag er liðinn hjá tekur menningarlífið
völdin. Djasshátíðin Dagar lita og tóna
verður á sínum stað og meðal gesta
þetta árið eru Flosason Koppel kvin-
tettinn og Eyþór Gunnarsson og Ellen
Kristjánsdóttir. Er þetta 15. hátíðin þar
sem boðið er upp á djass og myndlist
um hvítasunnu í Eyjum. Sjóst-
angveiðimót og fjölskylduskemmtun
sem bærinn stendur fyrir verða líka
þessa helgi.
Ennfremur verða tvö golfmót um hvíta-
sunnuna en völlurinn í Eyjum hefur
komið einstaklega vel undan vetri og á
fáum stöðum á landinu búa kylfingar við
eins góðar aðstæður og í Eyjum. Ólíkt
kollegum sínum á höfuðborgarsvæðinu
komast kylfingar í Eyjum nánast und-
antekningarlaust beint á teig þegar
þeim hentar og þurfa ekki að panta rás-
tíma. Það er munaður auk þess sem
völlurinn hefur fengið viðurkenningu
sem einn af 200 bestu völlum Evrópu.
Sumarið er tíminn í Eyjum og hver
helgi bókuð fyrir viðburði af ýmsu tagi.
Þrátt fyrir kuldakast síðustu daga er
engin spurning að Eyjamenn eru komn-
ir í sumarskap.
Umhverfið í kringum Vestmannaeyjar
hentar einkar vel til sjóstangveiði enda
segja kunnugir að hvergi við Íslands-
strendur fáist jafn margar tegundir af
fiski á jafn litlu svæði. Það er kannski
þess vegna sem áhugasamir veiðimenn
víðs vegar að af landinu mæta til Eyja
um Hvítasunnuna til að renna fyrir fisk.
Úr
bæjarlífinu
VESTMANNAEYJAR
EFTIR SIGURSVEIN ÞÓRÐARSON
FRÉTTARITARA
Mikill mannfjöldi,
yngri sem eldri, sótti
þessa velheppnuðu vorhá-
tíð á þessum fornfræga
Gleði, gleði, gleði,gleði, líf mitter…“ söng
Kirkjukór Hruna-
prestakalls á vorhátíð og
gospelmessu sem kórinn
bauð til í Hrunakirkju á
uppstigningardag.
Eftir fallegan söng og
guðsþjónustu hjá séra Ei-
ríki Jóhannssyni var
sungið úti í björtu og fal-
legu veðri.
Kór eldri Hrunamanna
söng, einnig kór yngstu
barna Flúðaskóla.
Kristín Magdalena
Ágústsdóttir söng nokkur
lög eftir Sigfús Hall-
dórsson. Undirleikari og
stjórnandi var Edit Moln-
ár. Þá bauð kirkjukórinn
uppá kaffi og kökur og
einnig var grillað.
kirkjustað. Veðrið spillti
ekki fyrir enda var stillt
og fallegt, þótt lofthiti
væri ekki verulegur.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Gleði á vorhátíð í Hruna
Rúnar Kristjánssoná Skagaströndyrkir í aðdrag-
anda kosninga:
Æðir um landið kuldakast,
kosninga undanrásin.
Lýðskrumi ýmsu ánetjast
alþýðan gegnumblásin.
Alls konar mála yfirboð
óma í lotum slagsins.
Fylgir þeim marglitt svikasoð
„sérréttur skiladagsins!“
Þorsteinn Erlingsson
yrkir um pólitíkina 1902:
Gott væri sjálfsagt gráum
hárum,
að geta blessað þetta hrat,
og þefa í botn á þúsund árum
þennan sælgætis hundamat;
en leið er mjer nú lyktin þín
um landið mitt og húsin mín.
Leifur Eiríksson sótti
myndlistarsýningu og
fannst prísinn hár:
Eru talin afar merk
eins og dæmin sanna;
löngum hafa listaverk
litað peningana.
Af loforðum
pebl@mbl.is
ÞRJÁR nýjar fléttutegundir hafa fundist í
vor og telur íslenska fléttuflóran nú 738 teg-
undir með þessari viðbót, að því er fram
kemur á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar
Íslands. Ein fléttan fannst á vettvangi í neð-
anverðu Hleiðargarðsfjalli í Eyjafjarðar-
sveit, en hinar tvær í fléttusöfnum; á Ak-
ureyri og í Kaupmannahöfn.
Ný tegund blaðfléttu, móaþemba, fannst
14. apríl síðastliðinn í 300 m hæð í neðan-
verðum hlíðum Hleiðargarðsfjalls í Eyja-
fjarðarsveit. Þar er að jafnaði auð jörð á
sama tíma og hvítar snjóbreiður þekja jörð
alla í grennd Akureyrar. Þær tegundir sem
áður voru þekktar á Íslandi af sömu ætt-
kvísl og móaþemba aðhyllast úthafsloftslag-
ið á Austfjörðunum, en þessi virðist láta sér
lynda landrænt loftslag á einu þurrasta
svæði landsins. Þegar unnið var að grein-
ingu þessarar fléttu var einnig farið yfir
þembur í plöntusafni Náttúrufræðistofnun-
ar ef vera kynni að þar leyndist meira af
þessari nýju fléttu. Við þá skoðun fundust
þrjú sýni af annarri nýrri tegund, áður
ógreind eða greind sem flatþemba. Lagt er
til að þessi nýfundna tegund verði nefnd
blekþemba. Þessi tegund virðist bundin við
Austfirðina eins og margar aðrar fléttur.
Þriðja nýja fléttan fannst í plöntusafni í
Kaupmannahöfn. Þetta er einnig blaðflétta,
sem safnað var á Fljótsdalshéraði af Svan-
hildi Jónsdóttur Svane árið 1985.
Þrjár nýjar
fléttur fund-
ust í vor
Ljósmynd/Hörður Kristinsson
Ein þeirra nýju Blekþemban dregur nafn
sitt af því að svart neðra borð hennar
teygir sig upp fyrir jaðrana og verður
eins og svartar skellur.
Reyðarfjörður | Kvikmyndasýningar
eru hafnar að nýju í Fjarðabíói á
Reyðarfirði eftir margra ára hlé.
Fjarðabíó er til húsa í Félagslundi,
stóra salnum hefur verið breytt og
settir 110 bólstraðir stólar, stórt tjald
og keyptar sýningarvélar sem eru
staðsettar á sama stað og þær gömlu
voru. Öll aðstaða er mjög góð og ættu
Austfirðingar að geta skemmt sér
vel. Einnig hentar salurinn vel til ráð-
stefnuhalds. Frumsýningarmynd-
irnar voru Mission Impossible lll og
Lucky Number Seven.
Eigendur kvikmyndahússins segja
áhuga vera fyrir því að talsetja eða
setja texta á kvikmyndir á pólsku fyr-
ir allan þann fjölda Pólverja, sem nú
starfa við að reisa álverið við Reyð-
arfjörð og sýna þær í Fjarðabíói.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Popp og kók takk! Þessar ungu Reyðarfjarðarsnótir brugðu sér í bíó.
Vilja talsetja eða texta kvik-
myndir fyrir Pólverjana
FYRIRTÆKIÐ Skutla ehf. hyggst bjóða
upp á svokallaðar „skutluferðir“ frá Lækj-
artorgi í miðbæ Reykjavíkur til Keflavíkur
um helgar en þjónustan verður veitt frá og
með næstu helgi. Síðustu helgar hefur fyr-
irtækið boðið ferðir úr miðbænum á 500
krónur til Hafnarfjarðar, Garðabæjar,
Kópavogs og allra hverfa Reykjavíkur.
Í fréttatilkynningu segir að á næstunni
sé fyrirhugað að auka enn frekar við
skutluferðir til og frá höfuðborginni.
Skutlur úr miðbænum
til Reykjanesbæjar
♦♦♦